Síða 1 af 1
Tölvutek + Símafélagið komið í samstarf
Sent: Mið 11. Okt 2017 14:39
af Hallipalli
Re: Tölvutek + Símafélagið komið í samstarf
Sent: Mið 11. Okt 2017 15:31
af GuðjónR
„Einnig eru þeir þekktir fyrir að vera með einn besta svörunartíma á netinu sem hentar sérlega vel fyrir tölvuleikjaspilun og einnig aðra sem vilja hratt internet.“
Er eitthvað til í þessu?
Re: Tölvutek + Símafélagið komið í samstarf
Sent: Mið 11. Okt 2017 16:03
af nidur
Hef verið hjá símafélaginu í mörg ár og get ekki kvartað yfir netinu í tölvuleikjaspilun.
En það er annað sem að mér finnst magnað ef það er satt
Tölvutek er einn stærsti dreifingar- og söluaðili á tölvum og tölvubúnaði á Íslandi að því er segir í fréttatilkynningu
Re: Tölvutek + Símafélagið komið í samstarf
Sent: Mið 11. Okt 2017 18:09
af Viktor
GuðjónR skrifaði:„Einnig eru þeir þekktir fyrir að vera með einn besta svörunartíma á netinu sem hentar sérlega vel fyrir tölvuleikjaspilun og einnig aðra sem vilja hratt internet.“
Er eitthvað til í þessu?
Símafélagið er allavega með mikið af klárasta bransafólkinu í þessum bransa, hafa verið mjög öflugir í fyrirtækjaþjónustu, svo það ætti ekki að koma á óvart.
Re: Tölvutek + Símafélagið komið í samstarf
Sent: Mið 11. Okt 2017 21:15
af ZiRiuS
Sallarólegur skrifaði:GuðjónR skrifaði:„Einnig eru þeir þekktir fyrir að vera með einn besta svörunartíma á netinu sem hentar sérlega vel fyrir tölvuleikjaspilun og einnig aðra sem vilja hratt internet.“
Er eitthvað til í þessu?
Símafélagið er allavega með mikið af klárasta bransafólkinu í þessum bransa, hafa verið mjög öflugir í fyrirtækjaþjónustu, svo það ætti ekki að koma á óvart.
Ég var hjá þeim fyrr á þessu ári og þetta er bara bullshit... Ekki nema þeir hafi breytt routing. Einnig var Twitch að lagga í döðlur hjá mér og þeir gátu ekkert lagað það.
Re: Tölvutek + Símafélagið komið í samstarf
Sent: Mið 11. Okt 2017 22:37
af russi
Ég spila ekki leiki, en get mælt með Símafélaginu sem ISP. Stabílt net og nánast aldrei neitt flökkt á því eins og maður heyrir stundum með aðra ISP.
Hvort þeir séu málið í leikjum/twitch get ekkert svarað um.