Síða 1 af 1
Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Mið 28. Mar 2018 17:36
af arnargg
Sælir
Getur einhver sagt mér hvort edgerouter x og unifi ap ac pro ganga saman. Er búinn að komast inná switchin en næ ekki ljósi á Access pointinn. AP er af POE gerð og dettur mér í hug að POE frá edgerouter X sé ekki nógu öflugt til að keyra AP. Einhver sem getur sagt til um þetta?
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Mið 28. Mar 2018 18:12
af gnarr
EdgeRouter X er bara með PoE passthrough. Þannig að ef það er ekki að fara PoE inn á eth0, þá kemur ekkert PoE út á eth4.
Prófaðu að heyra í Hjaltiatla og tékkaðu hvort hann eigi PoE brick handa þér:
viewtopic.php?f=11&t=75048&p=668257
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Mið 28. Mar 2018 18:22
af pepsico
Það sem gnarr segir er rétt en þess til viðbótar er ekki nógu öflugt PoE á EdgeRouter X, 24V, til að keyra neitt nema AP AC LITE og AP AC LR.
Þig vantar 802.3af/802.3at PoE+.
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Mið 28. Mar 2018 19:28
af arnargg
Þakka svörin. Hvernig switch mælið þið með?
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Mið 28. Mar 2018 19:51
af mind
Það fylgir AC PRO PoE injector...
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Mið 28. Mar 2018 20:39
af arnargg
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Fim 29. Mar 2018 01:07
af dori
Kaupa 802.3 PoE injector eða switch sem er með PoE er það eina sem mér dettur í hug að virki fyrir þig.
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Fim 29. Mar 2018 16:01
af arnargg
Takk kærlega, alltaf gott að leita hingað
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Þri 05. Jún 2018 13:39
af SolidFeather
Thread hijack!
Mig langaði að fara í EdgeRouter X og UniFi AP AC LITE og losa mig við vodafone routerinn. Fær AP-inn rafmagn í gegnum routerinn ef routerinn er tengdur beint í ljósleiðaraboxið og í rafmagn? Eða verður PoE að koma inn á eth0?
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Þri 05. Jún 2018 13:50
af Viktor
gnarr skrifaði:EdgeRouter X er bara með PoE passthrough. Þannig að ef það er ekki að fara PoE inn á eth0, þá kemur ekkert PoE út á eth4.
Prófaðu að heyra í Hjaltiatla og tékkaðu hvort hann eigi PoE brick handa þér:
viewtopic.php?f=11&t=75048&p=668257
FYI þetta er 100Mb
Re: Edgerouter X og Unifi AP AC pro
Sent: Þri 05. Jún 2018 13:53
af hagur
SolidFeather skrifaði:Thread hijack!
Mig langaði að fara í EdgeRouter X og UniFi AP AC LITE og losa mig við vodafone routerinn. Fær AP-inn rafmagn í gegnum routerinn ef routerinn er tengdur beint í ljósleiðaraboxið og í rafmagn? Eða verður PoE að koma inn á eth0?
Já, ef þú notar POE injectorinn sem fylgir AC Lite til að straumfæða Edgerouter-inn í gegnum eth0, þá geturðu svo tekið POE út á eth4 og í AC Lite ...
Semsagt - POE injectorinn sem fylgir AC Lite getur straumfætt bæði Edgerouter X og AC Lite.