Síða 1 af 1
Sjónvarp um net!
Sent: Mið 06. Apr 2005 15:31
af Snorrmund
Jæja núna er komið svona "Netsjónvarp" hingað.. svipað og digital island.. þ.e. fleiri rásir og digital signal.. en viö erum eitthvað að spá.. hægir þetta á netinu? því að við ætlum ekkert að fá þetta ef að netið verður laggandi meðan maður horfir á imbann..
Sent: Mið 06. Apr 2005 17:18
af CraZy
áttu ekki heima á neskaupstað eðaeinhvað þannig ? eða var það bara sveinn?(hvað varð um hann
)
Sent: Mið 06. Apr 2005 17:22
af axyne
þetta er ADSL2, internetið er ekki á sama "channel" og sjónvarpið.
allavega eftir því sem ég veit best.
Sent: Mið 06. Apr 2005 17:22
af Snorrmund
Jújú ég og sveinn erum frá neskaupstað.. sveinn er svoldið upptekin í wow
Sent: Mið 06. Apr 2005 17:48
af CraZy
hehehe okey
Sent: Fim 07. Apr 2005 12:03
af hrbauni
Ertu að tala um sjónvarp yfir adsl ? Ef að símalínan er í góðu standi hjá þér þá á þetta ekki að vera neitt vesen. Ég er með adsl2000 og sjónvarpið og það er ekkert vesen.
Sent: Fim 14. Apr 2005 18:30
af Gestir
TVoADSL heitir þessi þjónusta og verður hún kominn hingað á höfuðborgarsvæðið .... fljótlega
get ekki sagt neitt meira um það að svo stöddu.
Og þetta tekur ekkert bandvídd frá tengingunni þinni.. Þetta verður aðskilið, sjónvarpið sér og netið sér .
Sent: Fim 14. Apr 2005 20:46
af JReykdal
Ef símalínan er í góðu standi þá á þetta allt að vera í góðu.
Venjulegt ADSL fer mest í 8Mb/s bandvídd á góðri línu.
Ef þú ert með t.d. ADSL 3000 þá eru eftir um 5Mb/s fyrir sjónvarpið sem dugir mjög vel.
Ef hins vegar að línan er eitthvað vafasöm þá er einhver möguleiki á að það sé ekki nægileg bandvídd fyrir bæði sjónvarp og internet þar sem sjónvarpið hefur forgang yfir internetumferð. Stutt símtal í 8007000 ætti að geta svarað þeirri spurningu.
Sent: Fim 14. Apr 2005 23:02
af Snorrmund
Ertu að tala um að mæla línuna? ef svo er þá hefur það verið gert fyrir um ári því að netið var eitthvað tregt(router vandamál.) Og hún var í tiptop standi..