Síða 1 af 1

Besta leið að lækka ping á NA/AU serverum

Sent: Fös 21. Jan 2022 20:21
af gudberguremil
sælir, er að leita af bestu leið til að lækka ping mitt á NA serverum fyrir leiki eins og Valorant. Stór pæling hvort það sé hægt að fá undir 100 ping á þeim serverum. Lægsta sem ég náði var 111 ping á US East Virginia serverunum.

Prufaði nokkra hluti eins og ExitLag en ekkert gerði stóran mun. Helf líka heyrt af eih 5g fiber optic network en veit ekt hvort ísl sé með það

Re: Besta leið að lækka ping á NA/AU serverum

Sent: Fös 21. Jan 2022 20:30
af TheAdder
Því miður held ég að eina raunhæfa leiðin sé að flytja vestur. Þetta kemur mest af fjarlægð og fjölda millipunkta í tengingunni.

Re: Besta leið að lækka ping á NA/AU serverum

Sent: Fös 21. Jan 2022 22:14
af Viktor
Getur boðið þig fram til Alþingis og barist fyrir því að Ísland verði tengt við Bandaríkin.

Stórfurðulegt að það sé ekki löngu búið að gera þetta.

Re: Besta leið að lækka ping á NA/AU serverum

Sent: Lau 22. Jan 2022 14:02
af dori
Þú kemst ekkert undir 50ms til Evrópu og 100ms til austurstrandar USA, 150ms til vesturstrandar USA, 2-300ms til Asíu og svona 300ms til Ástralíu.

Þetta snýst að mestu leyti bara um landfræðilega legu en vissulega myndu allar beintengingar lækka það eitthvað. En ég efa stórlega að þú finnir eitthvað “trix” til að lækka ping.

Re: Besta leið að lækka ping á NA/AU serverum

Sent: Lau 22. Jan 2022 17:52
af Dr3dinn
dori skrifaði:Þú kemst ekkert undir 50ms til Evrópu og 100ms til austurstrandar USA, 150ms til vesturstrandar USA, 2-300ms til Asíu og svona 300ms til Ástralíu.

Þetta snýst að mestu leyti bara um landfræðilega legu en vissulega myndu allar beintengingar lækka það eitthvað. En ég efa stórlega að þú finnir eitthvað “trix” til að lækka ping.


Fer nú rosalega eftir internet providerum. Mjög mismunandi ping eftir veitum og routing leiðum.

Einstaka lönd geta náð 38-48ms hjá mér en flest yfir 50ms.

En US er ég sammála þér, við eigum ekki break þar.