Síða 1 af 1

Get ekki bootað upp winxp disk!

Sent: Lau 15. Okt 2005 16:19
af Snorrmund
jæja er að reyna að formatta tölvu hjá systur minni og það kemur bara alltaf einhver texti(man ekki alveg hvaða texti) og svo gerist ekki neitt.. búinn að prufa diskinn i 3 öðrum tölvum. .

Sent: Lau 15. Okt 2005 16:44
af kristjanm
Þá hlýtur diskurinn að vera ónýtur.

Sent: Lau 15. Okt 2005 16:51
af Snorrmund
ekki ef að hann virkar i þremur öðrum tölvum!?!

Sent: Lau 15. Okt 2005 17:41
af kristjanm
Þú sagðir ekki að hann hafi virkað í þremur öðrum tölvum, bara að þú hafir prufað hann. Ég hélt semsagt að það sama gerðist á hinum tölvunum.

Þetta er ekki beint það skýrasta sem ég hef lesið.

Sent: Lau 15. Okt 2005 17:57
af DoRi-
skrifaðu niður textann, gæti hjálpað

Sent: Lau 15. Okt 2005 18:17
af Snorrmund
kristjanm skrifaði:Þú sagðir ekki að hann hafi virkað í þremur öðrum tölvum, bara að þú hafir prufað hann. Ég hélt semsagt að það sama gerðist á hinum tölvunum.

Þetta er ekki beint það skýrasta sem ég hef lesið.
hehe satt.. en ég meinti að ég væri buinn að testann i 3 öðrum tölvum og þar virkaði hann. . skal kíkja á textann eftir kvöldmat tölvan er ekki i sama húsi og ég


EDIT**

non emulation booting er það sem kemur

Sent: Sun 16. Okt 2005 14:06
af MezzUp
Gamalt móðurborð? Gamalt CD drif?

Sent: Sun 16. Okt 2005 17:28
af Snorrmund
hmm bæði :) en þetta er mitac fartölva.. svona 3 ára eða eitthvað en pandemic sagði mér á msn hvernig ætti að redda þessu.. á eftir að prufa það reyndar..

jæja það virkar ekki.. en nú er ég með tölvuna i höndunum svo eg get testað meira .. :)

Sent: Mán 17. Okt 2005 07:53
af gnarr
skrifaðu XP diskinn á öðruvísi skrifanlegann disk. Einhverja tegund sem þú veist 100% að virkar í þessari tölvu. Það lesa ekki öll gömul CD drif alla diska.

Reyndu að brenna diskinn sem "Disc at Once" eða "Disc at Onc/96", þá er líklegra að hann virki í tölvunni.

Sent: Mið 19. Okt 2005 00:16
af Snorrmund
gnarr skrifaði:skrifaðu XP diskinn á öðruvísi skrifanlegann disk. Einhverja tegund sem þú veist 100% að virkar í þessari tölvu. Það lesa ekki öll gömul CD drif alla diska.

Reyndu að brenna diskinn sem "Disc at Once" eða "Disc at Onc/96", þá er líklegra að hann virki í tölvunni.
hmm fékk þær upplýsingar að þetta drif væri bara eins árs(gamla bilaði og þetta er semsagt "nýja") og að þetta er CD Skrifari../DVD/ en á eftir að redda mér öðruvisi diskum samt :) ef ekki þá verð ég að finna vin sem á "keyptan" disk.. ATH ég er með löglegt CD key..