Síða 1 af 1

Lítill hraði með adsl 6000

Sent: Lau 04. Jún 2005 03:15
af Skotvesen
Ég var að fá mér adsl 6000 og er að downloada á svona 370 kb/s þótt það eigi að vera í kringum 700kb/s. Ég er búinn að hafa samband við símann og samkvæmt þeirra athugunum er allt í lagi þeirra megin frá. Niðri í hægra horninu á skjánum stendur að hraðinn sé 6.9 Mbps þannig það er rétt en hraðinn er ekki að skila sér þegar ég downloada. Ég er búinn að prófa að hraðamæla á 3 innlendum síðum og fæ alltaf þessa sömu útkomu 370 kb/s og er ekki að fatta af hverju hann er ekki meiri. Þannig ef einhverjum dettur eitthvað í hug til að ráðleggja mér þá væri það vel þegið.

Sent: Lau 04. Jún 2005 05:31
af CendenZ
Gæti verið gamalt módem sem styður það ekki.

mitt fraus þegar ég fékk 6 mb... :P

Sent: Lau 04. Jún 2005 08:21
af einarsig
ef þú ert með router, þá dettur mér helst í hug að taka routerinn úr sambandi í 15-20 mín og kveikja svo aftur á honum. Eins líka ef þú ert með TvoDsl og kveikt á sjónvarps móttakaranum þá cappar hann tenginguna í 4 mbit á meðan.

Re: Lítill hraði með adsl 6000

Sent: Lau 04. Jún 2005 12:07
af MezzUp
Mér sýnist að hann sé með innbyggt módem en ekki router:
Skotvesen skrifaði:Niðri í hægra horninu á skjánum stendur að hraðinn sé 6.9 Mbps...

Sent: Lau 04. Jún 2005 13:16
af einarsig
reyndar :oops:

Sent: Lau 04. Jún 2005 13:38
af CendenZ
Eða Greatspeed USB módem, þau einmitt frjósa flest við 6 mb eða virka ekki einsog skyldi

Sent: Lau 04. Jún 2005 14:48
af Skotvesen
Ég er með utanáliggjandi þriggja ára gamalt alcatel speedtouch 330 adsl modem (ekki þráðlaust) og er ekki með tölvuna neitt tengda sjónvarpi. Er bara með modemið tengt beint í símainnstunguna á veggnum og þaðan í tölvuna og er ekki með síma tengdan þarna. Sá sem kom frá símanum og leit á þetta sagði að þetta modem ætti að ráða við þetta.

Sent: Lau 04. Jún 2005 15:14
af Birkir
Ertu búinn að fara á http://www.simnet.is/hradatest ?

Sent: Lau 04. Jún 2005 15:27
af CendenZ
Skotvesen skrifaði:Ég er með utanáliggjandi þriggja ára gamalt alcatel speedtouch 330 adsl modem (ekki þráðlaust) og er ekki með tölvuna neitt tengda sjónvarpi. Er bara með modemið tengt beint í símainnstunguna á veggnum og þaðan í tölvuna og er ekki með síma tengdan þarna. Sá sem kom frá símanum og leit á þetta sagði að þetta modem ætti að ráða við þetta.


hann sagði það nákvæmlega sama í símabúðinni, ég keypti mér nýtt og allt í gúddí.

Sent: Lau 04. Jún 2005 15:30
af Skotvesen
Varst þú með sömu modemtegund og ég? Hvað heitir nýja modemið þitt sem virkar svona vel?

Sent: Lau 04. Jún 2005 15:32
af Skotvesen
Já er búinn að prófa þetta hraðatest ásamt 2 öðrum hraðatestum líka.

Sent: Lau 04. Jún 2005 17:38
af Andri Fannar
Ég er með 6.9mb tengingu frá ogvodafone, ég er í sömu vandamálum, með nýlegan Netopia router, fæ MAX 490kB/s. En línan er stillt á 6.9mb og allt, í Admin interfaceinu á routernum þá er 6900 og allt :?

Sent: Lau 04. Jún 2005 18:26
af CendenZ
SvamLi skrifaði:Ég er með 6.9mb tengingu frá ogvodafone, ég er í sömu vandamálum, með nýlegan Netopia router, fæ MAX 490kB/s. En línan er stillt á 6.9mb og allt, í Admin interfaceinu á routernum þá er 6900 og allt :?


6900 kB eða kb ? :P

Sent: Lau 04. Jún 2005 18:37
af Skotvesen
SvamLi skrifaði:Ég er með 6.9mb tengingu frá ogvodafone, ég er í sömu vandamálum, með nýlegan Netopia router, fæ MAX 490kB/s. En línan er stillt á 6.9mb og allt, í Admin interfaceinu á routernum þá er 6900 og allt :?


Ertu búinn að spyrja einhvern hjá ogv um hvað sé að?

Sent: Sun 05. Jún 2005 11:40
af emmi
Það fer alveg eftir því hversu langt þið eruð frá næstu símstöð hve miklum hraða þið náið.

Sent: Sun 05. Jún 2005 14:26
af einarsig
5-6 km frá símstöð er víst með fullum hraða á adsl..... adsl2+ er víst ekki nema með sirka 3km fjarlægð frá símstöð

Sent: Sun 05. Jún 2005 16:14
af Skotvesen
Ég hélt að ef maður byggi í Reykjavík þá ætti maður að geta notað adsl burtséð frá staðsetningu. Ef að þetta er þá ástæðan eftir allt saman þá er ég frekar fúll út í þann sem ég er að kaupa þessa adsl þjónustu af ef ástæðan er bara úbs þú ert of langt frá og færð þess vegna ekki fullan styrk.

Sent: Sun 05. Jún 2005 16:54
af einarsig
færð pottþétt fullan hraða ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu... ætti ekki að vera vandamál

Sent: Sun 05. Jún 2005 16:58
af Skotvesen
Ég er eiginlega alveg að verða ráðþrota með þetta. Modemið er í lagi, línan hjá mér er í lagi og þeir hjá símanum segja að þetta sé sent á réttum hraða frá þeim þannig eitthvað hlýtur að vera að teppa þetta í tölvunni. Eru einhver forrit sem eru líklegri heldur en önnur til að búa til svona stíflu?

Sent: Sun 05. Jún 2005 17:17
af CendenZ
Skotvesen skrifaði:Ég er eiginlega alveg að verða ráðþrota með þetta. Modemið er í lagi, línan hjá mér er í lagi og þeir hjá símanum segja að þetta sé sent á réttum hraða frá þeim þannig eitthvað hlýtur að vera að teppa þetta í tölvunni. Eru einhver forrit sem eru líklegri heldur en önnur til að búa til svona stíflu?


JÁ ER MÓDEMIÐ Í LAGI ?

PRUFAÐU NÝTT MÓDEM.

jésús hvað skiluru ekki, mitt módem "átti líka" að virka samkvæmt einhverjum bölvuðum fávita hjá símnet, enda "bara 2" ára gamalt ... en það olli því að ég blue screenaði og kom allskonar system error... og "sjálfmenntaði starfsmaður simnets á sviði netkerfa" sagði að þetta gæti ekki verið módemið...

Nú ? afhverju virkar þá nýja módemið ?

- prufaðu nýtt módem.