Síða 1 af 1
Vandamál Með SHaring Connection!
Sent: Fös 11. Feb 2005 21:44
af Arkidas
Þannig er mál með vexti að ég er hérna með eina tölvu með windows XP sem er tengd netinu við USB adsl modem, hin tölvan er windows ME sem er tengd með lan snúru í hina. Ég hef alltaf getað í u.þ.b. ár notað netið í ME tölvunni með að tengja netið í hinni en nýlega hefur það hætt að virka. Ég er nýbúinn að láta SP2 á XP tölvuna en ég er ekki vissum að þetta sé útaf því. Ég er búinn að prófa allt sem mig dettur í hug! Er með zone alarm firewall stilltan á medium og windwos firewall er off, adsl tengingin er shared og ég er búinn að prófa margt fleira! Ég vona mjög að þið getið hjálpað mér. Fyrirgefið stafsetningarvillur ef einhverjar eru þar sem ég skrifaði þetta í flýti. Takk fyrir,
Arkidas.
Sent: Fös 11. Feb 2005 23:18
af Zaphod
Myndi byrja að slökkva á Zonealarm , alltaf gott að byrja á að slökkva öllu sem gæti truflað .
Fara í network connections og gera repair á lan tenginguna . Fixar flest
Sent: Lau 12. Feb 2005 11:19
af mbh
Er örugglega hakað í "allow other network users to connect through this computer" í tölvu númer eitt?
finnur netkortið->hægri smella->properties->advanced.
Sent: Lau 12. Feb 2005 12:28
af Arkidas
Hvorugt virkar
.
Sent: Lau 12. Feb 2005 16:23
af gumol
Ég man nú ekki alveg hvernig maður stilti IP tölur í Windows ME, ertu viss um að það sé ekki vandamálið, að ME tölvan sé ekki að fá rétta IP?
Dæmi um uppsetningu:
Netkortið á Windows XP tölvunni:
IP Address: 192.168.1.1
Subnet Mask: 255.255.255.0
Default Gateway: [ekkert]
Netkrotið á Windows ME tölvunni:
IP Address: 192.168.1.2
Subnet Mask: 255.255.255.0
Default Gateway: 192.168.1.1
Primery DNS server: 192.168.1.1