Síða 1 af 1
RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Sun 29. Ágú 2021 23:11
af chaplin
Tók eftir að eitt RJ45 tengið heima var ekki að virka, leit á það og þetta var það sem ég sá.
Er þetta eitthvað óeðlilegt? Það virkaði fínt fyrir viku en núna virðist það vera dautt..
Edit þeas þetta svarta á tenglunum
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Mán 30. Ágú 2021 06:03
af Sinnumtveir
Þetta er ekki gott. Pinnar 3 og 5 (eða eru þetta 4 og 7, skiptir ekki máli) eiga ekki að vera svona beygðir. Þú þarft að "afbeygja" þá með bréfaklemmu, tannstönglu eða einhverju öðru.
Mögulega beygðust tengin vegna rj45 tengils sem var ekki að fullu "krimpaður". Semsagt tjekkaðu kapalinn. Að auki myndi ég aftengja "hinn" endann með viðgerð fer fram.
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Mán 30. Ágú 2021 10:59
af chaplin
Takk fyrir svarið.
Ég fór í gegnum húsið og kíkti á hina RJ45 tenglana, nr 3 og 5 eru svona í öllu húsinu (og virka allir).
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Mán 30. Ágú 2021 11:07
af arons4
Sinnumtveir skrifaði:Þetta er ekki gott. Pinnar 3 og 5 (eða eru þetta 4 og 7, skiptir ekki máli) eiga ekki að vera svona beygðir. Þú þarft að "afbeygja" þá með bréfaklemmu, tannstönglu eða einhverju öðru.
Mögulega beygðust tengin vegna rj45 tengils sem var ekki að fullu "krimpaður". Semsagt tjekkaðu kapalinn. Að auki myndi ég aftengja "hinn" endann með viðgerð fer fram.
Þetta er ekki rétt, þetta er mjög algeng á rj-45 tenglum. Myndi mæla snúruna eða skoða hinn endann.
Hér er glænýr tengill frá elko.
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Mán 30. Ágú 2021 12:13
af TheAdder
Athugaðu með að hreinsa pinnana með Isopropyl eða spritti og eyrnapinna. Svo væri sterkur leikur að nálgast rj45 prófara.
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Mán 30. Ágú 2021 17:22
af Dúlli
Áður en þú fer að vesenast fáðu paretester lánaðan og mældu þetta þá veistu strax hvað er áður áður en þú ferð að stinga bréfaklemmum út um allt.
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Þri 31. Ágú 2021 21:07
af chaplin
Það fer bara signal í gegnum vír nr. 5, yay. Er mikið mál að skipta um þetta?
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Þri 31. Ágú 2021 21:34
af Dúlli
chaplin skrifaði:Það fer bara signal í gegnum vír nr. 5, yay. Er mikið mál að skipta um þetta?
Nei, en þetta hættir ekki skyndilega að virka, varstu að bora einhvað nýlega ? festa einhvað upp ?
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Þri 31. Ágú 2021 22:56
af chaplin
Já, en það var á stað þar sem engar lagnir liggja, er að vonast til þess að ég hafi sett nýju cat snúruna eitthvað kjánalega inn í tengið.
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Þri 31. Ágú 2021 23:05
af Dúlli
chaplin skrifaði:Já, en það var á stað þar sem engar lagnir liggja, er að vonast til þess að ég hafi sett nýju cat snúruna eitthvað kjánalega inn í tengið.
Góð regla er að engar langir liggja á rökréttan hátt. Getur prufað að skipta út báðum endur og séð hvort strengurinn er í lagi.
En þegar þú missi 95% af strengnum sem virkað fyrir 15 mín síðan þá er tjón á honum.
Re: RJ45 í vegg hætti að virka
Sent: Mið 01. Sep 2021 00:32
af chaplin
Kannski smá villandi lýsingin hjá mér. Tengið virkaði fyrir nokkrum dögum, var með snúru tengda í 5 mín á meðan ég var að koma Sonos hátalaranum í gang, svo tek ég snúruna úr sambandi. Nokkrum dögum seinna þarf ég að tengja Hue Bridge, set nýja snúru í RJ45 tengilinn og ekkert samband.
Ég er því að vona að ég hafi stútað tenginu þegar ég tengdi snúruna.