Síða 1 af 1
Proxy-vandræði?
Sent: Þri 25. Okt 2005 10:05
af Jth
Ég er með borðtölvu með Windows ME, með þráðlausu usb 2.0 netkorti í (þó svo tölvan sé framleidd fyrir daga usb 2.0) og routerinn Speedtouch 585. Og undanfarna daga hefur netið verið virkt (þó það hafi stundum dottið niður ...held það sé út af mismuninum milli usb), en nú fyrir skömmu datt það alveg niður og hún sá ekki lengur routerinn.
Mér tókst einhvern veginn að koma því til að hún sér alveg routerinn núna (merkilegt nokk því ég er enginn tölvukall) - en proxyið virðist ekki alveg að vera að virka, þó það sé nákvæmlega eins uppsett eins og það var þegar netið virkaði.
Veit einhver hvað er hægt að gera?
Sent: Mið 26. Okt 2005 08:33
af Jth
Í status-barinn kemur "Detecting proxy settings..." og svo eftir dágóða stund kemur klassíska tilkynningin í Internet Explorer að hún finni ekki síðuna.
Þó finnur hún routerinn og allar proxy-stillingar eru eins og þær eiga að vera.
Er virkilega enginn sem getur hjálpað manni með þetta???
Sent: Mið 26. Okt 2005 08:58
af gnarr
Virkar tengingin ekki ef þú sleppir bara proxy?
Sent: Mið 26. Okt 2005 20:30
af Jth
Neipp, virkar því miður ekki
Sent: Mið 26. Okt 2005 21:35
af hilmar_jonsson
Ef þú ert hjá símanum þá mæli ég með
8007000@siminn.is
Ég lenti í vandræði með að þessi router var að detta út hjá mér og var bent á að setja inn nýjasta firmware, leiðbeiningar um það hér:
http://www.siminn.is/control/index?pid=62504
Mér skilst að það hafi komið út 18.10.05 (kom a.m.k. á vefsíðu símans þá).
Sent: Lau 29. Okt 2005 19:11
af Jth
Neipp, virkar ekki á Windows ME
Hringi bara í einhvern tölvukall
Sent: Mán 31. Okt 2005 20:17
af Jth
Hvernig er það annars, þegar maður fær vírus og vírusvarnarforritið manns (BitDefender 9 Standard) getur ekki disinfectað; hvernig er það með að henda sýktu skránni í ruslið og deleta? Virkar það e-ð?
Og hvernig fer maður að því að henda iconum úr taskbar?
Sent: Þri 01. Nóv 2005 00:05
af hilmar_jonsson
Það er mjög mismunandi eftir vírusum. Mæli bara með
google. Google er a.m.k. einn besti vinur minn.