Síða 1 af 1
Slow hjá vodafone?
Sent: Fim 30. Jún 2005 22:51
af andrig
er netið hægt hjá einhverjum sem eru hjá vodafone?
Sent: Fim 30. Jún 2005 23:22
af Veit Ekki
Samband rofnaði um Farice
Svartími á Netinu til og frá Evrópu hefur aukist eftir að samband um Farice rofnaði um áttaleytið í morgun, að því er fram kemur í fréttum á vefsvæðum Og Vodafone og Símans. Um er að ræða bilun í ljósleiðara nærri Edinborg í Skotlandi. Fram kemur hjá símafyrirtækjunum að mögulegt sé að netnotendur lendi í töfum á Netinu þar til viðgerð er lokið. Þá geti fólk lent í vandræðum vegna símtala til og frá landinu. Þó segir í tilkynningu Símans að ekki hafi orðið tafir á talsímaumferð hjá Símanum.
http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/fr ... id=1146570
Gæti hugsanlega verið þetta.
Sent: Fim 30. Jún 2005 23:25
af andrig
= bögg!
Sent: Fös 01. Júl 2005 02:11
af MezzUp
Jamm, slitnaði sæstrengurinn hjá OgVodafone í dag og þeir þurftu að nota einhvern slow-ass link til Ameríku í staðinn. (Cantat?
)
Sent: Fös 01. Júl 2005 13:38
af gnarr
Hversu gáfulegt er þetta?:
Viðgerð hjá Teleglobe 1.7.2005
Viðskiptavinir hjá Og Vodafone geta orðið varir við truflanir á netsambandi um Cantat-3 til Bandaríkjanna í mjög skamman tíma í hádeginu vegna viðgerðar hjá Teleglobe. Notendur eru beðnir afsökunar á þeim óþægindum sem þeir verða mögulega fyrir.
http://ogvodafone.is/index.aspx?groupid=400&tabid=361&NewsItemID=1495&ModuleId=686
Var virkilega ekki hægt að bíða með þetta þangað til að farice var kominn í lag.
Sent: Fös 01. Júl 2005 19:12
af Revenant
Mér líður eins og ég sé kominn aftur á 33,6kbit módem þegar ég reyni að fara á erlendar síður >_>
Sent: Fös 01. Júl 2005 19:34
af gnarr
ég er á 33.6k á erlendum síðum.
dl-aði áðan á 4KBps...
annars næ ég 415KBps frá ati.com. er satm vanalega með 750KBps frá þeim.
Sent: Fös 01. Júl 2005 20:02
af ponzer
Ég er að vinna erlendis og þegar maður er að browsa íslenskar síður er bara eins og að vera með 14k módem ..