Gott kvöld.
Ég er með EdgeRouter Lite beini á GR ljósleiðaratengingu og í dag fékk ég símhringingu frá mínum ISP, Vodafone um að þeim var tilkynnt að public ip talan mín sé aðgengileg á internetinu Ég prufaði ip töluna í vafra á 4G og já, fékk upp login síðuna á beini. Hvernig laga ég þetta Og hvað er mögulega að valda þessu?
EdgeRouter Lite, Hjálp!
-
- Stjórnandi
- Póstar: 6354
- Skráði sig: Þri 19. Ágú 2008 20:58
- Reputation: 161
- Staða: Ótengdur
Re: EdgeRouter Lite, Hjálp!
Þarftu ekki bara að slökkva á external access að routernum þínum og stilla FW'inn rétt til?
Re: EdgeRouter Lite, Hjálp!
Sjálfgefið er að við fyrstu uppsetningu þá er aðeins opið fyrir LAN inn á router management, þannig að eitthvað hefur breyst í config til að access yfir WAN interface sé opið.
Hér er linkur á manual https://dl.ubnt.com/guides/edgemax/Edge ... ite_UG.pdf
Gangi þér vel með þetta
K.
Hér er linkur á manual https://dl.ubnt.com/guides/edgemax/Edge ... ite_UG.pdf
Gangi þér vel með þetta
K.
-
Höfundur - 1+1=10
- Póstar: 1122
- Skráði sig: Mán 27. Apr 2009 21:19
- Reputation: 1
- Staðsetning: RNB
- Staða: Ótengdur
Re: EdgeRouter Lite, Hjálp!
AntiTrust skrifaði:Þarftu ekki bara að slökkva á external access að routernum þínum og stilla FW'inn rétt til?
Ég breytti þessu í Drop og þá virðist hafa lokast fyrir þetta public. Er ég að gera rétt?
-
- </Snillingur>
- Póstar: 1016
- Skráði sig: Lau 06. Des 2008 12:28
- Reputation: 206
- Staðsetning: ::1
- Staða: Ótengdur
Re: EdgeRouter Lite, Hjálp!
Vel gert hjá þeim að bjalla í þig og láta vita samt
CCNA Collaboration
CCNA Voice
CCNA Video
-
- Græningi
- Póstar: 38
- Skráði sig: Þri 03. Maí 2022 01:56
- Reputation: 12
- Staðsetning: Litli Stokkhólmur
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: EdgeRouter Lite, Hjálp!
Krissinn skrifaði:Gott kvöld.
Ég er með EdgeRouter Lite beini á GR ljósleiðaratengingu og í dag fékk ég símhringingu frá mínum ISP, Vodafone um að þeim var tilkynnt að public ip talan mín sé aðgengileg á internetinu Ég prufaði ip töluna í vafra á 4G og já, fékk upp login síðuna á beini. Hvernig laga ég þetta Og hvað er mögulega að valda þessu?
Það kemur skemmtilega að óvart að þeir hafi hringt til þess að láta vita af þessu. Það tók netskannara að bruta inn í EdgeRouter X tækið mitt þegar að ég hafði frestað að læsa því niður alveg strax til þess að ég gerði það loksins