Síða 1 af 1

EdgeRouter 4

Sent: Þri 04. Sep 2018 12:28
af kusi
Er einhver hér sem hefur reynslu af eða skoðun á ER-4 sem heimilisrouter fyrir 1Gb ljósleiðara?

meira en þrefalt dýrari en ER-X (m.v. eurodk.com)...
EdgeRouter X : USD 47
EdgeRouter 4 : USD 167
https://www.eurodk.com/en/products/ubnt-routers

en 2x - 4x hraðari (m.v. throughput/pps tölur af ubnt.com)...
EdgeRouter X : 1 Gbps / 80.000 pps, 0,957 Gbps / 1.400.000 pps
EdgeRouter 4 : 4 Gbps / 320.000 pps, 1,8 Gbps / 3.400.000 pps
https://www.ubnt.com/edgemax/comparison/

Re: EdgeRouter 4

Sent: Þri 04. Sep 2018 12:46
af kjartanbj
Alger óþarfi amsk ef þú ætlar ekki að nota QOS eða þessháttar sem ætti ekki að vera þörf á Gíg tengingu

Re: EdgeRouter 4

Sent: Mið 05. Sep 2018 16:43
af kusi
Já ok, en veistu hvort það eru einhverjir ókostir við að nota ER-4 frekar en ER-X, fyrir utan hærra verðið auðvitað og meiri rafmagnsnotkun?

Re: EdgeRouter 4

Sent: Mið 05. Sep 2018 21:37
af hagur
kusi skrifaði:Já ok, en veistu hvort það eru einhverjir ókostir við að nota ER-4 frekar en ER-X, fyrir utan hærra verðið auðvitað og meiri rafmagnsnotkun?


Held að það séu einmitt einu ókostirnir. Hann er betri kostur að öllu öðru leyti hugsa ég. Ég held samt að ER-4 sé bara algjört overkill fyrir flest "venjuleg" heimili. Er sjálfur með ER-X og er með ansi mörg nettengd tæki hérna heima og þessi router bara gengur og gengur. Hef aldrei þurft að endurræsa hann eða neitt svoleiðis.

Re: EdgeRouter 4

Sent: Mið 05. Sep 2018 21:44
af arons4
Muna bara á ER-X að stilla hardware offloading á það sem hægt er. Nær ekki að NATta 500Mb án þess.

Re: EdgeRouter 4

Sent: Fim 06. Sep 2018 00:06
af Gassi
arons4 skrifaði:Muna bara á ER-X að stilla hardware offloading á það sem hægt er. Nær ekki að NATta 500Mb án þess.


Er að fara að kaupa mer edge x og ap ac lite, hvað þarf eg að hafa i huga? Nvidia shield og desktop verða beintengd í hann og tengi eg svo bara edge i ljosið og ap
í hitt portið?