Síða 1 af 1
Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 16:27
af norex94
Daginn,
Ég var að pæla að nota minn eiginn router, þá Lynksys AC1900. Ég er með tenginu hjá Gagnaveitu Reykjavíkur og er hjá Nova.
Pælinginn er, þarf ég að láta vita hjá Nova að ég ætli að nota annan router eða er nóg að setja stillinganar inn í nýja?
Ég prufaði að tengja nýja við og setti inn upplýsingar en ég kemst ekki á netið, poppar bara upp síða gagnaveitunar um að hringja í þjónustuver.
Ég er ekki alveg viss hvernig á að stilla þetta. Mér finnst eins og ég eigi að setja fleiri upplýsingar í nýja en finn þær ekki.
Ég er ekki með sjónvarp eða síma hja mér.
Edit: ég sendi á þjónustuverið eins og þið sögðu og eina sem ég þurfti að gera var að senda þeim kennitöluna sem var skráð á ljósleiðarann, MAC addressuna og týpu númerið á nýja. Þurfti ekkert að stilla neitt og kom inn sjált. Þetta er það sem kemur upp
Þetta er stillinganar á gamla
Nýi routerinn
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 16:50
af Viktor
Einfaldast að hringja í Nova og gefa þeim MAC addressuna á nýja routernum.
Svo bara endurræsa GR boxið og svo ensurræsa router 5 mínútum síðar.
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 21:11
af Benzmann
yup, þeir þurfa að vita MAC addressuna á routerinum hjá þér.
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 21:49
af russi
Þú ert þarna með möguleika sem heitir Mac-Address Clone, getur hakað í það og sett mac-addressuna á routerinum sem var fyrir og ættir því að komast á netið
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 21:57
af kjartanbj
Hér áður fyrr var hægt að setja sjálfur inn Mac hjá Gagnaveitunni, svo ákváðu þeir að gera þetta minna notendavænna þannig núna þarf maður alltaf að hafa samband við þjónustuaðila til þess að gera jafn einfaldan hlut og að bæta inn Mac addressu, sem getur gert mann netlausan í ákveðnum tilvikum ef ekki er opið í þjónustuveri hjá þjónustuaðila, mikil afturför því miður
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 22:27
af russi
Þú getur gert þetta enn ef þú ert með user og pass af GR boxinu.
User er vanalega n$$$$$$ og pass þá $$$$$$
$ er þá tala.
Gæti því verið svona user: n123456 og pass þá 123456
Stundum á passið samt ekki við
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 22:54
af kjartanbj
ég gat það alltaf, svo hætti maður að geta breytt neinu og síðan breyttist, annars er ég því miður ekki á gagnaveitunni lengur heldur á Mílu því miður
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Lau 21. Apr 2018 22:55
af reyniraron
front01.gagnaveita.is virkar ekki lengur að ég best veit. Maður getur skráð sig inn en ef maður smellir á einhverja tengla lendir maður alltaf á innskráningunni aftur og kemst aldrei neitt. Það var voða þægilegt að geta skráð þetta sjálfur en því miður er orðið nauðsynlegt að hafa samband við þjónustuaðila.
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Sun 22. Apr 2018 13:32
af norex94
Sælir,
ég sendi á þjónustuverið eins og þið sögðu og eina sem ég þurfti að gera var að senda þeim
kennitöluna sem var skráð á ljósleiðarann,
MAC addressuna og
týpu númerið á nýja. Þurfti ekkert að stilla neitt og kom inn sjált.
Takk samt fyrir svörinn.
Re: Að setja upp og nota sinn eigin router hjá Nova
Sent: Sun 22. Apr 2018 15:00
af GuðjónR
reyniraron skrifaði:front01.gagnaveita.is virkar ekki lengur að ég best veit. Maður getur skráð sig inn en ef maður smellir á einhverja tengla lendir maður alltaf á innskráningunni aftur og kemst aldrei neitt. Það var voða þægilegt að geta skráð þetta sjálfur en því miður er orðið nauðsynlegt að hafa samband við þjónustuaðila.
Búið að vera þannig í nokkur ár...