mainman skrifaði:Gaman að segja frá því að fyrir einhverju síðan vildi míla fá að leggja inn seinni ljósleiðarann í húsið en ekkert hafði síðan gerst í því svo ég hringdi í þá í gær og þeir tjáðu mér að það þyrfti að koma beiðni frá netveitunni um að tengja inn hjá mér.
Ekkert óeðlilegt við það svossem svo ég hringdi aftur í 365 og reyndi enn á ný að ná samband við tæknilega aðstoð og fékk rödd sem sagði að ég væri númer fimm í röðinni og gæti ýtt á stjörnu og þá héldi ég röðinni og síðan yrði hringt í mig.
Ég hafði reynt það fyrir cirka viku en það var aldrei hringt í mig þá svo ég vonaði að þetta væri eitthvað betra núna.
Það hringdi samt enginn frá þeim í enn eitt skiptið.
Ég hringdi þá aftur og prófaði söludeild og þá var strax svarað.
Það er greinilega þjónustumunur á því hvort þeir ætla að þjónusta þig eða selja þér eitthvað þar sem þetta fyrrnefnda skilar ekki neinu í tekjur svo þá fær það að vera aftar í forgangsröðinni.
Ræddi þar við einhvern og sagði honum að ég vildi nota þessa netþjónustu sem ég væri alltaf að borga fyrir og sagði honum að þeir þyrftu að biðja mílu um að leggja inn hjá mér ljósið og að það mætti alls ekki hreyfa við núverandi tengingu.
Hann var alveg sannfærður um að það væri ómögulegt að vera með tvær tengingar og sú staðreynd að ég væri með aðra tengingu fyrir virtist flækja tæknistigið hjá honum gríðarlega svo ég sagði honum að við skyldum bara hætta að hugsa um að ég væri með tengingu og við ættum bara að byrja á byrjuninni og ég mundi bara segja honum að ég vildi fá nettengingu og ljósleiðara hjá mílu og við mundum ekki hugsa um neitt annað.
Hann tók þá niður símann minn og sagði mér að hann þyrfti að fá tæknideildina til að hringja í mig.
Ég sagði honum að það væri ekki að virka því þeir hringdu aldrei.
Hann sannfærði mig um að þeir mundu hringja mjög fljótlega í mig svo ég kvaddi hann.
Tæknideildin hringdi samt ekkert í mig.
Kanski þyðir fljótlega bara eitthvað eins og "innan þriggja vikna" hjá 365.
Hvernig farið þið sem eruð hjá 365 að því að fá þjónustu þarna?
Mér er lífsins ómögulegt að ná í neinn nema ég ætli að kaupa eitthvað meira þarna.
365 = Vodafone, síðast þegar ég vissi eru enn aðskilin þjónustuver fyrir 365 og Vodafone. Gæti alveg verið að það sé að rugla á milli hjá Vodafone og 365 þar sem ég á von á því að söludeildinar eru komnar saman.
Allavega þú getur farið á mila.is og athugað hvort þú getir fengið ljósleiðara hjá Mílu. Ef það kemur ekki upp, geturðu ekki fengið ljósleiðara hjá Mílu. Þegar Míla hóf handa við ljósleiðaralagningu þá voru menn mjög bjartsýnir og sögðu mörgum að ljósið yrði á leiðinni innan skamms og svo bólar ekkert á því.
Míla hefur verið meira núna að taka ný kerfi, fjölbýli og staði þar sem að GR hefur ekki heldur lagt ljós þar sem þeir leggja saman til að spara í kostnaði. Míla fer ekki og grefur fyrir eitt hús ( þeir gera það ekki og meiga ekki grafa nema alveg fáranlega löngum fyrirvara ).
Þú ættir samt að geta fengið Ljósnet á 365 tenginguna ef Ljósleiðarinn frá Mílu er ekki í boði.