Síða 1 af 1
Smá rugl með þráðlaust net
Sent: Lau 19. Mar 2005 20:58
af hubcaps
Er með tvær tölvur tengdar á þráðlausu neti.
En svo virðist vera að netið dettur út þannig að ég þarf að disconnect-a og connecta aftur ef heimasíminn hringir.
Er með Speedtouch 545 router
Kannast einhver við þetta ?
Sent: Lau 19. Mar 2005 22:11
af Zkari
Með smásíu?
Sent: Lau 19. Mar 2005 22:34
af DoRi-
þarft einfaldlega smásíu, vinur minn lennti í þessu, kostar ekki mikið
Sent: Sun 20. Mar 2005 01:29
af Snorrmund
Og smásían á að fylgja frítt.. Hlýtur að vera einhver svona liggjandi milli kassana
En þetta á að fara milli síma og símtenglis ekki milli routers og símtengils eins og margir halda
Sent: Sun 20. Mar 2005 01:55
af hubcaps
Hehe, jámm. Ég er með smásíu og hún er rétt tengd.
Ég er nefnilega ekkert að skilja í þessu.
Sent: Sun 20. Mar 2005 02:43
af natti
Það þarf að vera ein smásía per símtæki.
Ef þú ert með 2 símtæki, þá er ekki nóg að vera með smásíu bara fyrir framan annað þeirra. Smásína þarf að vera á móti báðum símtækjunum.
Sent: Sun 20. Mar 2005 12:55
af Pandemic
Og ef þú ert með marga síma eins og ég þá er hentugra að fá stórasíu sem er svona box sem aðalsímalínan fer í gegnum.
Sent: Sun 20. Mar 2005 13:14
af einarsig
einnig kemur fyrir að sumar síur virka ekki eins og þær eiga að gera og þá er mál að prufa aðrar.
Sent: Sun 20. Mar 2005 14:29
af hubcaps
Ég er bara með eitt símtæki.... Þannig ég ætla að reyna að redda mér annarri smásíu í dag og sjá hvað skeður
Sent: Sun 20. Mar 2005 21:10
af hubcaps
einarsig skrifaði:einnig kemur fyrir að sumar síur virka ekki eins og þær eiga að gera og þá er mál að prufa aðrar.
Og það var einmitt það sem var að..
Sent: Sun 20. Mar 2005 23:21
af Snorrmund
En hvað gera smásíur?
Sent: Sun 20. Mar 2005 23:31
af Pandemic
Filtera held ég DSL signalið frá símanum.