Síða 1 af 1
Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 09:24
af Viktor
Hæ
Erum með sumarbústað með 100GB 4G áskrift en Apple TV fuðrar þessu upp á nokkrum dögum.
Engin af þessum öppum eru með “low bandwidth mode” og hvergi hægt að lækka gæðin.
Hvernig get ég hægt á netinu svo að Apple TV sæki minni straum? Þarf ekki HD.
Hefur einhver prófað þetta?
Kkv.
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 09:29
af hagur
Kannski er fídus í routernum, þó að það sé ólíklegt ef þetta er ISP provided dót.
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 09:30
af Revenant
Mögulega gæti 4G routerinn þinn stutt limiters/QoS og gætir þannig takmarkað bandvídd sem ákveðin tæki hafa til umráða.
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 10:38
af Viktor
Ég er með Huawei 525 frá símanum.
Sé það ekki í fljótu bragði. Græði ég eitthvað á að setja stock firnware á hann? B525s 65A
Er einhver ódýr 4G router með þessum fítus?
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 11:26
af elvarb7
Ég held að þú þurfir að fara á Netlfix.com, hulu.com etc og stilla þar inná þínum account low bandwidth minnir að ég hafi gert það þannig
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 12:39
af Viktor
elvarb7 skrifaði:Ég held að þú þurfir að fara á Netlfix.com, hulu.com etc og stilla þar inná þínum account low bandwidth minnir að ég hafi gert það þannig
Skoða það. Takk.
Ég held að RÚV / NovaTV sé mest notað :/
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 13:55
af elvarb7
Sallarólegur skrifaði:elvarb7 skrifaði:Ég held að þú þurfir að fara á Netlfix.com, hulu.com etc og stilla þar inná þínum account low bandwidth minnir að ég hafi gert það þannig
Skoða það. Takk.
Ég held að RÚV / NovaTV sé mest notað :/
Ah okay ég nota hvorugt þannig ég get ekkert sagt þar
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 16:23
af pepsico
Er í boði að throttla þetta með því að stilla á 802.11b eða 802.11g á annað hvort tækjunum eða routernum?
Re: Hægja á Apple TV vegna 4G
Sent: Sun 06. Sep 2020 16:32
af Bourne
Spurning hvort að öppin match-i stillingarnar sem þú ert með í video á Apple TV settings?
Prófa að setja það í 720p og Netflix væntanlega fer ekki að senda 1080p eða 4k merki?
Bara hugmynd.