Síða 1 af 1
ip-tala alltaf að breytast
Sent: Lau 15. Okt 2005 02:47
af zaiLex
Í nánast hvert skipti sem ég ákveð að opna dc og connecta á hub þá er mér kickað út því að ég er ekki með réttu ip tölu inn í settings, ég er með lausa ip-tölu hjá Simnet, en breytist ip-talan ekki bara þegar maður restartar routernum? Routerinn er nefnilega alltaf í gangi.
Sent: Lau 15. Okt 2005 11:49
af Stutturdreki
Nei.. breytist reglulega nema þú fáir þér fasta iptölu.
Sent: Lau 15. Okt 2005 13:10
af Fumbler
Stutturdreki skrifaði:Nei.. breytist reglulega nema þú fáir þér fasta iptölu.
Stutturdreki. það er ekki rétt.
Ip talan breytist ekki nema routerinn missi internet sambandið.
Svo lengi sem routerinn heldur intenet sambandinu þá ertu með sömu IP. En síðan getur verið eitthvað sem veldur því að internet sambandið er að slitna og þá færðu nýja tölu þegar ruterinn nær sambandi aftur.
Sent: Lau 15. Okt 2005 17:43
af ponzer
Fumbler skrifaði:Stutturdreki skrifaði:Nei.. breytist reglulega nema þú fáir þér fasta iptölu.
Stutturdreki. það er ekki rétt.
Ip talan breytist ekki nema routerinn missi internet sambandið.
Svo lengi sem routerinn heldur intenet sambandinu þá ertu með sömu IP. En síðan getur verið eitthvað sem veldur því að internet sambandið er að slitna og þá færðu nýja tölu þegar ruterinn nær sambandi aftur.
Nei.. Það er ekki þannig hjá mér, tengingin restartar sér á svona 5 vikna fresti...
Sent: Lau 15. Okt 2005 17:48
af DoRi-
http://www.no-ip.com
http://www.dyndns.com
ætti að leysa flest vandamál
virkaði fyrir mig
Sent: Lau 15. Okt 2005 22:50
af Stutturdreki
Fumbler skrifaði:Stutturdreki skrifaði:Nei.. breytist reglulega nema þú fáir þér fasta iptölu.
Stutturdreki. það er ekki rétt.
Ip talan breytist ekki nema routerinn missi internet sambandið.
Svo lengi sem routerinn heldur intenet sambandinu þá ertu með sömu IP. En síðan getur verið eitthvað sem veldur því að internet sambandið er að slitna og þá færðu nýja tölu þegar ruterinn nær sambandi aftur.
Ég er hjá símanum og iptalan mín breytist mjög reglulega, án þess að ég taki sérstaklega eftir því að sambandið hjá mér sé að slitna. Hinsvegar var ég alltaf með sömu iptöluna þegar ég var hjá ogvodafone, án þess að borga sérstaklega fyrir það.
Hef prófað dyndns.com og það er bara mjög sniðugt. Það er meira að segja eitthvað lið búið að skrifa client sem uppfærir kerfið þeirra með iptölunni þinni sjálfkrafa.
Sent: Lau 15. Okt 2005 23:43
af Pandemic
no-ip.biz er frábært
Sent: Sun 16. Okt 2005 02:00
af kjaran
http://www.afraid.org <-- Mjög líkt og no-ip.com og það drasl. Getur valið úr hundruðum af Lénum til að hafa underlén af.
EDIT: og þú getur niðurhalað client sem uppfærir IP töluna þína.