Síða 1 af 1

Style XP að fukka öllu up ? :/

Sent: Fös 30. Maí 2003 17:42
af Voffinn
jæja... ég var með eitthvað trial útgáfu af Style XP, síðan rann hún út meðan ég var í burtu, og núna er ég búin að láta á gamla themeið, og henda style xp, og núna hikstar hún eins og rolluriðill.

Sjá með fylgjandi mynd, er þetta vírus ? hefur einhver séð eitthvað líkt þessu ? ég bara nenni ekki að formata aftur :cry:

Sent: Fös 30. Maí 2003 18:28
af kemiztry
Virkar fínt hjá mér :?

Sent: Fös 30. Maí 2003 19:13
af Voffinn
viðbót : ég er að scanna með ad-aware, og skyndilega bara hreyfðist ekkert. þá tékkaði ég Task manager, og viti menn. þetta virðist koma í bylgjum, og alltaf sami mb fjöldi, 841mb.... víred :urr:

Sent: Fös 30. Maí 2003 19:29
af MezzUp
prufaðu mem-test, gæti verið að minnið sé bilað?

Sent: Fös 30. Maí 2003 19:30
af Voffinn
gætirðu nokkuð pastað link á það ? :D

Sent: Fös 30. Maí 2003 19:36
af GuðjónR

Sent: Fös 30. Maí 2003 19:40
af Voffinn
jesús kristur...

þetta er ekkert að hætta. ég bara skil ekkert í þessu. Hefur enginn hugmynd um hvað þetta gæti verið ?

GuðjónR : hvað á ég að láta prófa mörg mb ? ég er með 256 sdram.

Sent: Fös 30. Maí 2003 22:34
af GuðjónR
Skrifaðu 16 eða 32...þá gengur þetta hraðar fyrir sig...annars kemur það strax fram ef minnið er ónýtt...

Sent: Fös 30. Maí 2003 22:39
af Voffinn
ekkert að minninu, lét stylexp inn aftur, fulla útgáfu í þetta skipti :twisted: adaware finnur ekket nema einhverjar bölvaðar cookies, og ég er næstum 90% að þetta sé ekki vírus, því það er ekkert óeðlilegt eða nýtt sem er í startupinu í msconfig.

nú er ég orðinn meira en lítið pirraður og spyr þá. AF HVERJU 'I HEITASTA BÖLVAÐA ANDSKOTANS ER ÞETTA AÐ GERAST!?!?!?!

með fyrirfram þökk um hjálparlegt svar.
-Voffinn

Sent: Fös 30. Maí 2003 23:22
af Voffinn
Svo ég reyni að lýsa vandamálinu aðeins meira, þá er þetta þannig að öðru hverju (ég er ekki búin að finna hvað veldur því) þá fyllist page fileinn og verður í kringum 844mb stór, þess á milli er hann bara yfirleitt ~120mb.... ég set mynd með til að lýsa þessu betur. Þessi mynd er tekinn eftir að láta tölvuna idle með ekkert nema það nauðsynlegasta í gangi í ~1 tíma.

Sent: Lau 31. Maí 2003 00:35
af GuðjónR
Tékkaðu á "Processes" í "Task Manager" og þá sérðu hvað það er sem er að éta upp minnið þitt ;)

Sent: Lau 31. Maí 2003 01:12
af Voffinn
nei sko, nefnilega, ég var búin að tékka á því, það er ekkert. ??!?!? :huh:

það er eins og stundum, þá bara étast upp 900mb af innraminninu og pagefileinu í svona ~15sek síðan hættir það, þetta er alltaf jafnlengi, en kemur frekar óreglulega, ef ég skil tölvuna eftir í 15mín, þá kemur þessi "vitleysa" á fullu.

Sent: Lau 31. Maí 2003 02:07
af Zaphod
ertu búinn að vírustékka ? ég finn allavega mikla víruslykt af þessu öllu saman :(

Lenti í svipuðu dæmi fyrir löngu síðan með tölvu sem ég var að gera við ...


trendmicro.com online scan er fínt fyrir þá sem ekki hafa vírusvörn eða vilja ekki einsog ég :wink:

Sent: Lau 31. Maí 2003 02:33
af gumol
Þú kemur bara með diskinn í dag og við skönnum hann.

Sent: Lau 31. Maí 2003 12:19
af GuðjónR
gumol skrifaði:Þú kemur bara með diskinn í dag og við skönnum hann.


Hverjir erum við?

Sent: Lau 31. Maí 2003 12:35
af MezzUp
GujónR: gumol og Voffin :)

Sent: Lau 31. Maí 2003 17:03
af Voffinn
ég hundskaðist til að láta nv2003 upp

hann er ekkert að gera sig. lét hann skanna allt heila kvabbið. enginn vírus, :cry: ég hata að formata, en haldiði ekki bara að þetta sé winxp-ið ?

Sent: Lau 31. Maí 2003 19:26
af Voffinn
nauhh, ég held að ég sé búin að finna útúr þessu,

sko, í task manager þegar þetta oversized memory load fer af stað, þá er forritið cidaemon.exe eitthvað að vinna... hmmm. ég veit að þetta tengist IIS en ég var búin að henda IIS útaf.

veit einhver nákvæmlega hvað cidaemon gerir ? ef svo, gæti verið að hann sé þá í service ? þannig að ég geti komið í veg fyrir að cidaemon ræsist. ?

Sent: Lau 31. Maí 2003 21:12
af Voffinn
ahhh, búin að laga, þetta forrit er "indexing service"

ég slökkti bara á indexing service á öllum drifum, og þetta er komið í lag ;> ég býst við að þetta hafi verið einhver file sem hún hefur verið að reyna að indexa, nema það hafi komið einhver villa og hún reynt að gera þetta aftur og aftur.

Jæja, þá get ég tekið Norton aftur útaf. :)

Sent: Sun 01. Jún 2003 03:08
af Zaphod
indexing service er eitthvað sem enginn hugsandi maður ætti að hafa í gangi.......

bara hægir á

Sent: Fös 27. Jún 2003 21:46
af lakerol
ég lenti í svipuðu nema ekki var verið að éta jafn mikið minni og hjá þér þetta var vírus sem gerði það að verkum að explore.exe var að éta minnið á fullu og um leið og ég endaði process-ið á honum þá var allt í lagi en auðvitað er ekki mikið hægt að gera með explorer-inn niðri.ég vírusskannaði og eyddi og allt í fína.ég persónulega myndi bara formatta öruggast ef þú ert í einhverjum voða vændraðum að leysa þetta vandamál

Sent: Fös 27. Jún 2003 23:55
af Voffinn
lestu póstana yfir aftur, ég var búin að leysa það :D

Sent: Lau 28. Jún 2003 02:31
af lakerol
ég gleymdi að kíkja á hina síðuna ég las nefnileg bara fyrstu symple mistakes :wink: