Síða 1 af 1

e5d141.tmp

Sent: Fös 22. Apr 2005 16:45
af Arkidas
Það er fullt af þessu í proccess barnum mínum? Hvað er þetta? Á ég að henda þessu út einhvern veginn? Og hvernig þá? Og eitt enn, hvernig stilli ég backround litinn í Dreamweaver, valdi að ég er Designer í byrjun og er að gera síðu en backround litirnir eru stilltir á blánn og grænan, mjög ljótt.

Sent: Fös 22. Apr 2005 17:09
af Mysingur
http://www.google.com/search?hl=en&q=e5 ... gle+Search

og seinni spurningin

Kóði: Velja allt

<body bgcolor="litu hérna">

Sent: Fös 22. Apr 2005 17:43
af Snorrmund
http://spywareblog.com skrifaði:After a bit of research, I determined the mysterious ~e5d141.tmp to be associated with the Macrovision SafeCast licensing manager, and employed by some popular programs such as Macromedia Dreamweaver MX


Mér sýnast báðar spurningarnar tengjast :) semsag teitthvað sem tengist Dreamweaver...
http://spywareblog.com/index.php/2004/1 ... e5d141_tmp

Sent: Lau 23. Apr 2005 21:25
af Stutturdreki
Mysingur skrifaði:http://www.google.com/search?hl=en&q=e5d141.tmp&btnG=Google+Search

og seinni spurningin

Kóði: Velja allt

<body bgcolor="litu hérna">
Nei.. skamm skamm. Nú á að gera allt svona í CSS (Cascading Style Sheets). Aðskilja útlit og framsettningu.

Sent: Lau 23. Apr 2005 21:34
af Snorrmund
Stutturdreki skrifaði:
Mysingur skrifaði:http://www.google.com/search?hl=en&q=e5d141.tmp&btnG=Google+Search

og seinni spurningin

Kóði: Velja allt

<body bgcolor="litu hérna">
Nei.. skamm skamm. Nú á að gera allt svona í CSS (Cascading Style Sheets). Aðskilja útlit og framsettningu.
Hvað ertu að tala um?

Sent: Lau 23. Apr 2005 23:21
af CendenZ
að nota einungis CSS en ekki fylla htmlið af FONT og COLOR ofl.

Sent: Sun 24. Apr 2005 01:07
af Stutturdreki
Snorrmund skrifaði:
Stutturdreki skrifaði:
Mysingur skrifaði:http://www.google.com/search?hl=en&q=e5d141.tmp&btnG=Google+Search

og seinni spurningin

Kóði: Velja allt

<body bgcolor="litu hérna">
Nei.. skamm skamm. Nú á að gera allt svona í CSS (Cascading Style Sheets). Aðskilja útlit og framsettningu.
Hvað ertu að tala um?
Sko, HTML er markup mál sem þýðir að það var hannað til að skilgreina td. hvað er haus, fyrirsögn meginmál, mynd, tengill.. osfv. HTML á ekki að skilgreina hvernig hausinn, fyrirsögnin og/eða meginmálið lítur út eða er staðsett.

CSS var búið til þegar ljóst var að þróun á HTML var á leiðinni langt út fyrir það sem HTML var skilgreint fyrir. Einnig er miklu þægilegra að nota CSS, td. þarftu bara að breyta á einum stað til að breyta einhverju í útliti á heilum vef, en ekki breyta kóðanum fyrir hverja síðu fyrir sig í vefnum.

Sent: Sun 24. Apr 2005 08:48
af Snorrmund
ok. En er css sér dót svosem index.css eða er þetta bara html sem er breytt.. (sry ég veit ekkert um þetta..)

Sent: Sun 24. Apr 2005 11:16
af Stutturdreki
Þú getur haft Styles í sér CSS skrá (og jafn vel fleirri en einni, þar kemur 'cascading' inn í), þú getur skilgreint Styles í <head> taginu í HTML skjalinu sjálfu og þú getur skilgreint Styles með 'style' attributinu í HTML á hverju tagi fyrir sig.

Persónulega kíki ég oftast á www.w3schools.com ef ég þarf að flétta einhverju upp, annars eru örugglega til nokkur hundruð þúsund síður sem með CSS tutorials ef þú villt kíkja á þetta..

Sent: Sun 24. Apr 2005 16:39
af Arkidas
Mig langaði nú að hafa sérstakan gráan lit, ekki þennan venjulega gray, get ég ekki ráðið því? Svo tvennt annað, þarf ég að kóða eitthvað mikið í designer mode? Eitt annað, hvernig get ég haft það þannig ég geri annað page, skrifa eitthvað á það og læt myndir og þá kemur það bara í sérstöku svæði á index síðunni sem ég valdi. Takk fyrir.

Sent: Sun 24. Apr 2005 16:42
af Andri Fannar
Notar frames til að hafa þetta í ákveðnu svæði, iFrame er líka öflugt "tól".
http://www.w3schools.com/html/html_colors.asp

Sent: Mán 25. Apr 2005 21:03
af Arkidas
Get ég gert frame þó að þetta sé ekki frame síða? Sorry, kann ekki mikið á þetta :P En annars er ég að spá hvernig ég get breytt litnum á head og footer, það er fáránlega ljótt á litinn, svona skærgrænt. Svo er blár litur í kringum myndirnar á síðunni. Myndi vel þiggja hjálp þarf að skila þessu verkefni í byrjun maí.

Sent: Þri 26. Apr 2005 07:59
af gnarr
header og footer?? ertu að gera þetta í word eða??

tekur bláa litinn af með border="0"

Sent: Þri 26. Apr 2005 19:05
af Arkidas
Nei, er að gera þetta í Dreamweaver. Annars er border sett á 0.