Síða 1 af 1

Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fim 18. Jún 2020 20:04
af kulfsson
Vildi bara deila hérna hlekk í ódýrt Windows 10 Pro leyfi, selt af PCWorld.

Var að setja saman tölvu og langaði að kaupa mér Windows 10 Pro og fann þetta tilboð sem virkar fínt. Ég setti tölvuna upp með Windows 10 beint frá Microsoft.

https://software.pcworld.com/p36877-win ... ofessional

Ekkert í þessu fyrir mig, bara að deila þessu flotta tilboði.

Kristján

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fim 18. Jún 2020 21:47
af jonsig
Skemmtilegra að kaupa þetta á 1$ á ebay

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fim 18. Jún 2020 22:33
af kornelius
Lang skemmtilegast að borga ekki krónu
bara slá inn gamlan win7 lykil og BINGÓ

K.

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fim 18. Jún 2020 22:35
af Hausinn
Af hverju kaupa leyfi fyrir Windows 10 Pro þegar þú getur hrist á þér fótinn og snúið þér í hring og væri það allt og sumt.

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fös 19. Jún 2020 23:23
af kulfsson
Já, ég hef nú hingað til farið aðrar leiðir og þær eru nokkrar færar. Ég hefði einmitt viljað fara úr Windows 7, en ég átti það ekki til, og 1$ eBay leyfi er annaðhvort fyrirtækja MAK lykill eða OEM lykill og hvorugt er eitthvað sem ég hefði verið til í.

En að því slepptu þá er þetta alveg viðráðanlegt verð, en "venjulegt" verð fyrir Windows er algjörlega fáránlegt. Svo að borga rúmlega 6 þúsund frá alvöru endursala í stað 30 þúsund er góður díll í minni bók.

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fös 19. Jún 2020 23:30
af Tóti
https://softwarepla.net
Win 10 pro á 14 dollara

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fös 19. Jún 2020 23:35
af appel
Keypti móbo+ram+cpu á vaktinni og það fylgdi með innbrennt win10 leyfi, óvæntur kaupauki.

Þannig að ég fékk þetta á 0 kr. á vaktinni, geri aðrir betur!

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fös 19. Jún 2020 23:37
af Tóti
Ekki allir svo heppnir :)

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Fös 19. Jún 2020 23:55
af Tóti
Keypti lykil fyrir https://softwarepla.net/shop/buy-office-2019/ og hann virkaði ekkert vesen fyrir 20 dollara.
Nenni ekki að standa í þessu kmspico og öðru slíku veseni.

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Lau 20. Jún 2020 01:07
af Hausinn
Tóti skrifaði:Keypti lykil fyrir https://softwarepla.net/shop/buy-office-2019/ og hann virkaði ekkert vesen fyrir 20 dollara.
Nenni ekki að standa í þessu kmspico og öðru slíku veseni.

kmspico er úrellt rusl. Notaðu HWIDGEN.

Re: Ódýrt Windows 10 Pro leyfi (40 evrur) 1 PC (út júní)

Sent: Lau 20. Jún 2020 14:58
af Hjaltiatla
Mæli með að De-bloata Windows uppsetninguna sem þú varst að setja upp, þetta eru ágætis leiðbeiningar

https://www.christitus.com/debloat-windows-10-2020/

Alveg fáránlegt hvað það er mikið af auka processum sem maður notar ekki og keyra í bakgrunninum (einnig mikið af background apps)