Síða 1 af 1
Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 11:36
af Rafurmegni
Sælir Vaktarar,
Ethernet over powerline.... fyrir þá sem hafa reynslu af því að þræða Cat5 kapla um allt hús með tilheyrandi borbrölti og rörakönnun hljómar þetta of gott til að vera satt og mjög freistandi að prófa.
Nú skil ég það alveg að hámarks hraði sem gefinn er upp er alltaf teorítískur og alveg við því að búast að raunveruleikinn sé eitthvað frábrugðinn því sem mælist í rannsóknastofu. Í mínu tilviki hef ég í besta falli náð 10% af uppgefinni bandvídd, þ.e. 50 Mbps yfir græju sem á að bjóða upp á 500 Mbps. Þetta er náttúrulega hörmung en getur verið skárra en að draga kapal langar leiðir - til dæmis út í garðkofa þar sem ég er með aðstöðu.
Aftur á móti er annað verra og það er að búnaðurinn virðist ekki endast nema rétt rúmlega ár. Ég er búinn að lenda í því að þrjú stykki gefast upp hjá mér. Eitt frá Devolo, eitt frá D-link og nú loks eitt frá Tenda.
Keypti 300 metra af Cat5 og er hættur þessu rugli!
Hver er ykkar reynsla?
RAFURMEGNI
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 12:35
af Uncredible
Ég notaði svona búnað og hefur virkað mjög vel, konan mín notaði svona í mörg ár og kvartaði aldrei.
Ég játa samt að ég hraðamældi aldrei þessi tæki sem ég notaði persónulega. En ég hef séð að hraðinn stjórnast mjög af fjölda tenginga. Þannig ef þú ert með marga tengipunkta á milli þá minnkar hraðinn.
Þess vegna mæla framleiðundir tildæmis að hafa þetta ekki í fjöltengjum.
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 12:37
af CendenZ
Fer eftir því hvað er einnig á greininni, var með svona á sérgrein fyrir geymslu og það var fínt, náði um 300Mpbs. Félagi minn var með þetta hjá sér á sömu grein og þvottavél og það gékk auðvitað ekkert, var endalaust packetloss þegar vélin byrjaði að draga til sín rafmagn. Það er aðalega packetlossið sem truflar online gaming
Myndi alltaf reyna draga cat5, það er minnsta málið ef þú ert með tómar lagnir eða gamlar loftnets/sat/coax lagnir sem þú getur dregið úr. Þá bara nunnufeiti og fjöður. Ef þú þarft að leggja út í garð er kostnaðurinn alls ekki mikill, myndi allan daginn leggja fyrir því. Ekki hafa það með rafmagninu, nokkur rör og beygur kosta ekki mikið

Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 13:12
af Jón Ragnar
Hver dregur CAT5 í dag eiginlega
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 13:32
af jericho
Myndi hiklaust fara í CAT5e eða CAT6 til að ná a.m.k. 1gbps hraða.
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 16:14
af Rafurmegni
Jón Ragnar skrifaði:Hver dregur CAT5 í dag eiginlega
Í mínu tilviki eftirfarandi:
1. Þeir sem vilja bandvídd yfir 400Mbps
2. Þeir sem vilja ekki kaupa fjórða AV2 sendinn
3. Þeir sem vilja 100% uppitíma á linknum
Þetta er reyndar Cat5e (er hægt að fá gamla Cat5 í dag?)
Megni
p.s. Þetta með greinina.... ef kerfið er einfasa, þ.e. ekki dreift 3 fösum út í 3x einn, þá er erfitt að fá noise isolation á milli greina. Á endanum endar þetta allt í saman punktinum.
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 19:34
af jonsig
Ég er búinn að nota powerline í mörg ár en hætti því loksins núna, ég ætlaði að vera svaka nútímalegur og setti allt í led ljós heima. Powerline droppaði úr 400mbps ping 1ms, yfir í 27mbps og ping í 3ms samdægurs og ónothæft síðan.
Spurning samt hvað er draslið..
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 21:27
af hagur
jonsig skrifaði:Ég er búinn að nota powerline í mörg ár en hætti því loksins núna, ég ætlaði að vera svaka nútímalegur og setti allt í led ljós heima. Powerline droppaði úr 400mbps ping 1ms, yfir í 27mbps og ping í 3ms samdægurs og ónothæft síðan.
Spurning samt hvað er draslið..
Forvitni, hversvegna gerist það?
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mið 20. Jan 2021 21:31
af jonsig
Stutt svar : Crappy , SMPS aflgjafar.
Suðið sem ódýrir spennugjafar gefa frá sér geta verið á hinum og þessum tíðnum, en suðið af þessum led spennum virðist hitta á svipaða tíðni og powerline kubbarnir mínir nota til að fasamóta 50Hz sinus bylgjuna í veggnum hjá mér

Edit:
Hvort þetta sé beint suðið eða yfirsveiflur af völdum þess sem hafa svipaða mögnun og fasamótunin. Allavegana skítugt rafmagn á hér við.
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Fim 21. Jan 2021 09:15
af Jón Ragnar
Rafurmegni skrifaði:Jón Ragnar skrifaði:Hver dregur CAT5 í dag eiginlega
Í mínu tilviki eftirfarandi:
1. Þeir sem vilja bandvídd yfir 400Mbps
2. Þeir sem vilja ekki kaupa fjórða AV2 sendinn
3. Þeir sem vilja 100% uppitíma á linknum
Þetta er reyndar Cat5e (er hægt að fá gamla Cat5 í dag?)
Megni
p.s. Þetta með greinina.... ef kerfið er einfasa, þ.e. ekki dreift 3 fösum út í 3x einn, þá er erfitt að fá noise isolation á milli greina. Á endanum endar þetta allt í saman punktinum.
Þú last þetta vitlaust

Menn eru að setja 5e eða 6 í allt í dag
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mán 25. Jan 2021 08:15
af jonfr1900
jonsig skrifaði:Ég er búinn að nota powerline í mörg ár en hætti því loksins núna, ég ætlaði að vera svaka nútímalegur og setti allt í led ljós heima. Powerline droppaði úr 400mbps ping 1ms, yfir í 27mbps og ping í 3ms samdægurs og ónothæft síðan.
Spurning samt hvað er draslið..
Ákveðin led ljós senda frá sér truflun sem er nær upp undir 200Mhz (stundum hærra). Ethernet yfir rafmagn notar frá 1Mhz upp í 86Mhz til þess að senda gögn milli búnaðar. Það fer eftir búnaði hvaða tíðni er notuð en það stendur oftast á kassanum eða með þeirri tegund sem þú notar. FM útvarp byrjar á 87,5 til 107,9Mhz. Ég veit ekki alveg hvernig er best að eiga við þetta vandamál en þú gætir notað rf síu led ljósin til þess að koma í veg fyrir þessa truflun.
Hérna er það sem þeir ráðleggja í Ástralíu varðandi rf truflun frá led ljósum.
https://reductionrevolution.com.au/blog ... terference
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mán 25. Jan 2021 08:32
af Viktor
Já
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mán 25. Jan 2021 12:37
af jonsig
jonfr1900 skrifaði:jonsig skrifaði:Ég er búinn að nota powerline í mörg ár en hætti því loksins núna, ég ætlaði að vera svaka nútímalegur og setti allt í led ljós heima. Powerline droppaði úr 400mbps ping 1ms, yfir í 27mbps og ping í 3ms samdægurs og ónothæft síðan.
Spurning samt hvað er draslið..
Ákveðin led ljós senda frá sér truflun sem er nær upp undir 200Mhz (stundum hærra). Ethernet yfir rafmagn notar frá 1Mhz upp í 86Mhz til þess að senda gögn milli búnaðar.
https://reductionrevolution.com.au/blog ... terference
sjaldan yfir 200MHz ætti við á níunda áratugnum ,þetta er of langt yfir það til að gera hleðslutækið meira compact. Þótt þetta sé limitað við 200MHz þá þurfa ekki margar yfirsveiflur - til að verið komið uppí sama band og powerline kubburinn.
Re: Er ethernet over powerline drasl?
Sent: Mán 25. Jan 2021 13:44
af JReykdal
Jón Ragnar skrifaði:Rafurmegni skrifaði:Jón Ragnar skrifaði:Hver dregur CAT5 í dag eiginlega
Í mínu tilviki eftirfarandi:
1. Þeir sem vilja bandvídd yfir 400Mbps
2. Þeir sem vilja ekki kaupa fjórða AV2 sendinn
3. Þeir sem vilja 100% uppitíma á linknum
Þetta er reyndar Cat5e (er hægt að fá gamla Cat5 í dag?)
Megni
p.s. Þetta með greinina.... ef kerfið er einfasa, þ.e. ekki dreift 3 fösum út í 3x einn, þá er erfitt að fá noise isolation á milli greina. Á endanum endar þetta allt í saman punktinum.
Þú last þetta vitlaust

Menn eru að setja 5e eða 6 í allt í dag
Cat 5e er búið að vera samnefnari fyrir Cat5 í mörg ár hjá flestum.