Síða 1 af 1
Bömmer með linksys router og wireless 11g PCI kort frá MSI
Sent: Lau 07. Maí 2005 15:25
af mrpacman
Já svo er mál með vexti að ég hérna var að flytja og var búinn að setja upp tölvuna og routerinn og var bara í góðu chilli með allt. Og þá ákveð ég að formatta. Ok ég fæ einhvern Windows Home disk og formatta. Og ég er með þetta wireless kort í tölvunni og smelli drivernum í og set allt upp og svo bara ég connected og allt í góðu. Opna Internet Explorer og PLEH! "The page cannot be displayed". Og ef ég reyni að fara á einhverja aðra síðu þá kemur popup gluggi með villunni "Internet Explorer could not open the search page" ég er búinn að fikta í öllum internet stillingum í tölvunni og ekkert virkar nema statusinn fór úr connected í "Limited or no connectivity"
og ekkert virkar enn.
btw: Þá er ég að skrifa þetta úr laptopinum hans pabba sem svínvirkar.
Vona að þið skiljið etta
Sent: Lau 07. Maí 2005 17:25
af Daz
Ertu tengdur réttu neti? Ertu með réttan WEP lykil (ef einhvern) (ef ekki hvar áttu heima?
). Ertu með tölvuna stillta á að sækja sér IP tölu sjálfkrafa?
Sent: Lau 07. Maí 2005 18:24
af mrpacman
Daz skrifaði:Ertu tengdur réttu neti? Ertu með réttan WEP lykil (ef einhvern) (ef ekki hvar áttu heima?
). Ertu með tölvuna stillta á að sækja sér IP tölu sjálfkrafa?
Ég er tengdu réttu neti með rétt key og er með þetta stillt að fá automatic IP tölu og DNS server og allt, en þegar ég reyni að repair-a connectionið þá stoppar það alltaf á "Renewing your IP adress" þannig að það er eins og það virki ekki.
Sent: Lau 07. Maí 2005 18:36
af Daz
Ef þú veist úr hvaða range IP tölurnar koma þá geturðu prófað að gefa tölvunni fasta IP tölu úr því range-i (sem conflictar ekki við einhverja IP tölu í notkun).
Þegar ég lendi í þessu (næ sambandi við netið en fæ svo limited or no connectivity) þá er það alltaf IP tölu vandi, venjulega er ég með fasta IP tölu úr vitlausu rangei.
Sent: Lau 07. Maí 2005 19:30
af MezzUp
Nærðu að pinga eitthvað?
Sent: Sun 08. Maí 2005 00:36
af mrpacman
Skoh ég reyndi að gefa tölvunni IP tölu og þá er eins og þetta virki en þegar ég reyni að fara í internet explorer, þá kemur "Internet Explorer could not open search page" og ég næ ekki að pinga neitt (ég reyndi að pinga routerinn, tölvu í sem virkar í LAN og google.com en ekkert virkaði
:()
Sent: Sun 08. Maí 2005 12:17
af Daz
Ef þú nærð ekki að pinga routerinn þá ertu ekki rétt tengdur honum. Athugaðu aftur ef þú setur tölvuna á "automatically get IP address" hvaða IP tölu hún fær og hvort hún er úr réttu range-i.
Sent: Sun 08. Maí 2005 12:37
af mrpacman
Ég fæ nebbla bandvitlausa IP tölu þá, (169.254.134.242) og næ ekki ennþá að pinga routerinn ...
:(
Sent: Sun 08. Maí 2005 13:24
af gumol
Ertu örugglega að tengjast réttum router?
Sent: Sun 08. Maí 2005 13:45
af mrpacman
Hehe nokkuð viss
Sent: Sun 08. Maí 2005 14:16
af Stutturdreki
Er hin tölvan líka á þráðlausa netinu og virkar allt fínt með hana?
Og ertu með WAG54G? Það er vel þekkt vandamál að dhcp á þráðlausanetinu virkar ekkert alltof vel á þeirri týpu.. er með svoleiðis sjálfur og er ekkert að springa úr gleði.
Sent: Sun 08. Maí 2005 15:34
af mrpacman
Já skoh tölvan sem ég er í núna virkar fínt (compaq lappi með innbyggðu wirless korti), tengist við nteið hubbinn og bara svínvirkar.
Og ég er með Linksys BEFDSR41W router, hann er ekki með innbyggðu netkorti en ég keypti fyrir löngu í hann netkort.
Hægt er að skoða hann
hér.
Sent: Sun 08. Maí 2005 17:20
af w.rooney
er nokkup mac filter sem að leyfir bara pabba þins vél inná routerinn ?
Sent: Sun 08. Maí 2005 17:30
af mrpacman
Ég var að tjékka á MAC filterinn en ég skil eiginlega ekkert hvernig hann virkar, en allavega held ég að það sé ekki verið að filtera neina MAC adressu út. Það er bara allt stillt á núll í essu...
Sent: Sun 08. Maí 2005 18:01
af mrpacman
Shit hvað mér líður kjánalega, ég held að það sé password á routernum
en það getur varla verið því að ég haf alldrei þurft að skrifa það áður inn, og ef að það væri password ætti þá ekki að koma villa að það væri vitlaust password?
Líka veit einhver hvernig það er hægt að sjá hvað passworið er því það eru bara stjörnur í router stillingunum.
En ef það er bara passwordið þá vill ég biðjast velvirðingar á að hafa eytt tíma ykkar í rugl
Sent: Sun 08. Maí 2005 18:53
af Icarus
mrpacman skrifaði:Shit hvað mér líður kjánalega, ég held að það sé password á routernum
en það getur varla verið því að ég haf alldrei þurft að skrifa það áður inn, og ef að það væri password ætti þá ekki að koma villa að það væri vitlaust password?
Líka veit einhver hvernig það er hægt að sjá hvað passworið er því það eru bara stjörnur í router stillingunum.
En ef það er bara passwordið þá vill ég biðjast velvirðingar á að hafa eytt tíma ykkar í rugl
þetta password gæti náttúrulega verið ADSL passwordið til að hringja inn í þjónustuaðilann...
Sent: Sun 08. Maí 2005 19:14
af mrpacman
Herðu nú mig elsku vaktaradúllurnar mínar, einhvern veginn náði ég að laga þetta, hef ekki hugmynd um hvernig en það tengist líklega því að ég uninstallaði hugbúnaðinum sem fylgdi með þráðlausa kortinu og notaði windows wireless draslið til að gera þetta og bada bing bada búmm allt virkar.
Ég vill bara þakka öllum sem hjálpuðu mér að komast loksins aftur á netið (þetta er búið að vera hell fyrir mig:)) En nú er ég loksins kominn aftur heim á 127.0.0.1
;)
Sent: Sun 08. Maí 2005 19:18
af Icarus
mrpacman skrifaði:Herðu nú mig elsku vaktaradúllurnar mínar, einhvern veginn náði ég að laga þetta, hef ekki hugmynd um hvernig en það tengist líklega því að ég uninstallaði hugbúnaðinum sem fylgdi með þráðlausa kortinu og notaði windows wireless draslið til að gera þetta og bada bing bada búmm allt virkar.
Ég vill bara þakka öllum sem hjálpuðu mér að komast loksins aftur á netið (þetta er búið að vera hell fyrir mig:)) En nú er ég loksins kominn aftur heim á 127.0.0.1
;)
hehe, til hamingju
Sent: Sun 08. Maí 2005 19:19
af Daz
Ehh... Þitt heim er eiginlega 192.168.1.1
En til hamingju með að vera rétt tengdur, stundum er bara betra að leyfa windows að sjá um málin.