Síða 1 af 1

ADSL tenging. Hvar?

Sent: Þri 10. Maí 2005 15:35
af helgafel
Nú bjóða Síminn, OgVodafone og Hive ásamt fleirum upp á háhraða tengingu með fríu utanlands niðurhali. Hvar ætli sé best að vera?
M. kv.

Sent: Þri 10. Maí 2005 15:37
af gumol
Hvað býrðu?
Hvar ertu með heimasímann?
Hvart ertu með GSM símann?
Hvað þarftu hraða tengingu?
Hvað ertu tilbúinn að borga?

Sent: Þri 10. Maí 2005 15:41
af helgafel
Ég bý í Mosfellsbæ og er með heima- og GSM hjá landssímanum. Ég er alveg til í að borga 6-8 á mánuði.

Sent: Þri 10. Maí 2005 15:47
af Icarus
helgafel skrifaði:Ég bý í Mosfellsbæ og er með heima- og GSM hjá landssímanum. Ég er alveg til í að borga 6-8 á mánuði.


Þá myndi ég bara taka 6MB tilboðið sem Síminn er með.

Nema þá ef þú spilar ekki mikið af tölvuleikjum þá gæti Hive verið málið. Bara setur það sem skilyrði þegar þú kaupir af þeim að þeir opna routerinn.

Sent: Þri 10. Maí 2005 15:58
af helgafel
Já Landssíminn er auðvitað traustur, svo verður maður að vera með tengingu þar næsta vetur upp á enska boltann.

Sent: Þri 10. Maí 2005 17:52
af daremo
Eftir því sem ég best veit býður Hive bara upp á tengingar á höfuðborgarsvæðinu.

Sent: Þri 10. Maí 2005 18:09
af JReykdal
daremo skrifaði:Eftir því sem ég best veit býður Hive bara upp á tengingar á höfuðborgarsvæðinu.


Skoðaðu landakort sauður :)

Sent: Þri 10. Maí 2005 19:41
af gumol
Ég held að þetta sé það sem þú ættir að spá í.


Ef ping á erlendum serverum skiptir ekki öllu máli:

Hive 12 mbps tenging og ótakmarkað erlent niðurhal.
http://www.hive.is/index.aspx?GroupId=143


Ef þú vilt hafa gott ping erlendis:

Simnet 6 mbps tenging og ótakmarkað erlent niðurhal.
http://www.siminn.is/control/index?pid=37839

Gætir líkað skoðað og1 ef þú ert tilbúinn til að fara með allt yfir til OgVodafone:
http://www.ogvodafone.is/index.aspx?GroupId=3867

Sent: Þri 10. Maí 2005 20:05
af daremo
JReykdal skrifaði:
daremo skrifaði:Eftir því sem ég best veit býður Hive bara upp á tengingar á höfuðborgarsvæðinu.


Skoðaðu landakort sauður :)

:D

Einhvern veginn fann ég það á mér þegar ég skrifaði þetta að einhver brjálaður mosfellingur myndi gjörsamlega snappa.
Þið eruð svo viðkvæmir, greyin :)

Sent: Mið 11. Maí 2005 09:11
af Johnson 32
Mosfellssveitin góða ;)

Sent: Mið 11. Maí 2005 16:02
af natti
JReykdal skrifaði:
daremo skrifaði:Eftir því sem ég best veit býður Hive bara upp á tengingar á höfuðborgarsvæðinu.


Skoðaðu landakort sauður :)

Mosfellsbær(lesist: -sveit), Keflavík, Breiðholt og Siglufjörður...
Allt sama sullið og langt frá allri siðmenningu.