Netuppfærsla
Netuppfærsla
Þyrfti að fá einhvern til að yfirfara netið hjá mér. Er í ca 100 fermetra íbúð og netið er mjög slappt. Að sjálfsögðu borga ég fyrir þetta. Er í Reykjavík.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 985
- Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
- Reputation: 42
- Staðsetning: RVK
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Netuppfærsla
Oftast dugir nú bara að uppfæra routerinn, þessir sem símafyrirtækin skaffa eru ódýrir og ráða illa við marga notendur.
Ég uppfærði í þennan: Asus RT-AX58U (en er ennþá með ljósleiðaraboxið frá Símanum) en þessi router sér um WiFi og snúrutengdar tölvur, þráðlausa netið varð mun öflugara, hraðinn alveg hörkufínn á öllum vélum þó svo hann sé staðsettur inní miðri geymslu svo það eru lágmark 1 veggur á milli, stundum 2 veggir (110 fm íbúð), þeim mun meira sem hægt er að koma á snúru því betra.

Hlynur
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 300
- Skráði sig: Lau 11. Júl 2020 19:18
- Reputation: 55
- Staða: Ótengdur
Re: Netuppfærsla
Ég keypti mér annan router,TP-Link á 15 þús í Elko og setti hann á aðra hæð í húsinu á meðan að routerinn frá netfyrirtækinu er niðri.
Svo tengdi ég TP-Link routerinn í Lan portið á báðum tækjum með 10-15m netsnúru sem ég límdi á vegginn með hitabyssu og bráðnu plasti.
Þarft ekki að fjárfesta í wifi extendurum, kösturum, wifi yfir rafmagn eða öðru bulli. TP-Link routerinn nær fullum 1Gbps hraða þegar hann er beintengdur með snúru.

- Besserwisser
- Póstar: 3168
- Skráði sig: Mið 07. Okt 2009 20:54
- Reputation: 545
- Staðsetning: ::1
- Staða: Tengdur
Re: Netuppfærsla
Mæli með að lista upp hvernig nettengingu þú ert með, vdsl eða ljósleiðara? Hvernig endabúnað/router ertu að nota? Er vandamál bundið við þráðlaust net eða einnig þegar þú ert snurutengdur? þetta væri eitthvað sem ég hefði viljað vita áður en ég myndi mæta á staðinn (þ.e ef ég væri að leita mér að tilfallandi verkefni sem ég er ekki að gera btw).
Just do IT
√
√
-
- Stjórnandi
- Póstar: 2852
- Skráði sig: Fös 04. Apr 2003 08:54
- Reputation: 217
- Staðsetning: Á þessu spjalli
- Staða: Ótengdur
Re: Netuppfærsla
myndi jafnvel segja að fyrsta skrefið væri að hringja í þjónustufyrirtækið og fá þá til að líta á þetta