Síða 1 af 1
Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Þri 17. Ágú 2021 11:46
af SneezeGuard
Sæl/ir.
Ég var að flytja í nýja íbúð og get ekki lengur beintengt tölvuna við routerinn. Er með ljósleiðara hjá Símanum, og er að nota routerinn frá þeim eins og er.
Svo ég var að velta fyrir mér hvort wifi endurvarpi væri ekki besta lausnin. Bein lína frá tölvu í router er í gegnum 4 steypuveggi, en með endurvarpa fyrir utan herbergið, þá eru bara tvær hurðir á milli, í 90°vinkil. Ætti það ekki að skila ágætis hraða?
Getur einhver ráðlagt mér með router, wifi endurvarpa, og wifi netkort í tölvuna sem myndi passa saman og skila þokkalegum hraða? Þetta þarf ekki að vera top-of-the-line setup, en ekki það ódýrasta heldur. Kannski max 80þ+ allt saman, ef það skilar meiru en ódýrara setup.
Re: Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Þri 17. Ágú 2021 13:54
af MrIce
https://bodleid.is/product/unifi-amplif ... m_term=646https://kisildalur.is/category/34/products/1878þetta 2 ætti að redda þér með að vera með frekar solid net.
Er sjálfur með stakann router svona (ekki með þessi 2 loftnet) og er að ná í ca 100fm íbúð (allir veggir steyptir) fínu sambandi sama hvar, jafnvel niður 3 hæðir niðrá bílastæði
Re: Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Þri 17. Ágú 2021 14:15
af SneezeGuard
MrIce skrifaði:https://bodleid.is/product/unifi-amplifi-router-2-sendar/?utm_source=Google%20Shopping&utm_campaign=ja-feed&utm_medium=cpc&utm_term=646
https://kisildalur.is/category/34/products/1878þetta 2 ætti að redda þér með að vera með frekar solid net.
Er sjálfur með stakann router svona (ekki með þessi 2 loftnet) og er að ná í ca 100fm íbúð (allir veggir steyptir) fínu sambandi sama hvar, jafnvel niður 3 hæðir niðrá bílastæði
Þakka þér fyrir svarið.
Þetta væri flott þó það sé í dýrari kantinum, ef þetta væri til á lager hjá þeim.
Væri best ef ég gæti nettengst fyrr en seinna. Heimurinn í dag er búinn að taka af manni alla þolinmæði.
Re: Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Þri 17. Ágú 2021 14:46
af EliasB
SneezeGuard skrifaði:MrIce skrifaði:https://bodleid.is/product/unifi-amplifi-router-2-sendar/?utm_source=Google%20Shopping&utm_campaign=ja-feed&utm_medium=cpc&utm_term=646
https://kisildalur.is/category/34/products/1878þetta 2 ætti að redda þér með að vera með frekar solid net.
Er sjálfur með stakann router svona (ekki með þessi 2 loftnet) og er að ná í ca 100fm íbúð (allir veggir steyptir) fínu sambandi sama hvar, jafnvel niður 3 hæðir niðrá bílastæði
Þakka þér fyrir svarið.
Þetta væri flott þó það sé í dýrari kantinum, ef þetta væri til á lager hjá þeim.
Væri best ef ég gæti nettengst fyrr en seinna. Heimurinn í dag er búinn að taka af manni alla þolinmæði.
Ég á ónotað Amplifi ofan í skúffu hjá mér ef þú hefur áhuga. Getur fengið það mun ódýrara en auglýst er í linknum hér að ofan.
Það var keypt í Elkjop í noregi fyrir nokkrum mánuðum en var aldrei notað, kaupandann vantaði bara fleiri loftnet til að bæta við í núverandi setup hjá sér en fattaði ekki að það er ekki hægt að nota loftnetin sem eru í svona pakka því þau eru harðkóðuð við routerinn sem fylgir í pakkanum. Þetta var því tekið upp, kveikt á því og svo stungið ofan í kassann aftur. Ætlaði einmitt að fara að auglýsa það til sölu en ef þú hefur áhuga hentu þá á mig DM og ég get gefið þér gott verð í þetta og þú nettengs jafnvel strax í dag
Re: Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Þri 17. Ágú 2021 18:17
af Sam
Re: Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Þri 17. Ágú 2021 19:18
af jonfr1900
Það væri einfaldara fyrir þig að senda internetið yfir rafmagnið. Þar sem þú kemur ekki snúru á milli. Þú mundir einnig lenda í vandræðum með þráðlausa traffík frá nágrönnum. Þar sem væntanlega eru flestar WiFi rásir uppteknar í nágrenni við þig.
Re: Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Þri 17. Ágú 2021 23:28
af Moldvarpan
Er ekki búið að draga rj 45 kapal í dósirnar í íbúðinni??
Það á að vera þannig í öllum nýjum íbúðum.
Re: Ráðlegging varðandi ljósleiðara router + endurvarpa + wifi kort í PC.
Sent: Mið 18. Ágú 2021 13:10
af SneezeGuard
Moldvarpan skrifaði:Er ekki búið að draga rj 45 kapal í dósirnar í íbúðinni??
Það á að vera þannig í öllum nýjum íbúðum.
Ég veit ekki hvort það sé búið að draga nýja kapla, en blokkin var byggð árið 1973.
Ég þáði boðið hjá ElíasB og ætla að sjá hvernig routerinn kemur út. Læt vita þegar ég er kominn með þetta í hendurnar og búinn að setja upp.