Síða 1 af 1

taka upp stream..

Sent: Sun 25. Des 2005 13:54
af w.rooney
hvaða freeware forrit er hægt að nota til að taka upp stream af netinu eins og það sem maður spilar af ruv.is

Sent: Sun 25. Des 2005 17:20
af Birkir

Sent: Sun 25. Des 2005 18:25
af Snorrmund
hmm ég ætla t.d. að taka http://media.gagna.net/ruv/jol/joladaga ... -12-01.wmv þetta er þvílik snilld sko(mesta sýra i heimi) og ég ætla sava a harðadisknum.. hvað geri ég þá??

ef ég fer í wizard þá get ég valið eitthvað save/transcode.. veit ekkert hvað ég á að stilla þar!

Sent: Sun 25. Des 2005 18:48
af Birkir
Mér finnst þetta nokkurn veginn segja sig allt sjálft, annars hef ég aldrei gert þetta.

EDIT: Ég var rétt í þessa að save-a þetta stream sem þú linkaðir á, kem með ýtarlegar leiðbeiningar á eftir.

Sent: Sun 25. Des 2005 19:23
af Snorrmund
Birkir skrifaði:Mér finnst þetta nokkurn veginn segja sig allt sjálft, annars hef ég aldrei gert þetta.

EDIT: Ég var rétt í þessa að save-a þetta stream sem þú linkaðir á, kem með ýtarlegar leiðbeiningar á eftir.
Snilld! takk kærlega fyrirfram!

Sent: Sun 25. Des 2005 21:24
af gumol
Ertu ekki að grínast?

Fljúgandi baðkarið var nú skemmtilegra...

Sent: Sun 25. Des 2005 21:56
af Veit Ekki
gumol skrifaði:Ertu ekki að grínast?

Fljúgandi baðkarið var nú skemmtilegra...


Já, en "Pú og Pa" var lang skemmtilegast. :)

Sent: Mán 26. Des 2005 02:55
af Snorrmund
Veit Ekki skrifaði:
gumol skrifaði:Ertu ekki að grínast?

Fljúgandi baðkarið var nú skemmtilegra...


Já, en "Pú og Pa" var lang skemmtilegast. :)
satt.. en þetta er samt þvílik snilld! "é eð svona dulsðpeki dðeki... Allavega sðpekidðeki"

Sent: Þri 27. Des 2005 13:13
af Johnson 32
en að save-a Real Player streami? getur maður gert það í VLC?

Sent: Mið 28. Des 2005 03:40
af Birkir
„Á eftir“ dróst víst aðeins, biðst afsökunar á því. :?

1. File > Wizard

2. Næst skal velja „Save/Transcode to file“ og fara í Next

3. Í þessum glugga skaltu hafa hakað í „Select a stream“ og setja URL-ið á stream-ið í hólfið þar sem það er hægt.

4. Næst er komið að því að velja codec, þú skalt haka í báða reitina og velja codec eftir því sem þú vilt. Ég valdi „MPEG-2“ og hafði 1024 í bitrate. Í audio codec valdi ég síðan „MPEG Audio“ og hafði bitrate í 192. Að þessu loknu ýtirðu að sjálfsögðu á Next.

5. Núna er kominn gluggi með valmöguleikum um „Video format“. Þar valdi ég „MPEG PS“, en það er eflaust hægt að komast upp með það að velja eitthvað annað.

6. Núna er það síðasti glugginn, þar sem þú átt að velja nafn á skránna. Passaðu þig á því að hafa endingu á skránni (eða það er betra), t.d. hafði ég endinguna „.mpeg“. Svo er það bara að velja Finish.

7. Þá byrjar VLC að save-a þetta, á meðan á því stendur færist „status bar-inn“ eins og það sé video í gangi. Þessi bar þarf að fara tvisvar alveg frá byrjun yfir í endann.

8. Þegar þetta ferli er búið ætti skráin að vera komin þangað sem þú ákvaðst að save-a hana, ef hún er ekki þar þá ættirðu að finna hana í VLC möppunni þinni.