Síða 1 af 1
Tenging annarar tölvu við þessa sem er með ADSL innb. modem
Sent: Lau 14. Maí 2005 21:18
af Psychobsy
er með 2 tölvur, önnur er svolítið gömul en þó með USB tengi, Hún er ekki með LAN tengi.
Er hægt að fá local area connection á gömlu tölvuna úr þessari gegnum USB og USB ?
Ef ekki, Hvað ráðleggið þið mér?
Já og auðvitað, Hvar er hægt að fá það ódýrast
Sent: Sun 15. Maí 2005 01:40
af Le Drum
Þú þyrftir að fá sérstakan usb kapal milli tölvanna.
Nú er bara spurning hvar
Sent: Sun 15. Maí 2005 01:44
af Le Drum
Eða bara þetta:
http://www.tolvuvirkni.net/ip?inc=view& ... T_USBETHER
Það er að segja ef hin tölvan er með netkorti.
Þá bara nota crossover kapal á milli.
:(
Sent: Sun 15. Maí 2005 11:00
af Psychobsy
Tölvan er ekki með neinu modemi.
Hún er með einhverju hrægömlu móðurborði en samt eru 2 USB tengi.
Gætirðu bent mér á einhverja USB snúru sem getur flutt internet milli tölvna?
Sent: Sun 15. Maí 2005 13:22
af Le Drum
Langbest sem væri hægt að gera er þá að setja einfaldlega netkort í báðar, ef gamla tölvan býður upp á það og nota einfaldlega crossover kapal á milli.
Ein leiðin er að nota USB2.0 TO 10/100 eins og ég benti á hér fyrir ofan, gamla móðurborð kannski býður ekki upp á að setja í hana netkort en sú nýrri sennilega. Þá tengirðu úr USB í gömlu í netkort í nýrri gripnum.
USB beint í USB er hægt ef í harðbakkann slær. Fann eitt hérna :
http://www.computer.is/vorur/2881
Mæli samt mest með fyrsta sem ég taldi upp, netkort í báðar. Þó svo að móðurborðið sé gamalt ætti vera hægt að troða einu PCI netkorti í hana.
Sent: Sun 15. Maí 2005 15:44
af Psychobsy
já takk, ég fékk nánari hjálp á irkinu og mér var einfaldlega sagt að annaðhvort láta heilaþvo mig eða fá mér modem í hina.. það r jú hægt .. held ég geri það bara...
Þakkir.
Sent: Sun 15. Maí 2005 15:52
af Le Drum
Þú getur ekki haft báðar tengdar samtímis ef þú ert með innbyggt adsl modem.
Ekki nema þá vera með tvær símalínur og ADSL á báðum.
PS. til þess að koma í veg fyrir misskilning, þá er NETKORT ekki MODEM.
Sent: Sun 15. Maí 2005 15:53
af MezzUp
Ha? Hvað ætlarðu að gera við modem í hinni?
Sent: Sun 15. Maí 2005 18:18
af Psychobsy
núúúú.. þannig ég þarf Router????
Sent: Sun 15. Maí 2005 18:25
af Le Drum
Nei ekkert endilega að fá þér router, þú getur notað "INTERNET CONNECTION SHARING" og verið með báðar á netinu.
Tengt tölvu "A" við netið, með innbyggða ADSL modeminu sem þú ert með, síðan tengt tölvu "B" við "A".
Annað hvort með USB í USB, USB í NETKORT, eða sem er best NETKORT í NETKORT.
Þarft ekkert endilega fjárfesta í router, nema þú endilega viljir.
En ef þú ætlar að vera með ADSL módem í báðum, þá gengur það ekki upp, nema vera með aðra tengda í einu.
Sent: Sun 15. Maí 2005 18:27
af Birkir
Le Drum skrifaði:Nei ekkert endilega að fá þér router, þú getur notað "INTERNET CONNECTION SHARING" og verið með báðar á netinu.
Tengt tölvu "A" við netið, með innbyggða ADSL modeminu sem þú ert með, síðan tengt tölvu "B" við "A".
Annað hvort með USB í USB, USB í NETKORT, eða sem er best NETKORT í NETKORT.
Þarft ekkert endilega fjárfesta í router, nema þú endilega viljir.
Þetta skapar samt smá „vesen“, ef þú ferð þessa leið þá þarftu alltaf að vera með kveikt á tölvu A til að koma tölvu B á netið.
Sent: Sun 15. Maí 2005 18:33
af Le Drum
Satt er það.
Sent: Sun 15. Maí 2005 22:36
af Psychobsy
Þá færi ég bara original Modemið í Serverinn sem ég ætla að hafa.. og hef bara netkort í tölvuleikja vélinni minni
Ætti það ekki að ganga?
Serverinn yrði þá auðvitað alltaf uppi...
Sent: Sun 15. Maí 2005 22:53
af Andri Fannar
Jú. Það myndi ganga upp.
Sent: Mán 16. Maí 2005 17:10
af MezzUp
Psychobsy skrifaði:Þá færi ég bara original Modemið í Serverinn sem ég ætla að hafa.. og hef bara netkort í tölvuleikja vélinni minni
Jamm, þarft náttúrulega líka að hafa netkort í servernum til þess að tengjast í netkortið á tölvuleikjavélinni.
Sent: Mán 16. Maí 2005 17:57
af Psychobsy
Já ætla að kaupa hjá Att.is, fæ allann pakkann og 2 metra snúru á 1500
Get lítt hvartað undan því
:)
Sent: Mán 23. Maí 2005 19:30
af Psychobsy
Kominn með þetta. Keypti Crossover snúru og Netkort.
Click og click og ég var kominn á netið
Sent: Mán 23. Maí 2005 19:44
af MezzUp
Glæsilegt, til hamingju