Sælir Vaktarar
Hefur einhver hér skipt út routernum frá Símanum með Unifi Dream Machine? Er þetta framkvæmanlegt? Ég er líka með VoIP síma ásamt tengingu við myndlykil Símans. Ég er með ljósleiðaratengingu frá Mílu.
Kv. Elvar
Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
Ég er með ljósleiðara í gegnum mílu og hef aldrei verið með router frá þeim. Var fyrst með asus router en dream machine pro núna. Svo klárlega möguleiki. Er með myndlykil sömuleiðis.
Var ekki viðstaddur þegar þetta var sett upp upphaflega en skipti svo yfir í dmp og það var nánast plug n play.
Var ekki viðstaddur þegar þetta var sett upp upphaflega en skipti svo yfir í dmp og það var nánast plug n play.
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
Tekur bara TV og VOIP beint úr ONTuni og Unifi sér um internetið. Frekar einfalt bara.
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
Ég er með Unifi Dream machine pro SE, var með Unifi Dream machine pro. Er hjá Vodafone.
Þetta er plug'n'play aðgerð. Eina sem þú þarft að hafa í huga er að þú þarft að hringja í Símann/Vodafone og láta þá virkja MAC adressuna á bakvið nýja routerinn.
Þetta er plug'n'play aðgerð. Eina sem þú þarft að hafa í huga er að þú þarft að hringja í Símann/Vodafone og láta þá virkja MAC adressuna á bakvið nýja routerinn.
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
mercury skrifaði:Ég er með ljósleiðara í gegnum mílu og hef aldrei verið með router frá þeim. Var fyrst með asus router en dream machine pro núna. Svo klárlega möguleiki. Er með myndlykil sömuleiðis.
Var ekki viðstaddur þegar þetta var sett upp upphaflega en skipti svo yfir í dmp og það var nánast plug n play.
Míla er ekki með internetþjónustu og þ.a.l. ekki routera
Færð bara ljósleiðarabox (ljósbreytu) með ethernetportum.
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
Benz skrifaði:mercury skrifaði:Ég er með ljósleiðara í gegnum mílu og hef aldrei verið með router frá þeim. Var fyrst með asus router en dream machine pro núna. Svo klárlega möguleiki. Er með myndlykil sömuleiðis.
Var ekki viðstaddur þegar þetta var sett upp upphaflega en skipti svo yfir í dmp og það var nánast plug n play.
Míla er ekki með internetþjónustu og þ.a.l. ekki routera
Færð bara ljósleiðarabox (ljósbreytu) með ethernetportum.
Ég er nokkuð viss um að "þeim" hjá mercury hafi verið skírskotun til Símans, miðað við samhengi upprunalega póstsins.
NZXT 710i - Ryzen 7 5800X - 32GiB 3200 M/T RAM - X570 Aorus Ultra - PowerColor Radeon RX 7900 XTX - 1TB Samsung 970 Pro, 2TB Samsung 970 Evo
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
TheAdder skrifaði:Benz skrifaði:mercury skrifaði:Ég er með ljósleiðara í gegnum mílu og hef aldrei verið með router frá þeim. Var fyrst með asus router en dream machine pro núna. Svo klárlega möguleiki. Er með myndlykil sömuleiðis.
Var ekki viðstaddur þegar þetta var sett upp upphaflega en skipti svo yfir í dmp og það var nánast plug n play.
Míla er ekki með internetþjónustu og þ.a.l. ekki routera
Færð bara ljósleiðarabox (ljósbreytu) með ethernetportum.
Ég er nokkuð viss um að "þeim" hjá mercury hafi verið skírskotun til Símans, miðað við samhengi upprunalega póstsins.
Sennilega
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
wicket skrifaði:Tekur bara TV og VOIP beint úr ONTuni og Unifi sér um internetið. Frekar einfalt bara.
Vek hér upp eldri þráð.
Hvað ef ontan er bara með eitt wan port, ekkert meira?
-
- Vélbúnaðarníðingur
- Póstar: 341
- Skráði sig: Mán 29. Jún 2009 15:56
- Reputation: 116
- Staða: Tengdur
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
IngoVals skrifaði:wicket skrifaði:Tekur bara TV og VOIP beint úr ONTuni og Unifi sér um internetið. Frekar einfalt bara.
Vek hér upp eldri þráð.
Hvað ef ontan er bara með eitt wan port, ekkert meira?
Hafðu samband við þjónustufyrirtækið þitt og athugaðu hvort þú getir ekki fengið ONT með fleiri portum.
-
- vélbúnaðarpervert
- Póstar: 986
- Skráði sig: Fös 15. Nóv 2002 20:40
- Reputation: 42
- Staðsetning: RVK
- Hafðu samband:
- Staða: Ótengdur
Re: Skipta út Síma router fyrir Unifi Dream Machine
Ég var einmitt að skipta út routernum (Technicolor 567) fyrir Asus router. Ég gat fært afruglarann beint yfir í ljósbeininn (Nokia box) og hringdi svo í Símann til að færa VoIP (heimasímann) yfir í port sem er til staðar í Nokia boxinu.
Hlynur