Síða 1 af 1
Vesen með tölvuna.... vélbúnaðarbilun eða stýriskerfisbilun?
Sent: Fös 09. Des 2005 22:12
af Danni Colt
Jæja ég var að lenda í því óláni að PC tölvan mín bilaði. Það gerðist það sama og gerist oft, 120gb diskurinn hvarf. Vanalega hef ég bara þurft að slökkva á tölvuunni og ræsa hana aftur eftir minnst klukkutíma. En núna gerðist það að ég ákvað að bíða aðeins styttra, eða 10 mín. Hef gert það áður btw. En það sem gerðist núna er að hún startaði á stýrikerfinu sem var uppsett á 120 gb disknum (gamla stýrikerfið, fyrir gömlu tölvuna, var ekki búinn að eyða útaf My Documents) og sá diskur var eini diskurinn sem tölvan fann. Hún fann ekki 200gb diskinn né þessa 2 80gb SATA sem eru tengdir sem 1 160gb. Það kom í Windowsinu, en Biosinn fann alveg 200gb diskinn og ég gat ekki séð betur en hún fann báða SATA diskana líka.
Hvað gæti hugsanlega verið að? Vélbúnaðar- eða hugbúnaðarbilun?
Með fyrirfram þökk,
Sent: Fös 09. Des 2005 22:41
af Viktor
Prufaðu að fara í Control Panes, Admin tools, Computer Management, Disk Management og athugaðu hvort þú finnir diskana sem vantar þar. Ef svo er, hægri klikkaru á þá og enablar þá!
Ef svo er ekki, veit ég ei
Sent: Lau 10. Des 2005 00:59
af @Arinn@
Viktor bara búinn að læra á þetta
Sent: Lau 10. Des 2005 03:03
af Danni Colt
Það er einmitt málið, ég kemst ekki í rétta Windowsið til að stilla þetta. Tölvan bootar bara í gamla windowsið, sem ég var að nota á gömlu tölvunni. Að vísu þá komst ég inná Windowsið sem ég vill nota, en aðeins með að taka úr sambandi alla diska nema SATA diskana. Um leið og ég tengi hinn IDE diskinn sem er líka með stýrikerfi á bootast það. Samt hef ég engum stillingum breytt eða neitt og er búinn að fara yfir allar stillingar sem gætju haft áhrif á þetta og þær eru allar réttar.
Það sem mér dettur helst í hug að gera er að taka IDE diskinn með stýrikerfinu úr og setja hann í utanáliggjandi hýsinguna í staðinn fyrir 200gb diskinn, tengja svo við tölvuna þegar ég er búinn að ræsa tölvuna með rétta stýrikerfinu. Taka svo backup og formatta partition-ið með gamla stýrikerfinu.
PS. Er nokkuð hægt að tengja saman tvö partition á hörðum disk þannig hann verður aftur full 80gb í staðinn fyrir 20 og 60, án þess að formatta?
Sent: Lau 10. Des 2005 03:50
af Danni Colt
Jæja gerði þetta og bootaði, fyrst kom að einhvern dll vantaði og svo þegar ég rebootaði og var kominn á staðinn sem hún tékkar hvort það sé bootable cd diskur í drifinu þá kom error message:
NTLDR is missing
Press CTRL+ALT+DEL to restart
held að mína eina von um að þurfa ekki að formatta er bara að boota með xp setup disknum og prófa repair. Klikkast ef ég glata NFS:MW savegame!!! Var að vinna leikinn bara í gær
Nema það sé til utanáliggjandi hýsing fyrir 2 SATA diska? :S
Sent: Lau 10. Des 2005 13:07
af Veit Ekki
Danni Colt skrifaði:Jæja gerði þetta og bootaði, fyrst kom að einhvern dll vantaði og svo þegar ég rebootaði og var kominn á staðinn sem hún tékkar hvort það sé bootable cd diskur í drifinu þá kom error message:
NTLDR is missing
Press CTRL+ALT+DEL to restart
held að mína eina von um að þurfa ekki að formatta er bara að boota með xp setup disknum og prófa repair. Klikkast ef ég glata NFS:MW savegame!!! Var að vinna leikinn bara í gær
Nema það sé til utanáliggjandi hýsing fyrir 2 SATA diska? :S
Efast um að þú getir fengið utanáliggjandi hýsingu fyrir 2 diska í einu en hér er allvega fyrir einn SATA disk:
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2048
eða
http://www.att.is/product_info.php?cPat ... ts_id=2049
Sent: Lau 10. Des 2005 14:00
af Stebbi
Er ég að misskilja þetta eitthvað ?
Ætti ekki að vera nóg að stilla bara í bios hvaða disk þú vilt láta boota upp af ?
Ég er með 3 sata diska og einn ide. Ide diskurinn er eiginlega aldrei tengdur en þegar ég tengi hann þar ég að fara í bios og stilla aftur hvaða disk ég vill láta boota af(Ide diskurinn er með annað stýrikerfi).
Sent: Lau 10. Des 2005 16:01
af Daz
Getur verið að það sé ekki nógu öflugt PSU í tölvunni og hún nái ekki alltaf að boota upp öllum diskunum í einu? Gætir komist að því snögglega með því að aftengja einhverja diska og sjá hvort þú finnir þá í BIOSinum og hvort þá ræsist upp rétt stýrikerfi.
Sent: Lau 10. Des 2005 16:04
af gumol
Ég giska á vélbúnaðarbilun. Prófaðu að taka óþarfa dót úr sambandi og boota þannig.
Sent: Sun 11. Des 2005 08:23
af Danni Colt
Ég náði að laga þetta. Fór vel yfir alla boot möguleika einsog ég tók fram fyrr í þræðinum og það eru allar stillingar eins. En 80gb diskurinn gaf upp öndina og af einhverjum skringilegum ástæðum hafði það áhrif á bootið, þó að það var ekkert stýrikerfi eða neitt bootable á þeim disk! En fyrst þetta var 120gb diskurinn þá tapaði ég ekki það miklu, bara svona 30gb af tónlist sem bara var þarna. Á allt sem ég vill hlusta á orginal hvort sem er
Hefði örugglega farið á geði ef diskurinn með My Documents hefði hrunið! Enda tók ég backup af því rétt áðan þegar ég komst að því hversu óáreiðanlegir þessir hörðu diskar geta verið. Gefa ekki einusinni merki um að þeir séu að fara að gefa sig.
Sent: Sun 11. Des 2005 17:26
af gnarr
líklega hefur ntloaderinn og boot.ini lent á þessum 80GB disk. það er nóg til að tölvan starti sér ekki.