Síða 1 af 1

Smá spurning varðandi "shared folders"

Sent: Mið 01. Jún 2005 14:05
af Le Drum
Sælir.

Mál með vexti að ég er oft að hlaða niður dóti í borðtölvuna hérna hjá mér og síðan sækja úr lappanum, en vandamálið er það að ég þarf alltaf að "sjera" möppunni upp á nýtt, soldið hvimleitt, því ég fæ ekki aðgang að því nýjasta sem ég var að setja inn í möppurnar.

Ég nota bara "My Documents" möppuna, var að spá hvort þar gæti hundurinn staðið fastur í kvígunni?

Sent: Mið 01. Jún 2005 14:44
af Stutturdreki
Líklega eitthvað með að nýjar skrár erfa ekki réttindi af yfirmöppunni.

En ef þú ert orðin leiður á þessu share dæmi mæli ég með því að þú setjir upp ftp server á borðvélinni :)

Sent: Mið 01. Jún 2005 20:21
af gumol
Hægriklikkaður á skránna > Properties > Security flipann og athugaðu hvort allt þar er stillt eins og það ætti að vera. (berðu þetta saman við skrár sem þú getur náð í)

Sent: Mið 01. Jún 2005 23:50
af Le Drum
Sælir aftur.

Veit ekki hvort þetta hafi verið aðalatriðið sem var að stríða mér en ég tók af "Offline files".

Var stillt þannig í báðum tölvum.

Núna virkar þetta allt saman ;)