Síða 1 af 2

Sent: Sun 06. Mar 2005 00:25
af ICM
Nota nýja netscape, hann er snilld, óþekktar síður keyrir hann með gecko en allar "traustar" síður keyrir hann með IE vélinni.

Sent: Sun 06. Mar 2005 12:25
af Daz
IceCaveman skrifaði:Nota nýja netscape, hann er snilld, óþekktar síður keyrir hann með gecko en allar "traustar" síður keyrir hann með IE vélinni.

HJÁLP, það er einhver búinn að hacka sig inn á accountinn hjá IceCaveman!!!

Sent: Sun 06. Mar 2005 12:37
af CendenZ
Firefox yfir allt.

Sent: Sun 06. Mar 2005 13:58
af ICM
uh Candez ekki vera svona mikill fanboy, nýji netscape er byggður á firefox en notar báðar vélar til að geta renderað allar síður rétt án þess að þurfa að opna IE...

Sent: Sun 06. Mar 2005 15:00
af Le Drum
Ertu þá að tala um betu útgáfuna sem er á http://www.netscape.com?

Sent: Sun 06. Mar 2005 17:57
af hallihg
IceCaveman ekki fá alla uppá móti þér. Firefox umfram allt, já.

Sent: Sun 06. Mar 2005 18:03
af CraZy
opera eignar allt

Sent: Sun 06. Mar 2005 18:05
af hallihg
Já, ef þér finnst gaman að sjá browserinn þinn crasha í hvert skipti sem þú skoðar video in-browser.

Sent: Sun 06. Mar 2005 20:00
af gnarr
mér lýst mjög vel á nýja netscape. hraður og góður.

Sent: Sun 06. Mar 2005 21:55
af Mysingur
hehe ég var að ná í nýja netscape'inn fyrir 5 mínútum og á þeim tíma er hann búinn að krassa tvisvar sinnum :lol:

Sent: Sun 06. Mar 2005 22:51
af Pandemic
Mig finnst frekar asnalegt að búa til browser sem er með ie og gecko vélarnar þar sem ie vélinn er löngu orðinn úrelt og vantar alla nýjustu staðlana.
Frekar ætti að þrýsta á microsoft og aðra vefhönnuði að gera síður/browser sem fylgir stöðlum og reglum.
Það er einmitt það sem Mozilla hefur verið að gera enda sést líka núna eftir að þessi Mozilla firefox bylting hefur átt sér stað að miklu fleiri síður eru almennilega kóðaðar og virka með mozilla vöfrurunum.

Sent: Mán 07. Mar 2005 00:20
af ICM
uh pandemic nær allir "corporate" notendur notendur sem ég þekki, sérstaklega á íslandi vilja ekki nota Firefox því hann renderar asp.net síður vitlaust... Það er ekki hægt að fá þá yfir á neitt annað nema síðurnar þeirra renderi rétt. Enda mjög margir búnnir að eyða tugum eða hundruðum þúsunda í kerfi sem virka eingöngu með IE.

Þoli síðan ekki firefox stuðningsmenn sem hrauna yfir Netscape þar sem það er Netscape að þakka að Mozilla/Gecko varð til. Og ef þið eruð blindir þá er Netscape byggður ofan á Firefox 1 og netscape er enn í BETA, meira að segja ef ég fer í downloads listan í Netscape 8 þá kemur upp nákvæmlega sami listin og var í firefox.

Sent: Mán 07. Mar 2005 17:24
af Daz
hallihg skrifaði:Já, ef þér finnst gaman að sjá browserinn þinn crasha í hvert skipti sem þú skoðar video in-browser.

Þú hefur þá sótt vitlausa útgáfu af Operu, ekki nota "Opera.7.crashversion".
Ég er búinn að nota Operu núna í 2 ár og hef ekki lent í því að hann krassi þegar ég reyni að skoða vídjó. Ég reyndar geri lítið af því, en hann krassar samt ekki þegar ég reyni það.

Sent: Þri 08. Mar 2005 20:00
af ICM
uh ég var að segja ykkur að Netscape er byggður ofan á Firefox 1, fyrir utan að hann býður auðveldlega að stilla síður svo þær noti sjálfkrafa IE vélina þegar maður heimsækir vissar síður. Sérstaklega corporate notendur hafa ekki viljað nota Firefox því hann er ófær um að rendera margar síður rétt, t.d. sem nota asp.net en gífurlega mörg fyritæki hafa fjárfest mikið í þróun slíkra kerfa. Ég skil ekki hvernig þú getur fullyrt að Firefox óvni Netscape þar sem Netscape er bara Firefox með nýtt interface. Hann er enn í beta og ég get lofað þér að það eiga ekki bara eftir að koma fleiri þema fyrir hann annað en þessi sjógræni viðbjóður.

Sent: Mið 09. Mar 2005 01:11
af Le Drum
Ákvað að prufa Netscape aðeins.

Fínt að þurfa ekki að starta upp IE í hvert skipti sem maður lendir á síðu sem sést ekki rétt í FF.

Samt eitthvað við Netscape sem er ekki nógu notendavænt, vonandi breytist það fljótlega.

Vil losna við "Search" sem dæmi.

Best væri samt ef FF myndi geta notað IE vélina líka.

Sent: Mið 09. Mar 2005 01:14
af ICM
FF mun aldrei nota IE vélina því þeir eru of stolltir af Gecko og vilja útrýma IE

Sent: Mið 09. Mar 2005 01:33
af CendenZ
núna fór ég og prufaði netscape b-8, mér finnst hann vera svolítið lengi að fara í gang auk þess er þetta skin alveg lifandi skelfing

Er einhver hérna sem er að lenda í því að hann er alveg góðar 6-7 sek að fara í gang ? (counter í símanum) auk þess vill hann ekki installa skins úr ff :/

Og já, flott hjá þér gumol að færa þetta, ég skal glaður taka þátt í umræðum um topik og efnisinnihald þráðs.

Sent: Mið 09. Mar 2005 12:23
af Dagur
Netscape menn tóku bara Mozilla og gerðu það verra í raun og veru.

IceCaveman skrifaði:uh pandemic nær allir "corporate" notendur notendur sem ég þekki, sérstaklega á íslandi vilja ekki nota Firefox því hann renderar asp.net síður vitlaust...


ASP.NET er bara server-side "forritunarmál". Firefox þarf ekki að rendera þær eitthvað öðruvísi en aðrar síður. Hins vegar líta margar íslenskar síður illa út í Firefox en það er bara vegna þess að þær voru gerðar fyrir einn browser (IE) og hunsa alla staðla.

Sent: Mið 09. Mar 2005 13:01
af CraZy
afhverju ekki að hafa opera vs netscape vs firefox vs IE sem Titil og jafnvél starta poll :)

Sent: Mið 09. Mar 2005 14:08
af gnarr
vegna þess að þetta er ekki kepni.. heldur umræður ;)

Sent: Mið 09. Mar 2005 14:44
af CraZy
það má deila um það :)

Sent: Mið 09. Mar 2005 17:09
af DoRi-
Firefox vs. Netscape vs. Internet Explorer


hmm, gleymdir opera,,einfaldlega bestur að mínu mati

Sent: Mið 23. Mar 2005 15:19
af tms
IceCaveman skrifaði:FF mun aldrei nota IE vélina því þeir eru of stolltir af Gecko og vilja útrýma IE

Nei, FF mun aldrei nota IE vélina því FF finnst á mörgum stýrikerfum en IE vélin aðeins á windows, síðan hefur líka FF verið merki um öryggi og þar sem IE er closed source er ekki hægt að vita hvort hún inniheldur fleiri öryggisgalla eða backdoors sem enginn má vita af.
hættu að draga svona yfirlýsingar úr rassinum á þér, það er svo leiðinlegt að lesa þetta bull.

Sent: Mið 23. Mar 2005 16:45
af CendenZ
Ithmos skrifaði:hættu að draga svona yfirlýsingar úr rassinum á þér, það er svo leiðinlegt að lesa þetta bull.



Amen.

búinn

Sent: Mið 30. Mar 2005 20:40
af galileo
Ég var að dla netscape beta af netscape.com og það virkar bara snilld þetta er bara svo kúl hönnun hjá þeim á þessu og margir kúl nýjir möguleikar að ég mun líklegast nota þennan browser úi framtíðinni. :lol: