Síða 1 af 1
Fartölva fær ekki úthlutað ip-addresu
Sent: Lau 26. Nóv 2005 19:00
af CraZy
Þetta er búið að vera helvítis vesen með eina fartölvu hérna, hún vill bara ekki fara á netið, hvorki wi-fi né með venjulegum kappli
ip-config skilar bara submet mask og autoconfiguration ip.
tölvan er leyfð á routernum og allt leift
er orðin frekar pirraður og pabbi kemst ekki í emailin sinn =/
Sent: Lau 26. Nóv 2005 19:28
af corflame
Prófaðu að setja fasta IP tölu, það ætti að redda þér.
Sjálfur lenti ég í því að routerinn minn hætti að úthluta IP tölum með DHCP eftir að ég uppfærði hann.
Sent: Lau 26. Nóv 2005 19:36
af CraZy
þarf maður ekki að borga fyrir fasta
en annars ef eg er að misskilja, hvar setur maður fasta á?
Sent: Lau 26. Nóv 2005 20:08
af CraZy
bara setja inn einhverja eða
( omg Im nýliði noo..)
Sent: Lau 26. Nóv 2005 20:50
af Stutturdreki
Bara eitthvað á milli á 192.168.1.2 og 192.168.1.253 og hafa subnet mask 255.255.255.255
Td. hjá mér er Routerinn/Gatewayið 192.168.1.1 og svo læt ég tölvurnar vera á 192.168.1.10x ..
Sent: Lau 26. Nóv 2005 20:50
af gnarr
fynndu út hver ip talan á routernum er.
Gerðu svo þessar stillingar:
IP address: sama ip og á routernum, nema með aðra tölu fyrir aftan síðasta punktinn.
Subnet mask: Ætti að koma sjálfkrafa, annars er líklegast að það sé 255.255.255.0
Gateway: IP talan á routernum
Primary DNS server: ip talan á routernum ætti að virka.
Secondary DNs server: tildæmis 193.4.194.5, eða einhver annar dns server.
Sent: Lau 26. Nóv 2005 20:52
af Stutturdreki
Stutturdreki skrifaði:Bara eitthvað á milli á 192.168.1.2 og 192.168.1.253 og hafa subnet mask 255.255.255.255
Td. hjá mér er Routerinn/Gatewayið 192.168.1.1 og svo læt ég tölvurnar vera á 192.168.1.10x ..
Doh.. á náttúrulega að vera 255.255.255.0 ..
Sent: Lau 26. Nóv 2005 21:05
af CraZy
ok stillti þetta svona :
IP 192.168.1.66 - einni hærri heldur en á hinni tölvunni
Subnet mask 255.255.255.0
gateway 192.168.1.254
preferred DNS 192.168.1.254
alternate DNS ekkert
og ekkert í WINS draslinu
virkar enn ekki,kemur sami error
Sent: Lau 26. Nóv 2005 21:06
af Manager1
Er það ekki rétt munað hjá mér að það er hægt að stilla á routernum hvaða ip-tölur hann leyfir? (speedtouch 580 router minnir mig í mínu tilviki)
Ég á við sama vandamál að stríða, var reyndar búinn að prufa að setja fasta ip-tölu en það virkaði ekki, fékk samt limited or no connectivity, hef eflaust gert eitthvað vitlaust
Sent: Lau 26. Nóv 2005 21:15
af gnarr
CraZy skrifaði:virkar enn ekki,kemur sami error
Og hvaða error er það?
Sent: Lau 26. Nóv 2005 21:45
af CraZy
"error in conection progres" síðan fer maður í troubleshooter og þá sínir það manni "Did not receive IP addres"
svo er líka annað skrítið að ef maður fer í prop á routernum í gegnum fartölvuna(hann er skráður þarna, því að þetta virkaði fyrir svona mánuði)
og maður velur WEP key dralsið þá getur maður valið um 64 eða 128b kóðun, ég vel 64 því að routerin er stiltur á það en! hann biður mann um 5stafa key þegar routerin notast við 10 =/
Sent: Lau 26. Nóv 2005 22:27
af gnarr
í routernum seturu inn 10 hex stafi. í windows seturu inn 5 ascii stafi.
Sent: Lau 26. Nóv 2005 23:01
af CraZy
omg..virkaði hvað er málið með að það standi hvergi að key-in sé ekki á sama formati
en takk Gnarr og hinir, þið eruð bjargvættir
(ætla að fara hringja í tölvukallin sem ég var búin að tala við í síma og hlæja að honum..)
Sent: Lau 26. Nóv 2005 23:55
af Manager1
OK, fyrst að Crazy er buinn að redda sínu vandamáli þá stel ég bara þræðinum hans...
Þegar ég reyni að tengjast þráðlausa netinu mínu kemur svona "detecting network type" og svo eftir smá stund fæ ég skilaboð um að ég hafi ekki náð að tengjast.
Svo ef ég reyni að tengjast öðru þráðlausu neti þá fæ ég ekki þetta "detecting network type" svo ég var að spá hver munurinn á þessum tveimur þráðlausu netum gæti verið og jafnvel hvort einhver vissi lausn á þessu vandamáli