Síða 1 af 1
Restart af of til.....Save dump
Sent: Mán 30. Maí 2005 17:42
af Tiger
Tölvan hjá mér restartar sér við og við uppúr þurrru og í event viewer kemur hún með það að þetta hafi verið Save Dump og meldingin er:
"The computer has rebooted from a bugcheck. The bugcheck was: 0x1000000a (0x00000028, 0x00000002, 0x00000000, 0x8051e9d7). A dump was saved in: C:\WINDOWS\Minidump\Mini053005-02.dmp."
Ég er með xp pro, 1024 MB vinnsluminni, xp3500 örgjörva, MSI K8N móðurborð.
Hafði þið einhverja hugmynd hvað þetta gæti verið?
Sent: Mán 30. Maí 2005 19:06
af Pandemic
Drwatson að hrella þig?
Sent: Mán 30. Maí 2005 19:08
af MezzUp
Restartar hún bara beint? Kemur ekki bláskjár fyrst og síðan fylgir restart því?
Gætirðu sent mér eitthvert minidump'ið? (kann ekkert að lesa þau, en langar að læra
)
Sent: Þri 31. Maí 2005 14:26
af Tiger
Hún restartar bara beint...... bara slökknar á öllu og restart.
Sent: Þri 31. Maí 2005 15:18
af MezzUp
Kemur þetta oft fyrir?
Er enginn skrá nefnd í event viewer?
Sent: Þri 31. Maí 2005 15:31
af Pandemic
Ég myndi halda að þetta væri drwatson(windows bugcheckerinn/debuggerinn)
að focka einhverju getur prófað að skrifa drwatson í cmd og séð hvort það koma einhverjar villur
Sent: Þri 31. Maí 2005 15:38
af biggi1
þa gerðist einusinni að tölvan bara restartaði sér upp úr þurru hjá mér, bara kom ekki neitt, bara eins og það væri eitthvað vélbúnaðar tengt í gangi, en svo setti ég upp nýtt windows, og þá var allt í lagi...
Sent: Þri 31. Maí 2005 16:18
af Tiger
Nei það er engin skrá nefnd í event viewer, og þetta kemur svona c.a. 1 sinni í viku að meðaltali. Og þá ekki sérstaklega þegar ég er að gera eitthvað eitt ákveðið.
Sent: Þri 31. Maí 2005 19:00
af Snorrmund
getur þetta ekki hafa verið minnið?
Sent: Þri 31. Maí 2005 19:16
af MezzUp
Snorrmund skrifaði:getur þetta ekki hafa verið minnið?
Jú, gæti verið hvað sem er, þótt að minnið sé líklegur sökudólgur.
Samt hélt ég nú ekki að Windows næði að save'a memory dump þegar vélbúnaður knýr fram restart?
Tiger: Er þetta gígabæt í einu kubbi eða fleirum? Ef þetta er í nokkrum kubbum geturðu útilokað minnisvillur með því að taka einn kubb úr í einu og athuga hvort að þetta lagist við það. Svo geturðu líkað prófa að keyra 'memtest'
Sent: Þri 31. Maí 2005 20:26
af Tiger
Er búinn að keyra Drwatson og engar villur. Þetta eru 2x512 mb kubbar. Ætla að prófa að taka einn og einn úr og sjá