Síða 1 af 1
Get ég bætt dreifingu á 4G heimaneti ?
Sent: Fös 15. Júl 2022 12:12
af Sera
Er til einhver búnaður til að bæta dreifingu á 4G heimaneti ?
Vinkona mín býr á þannig stað að það er ekki hægt að fá neitt net nema 4G net. Hún er með 4G box heima en netið nær ekki vel milli hæða. Er til einhver búnaður til að auka styrkinn eða dreifa netinu milli hæða ?
Edit: eru Nova 4.5 G boxin með Lan tengi sem hægt væri að setja þráðlausan punkt á til að dreifa signalinu ?
Re: Get ég bætt dreifingu á 4G heimaneti ?
Sent: Fös 15. Júl 2022 12:28
af TheAdder
4G boxið er bara router eins og fyrir aðrar tengingar, sömu aðferðir virka, bæta við þráðlausum punkti, eða setja tvo samtengda í staðinn fyrir þráðlausa netið sem er til staðar.
Re: Get ég bætt dreifingu á 4G heimaneti ?
Sent: Fös 15. Júl 2022 16:43
af jonfr1900
Ef að það er bara 4G net í boði (í sveit án ljósleiðara?). Þá mæli ég með að það sé sett upp loftnet fyrir 4G úti ef það er ekki nú þegar til staðar.
Hvað varðar dreifingu á WiFi merki. Þá er hægt að setja WiFi aðgangspunkta á þeim hæðum þar sem þarf að vera WiFi. Þá með repeater mode (verra) eða með því að tengja þá yfir með LAN tengingu. Ef ekki er hægt að leggja LAN snúru milli hæða, þá er hægt að athuga hvort að
net yfir rafmagn virki (gæti ekki virkað vel ef rafmagnið er lélegt í húsinu).
Re: Get ég bætt dreifingu á 4G heimaneti ?
Sent: Fös 15. Júl 2022 22:09
af Gemini
Passaðu að rugla ekki saman 4G og svo wifi hlutanum. Fyrst kemur 4G frá þjónustuðaðila og í 4G routerinn þinn. En svo tekur við bara venjuleg wifi tenging innanhús sem talar við tækin á heimilinu. Þannig þú vilt lausn á að bæta dreifingu á wifi ekki 4G.