Síða 1 af 1

Hvaða distró?

Sent: Fim 10. Feb 2005 14:59
af Andri Fannar
Löngu kominn með svar, valdi Gentoo.

Re: Hvaða distró?

Sent: Fim 10. Feb 2005 15:12
af corflame
SvamLi skrifaði:Já hvaða distro ætti ég að fá mér?
Prufaði Ubuntu og Morphix á LiveCd og fannst mér það mjög töff.
Ætla að nota þetta í server og kannski í dual boot...

Ég er klár á windows :wink:

og getiði gefið mér link á Fedora Core 3 ?


Takk :oops:


Af þeim distroum sem ég hef prófað nýlega þá finnst mér Suse vera einna
byrjendavænast (YaST er gríðarlega þægilegt) þannig að það fær mitt atkvæði fyrir þig.

ftp://ftp.rhnet.is/pub/suse/i386/live-cd-9.2/ fyrir Suse
ftp://ftp.rhnet.is/pub/fedora/3/ fyrir fedora

Sent: Fim 10. Feb 2005 16:04
af Andri Fannar
flott, en hvaða fælum á ég að dl þarna utan við ISO ? :oops:

Edit: fann það út :wink:

Re: Hvaða distró?

Sent: Fim 10. Feb 2005 17:05
af Hawley
SvamLi skrifaði:og getiði gefið mér link á Fedora Core 3 ?


ef þú ættlar að nota Fedora core3 þá er ekki verra að vita fa þessari síðu: http://www.fedorafaq.org/

Sent: Fim 10. Feb 2005 18:45
af Andri Fannar
takk Hawley :)

Sent: Fim 10. Feb 2005 19:37
af emmi
SuSE 9.2 er mjög fínn, FC3 er svona lala, er ekki alveg að gúddera hann. Uppáhaldið mitt í sambandi við Desktop Linux er þó Mandrake. :)

Re: Hvaða distró?

Sent: Fös 11. Feb 2005 03:39
af gumol
SvamLi skrifaði:Já hvaða distro ætti ég að fá mér?
Prufaði Ubuntu og Morphix á LiveCd og fannst mér það mjög töff.
Ætla að nota þetta í server og kannski í dual boot...

Gentoo linux segi ég. Mjög þægilegt fyrri server vél.

Sent: Fös 11. Feb 2005 16:25
af Andri Fannar
Langar líka að nota þetta bara í minni vél...staðinn fyrir xp

Sent: Fös 11. Feb 2005 19:52
af gumol
Gentoo virkar vel á desktop vélar líka. Það er flókið en þú lærir vel á stýrikerfið bara á því að setja það upp.

Sent: Lau 12. Feb 2005 03:25
af KnottyMaggi
Ég er með ubuntu á minni vél (þótt ég sé á winxp eins og er að ná í nokra hluti :)) Líkar mjög vel við það. Er svo að fara setja upp slackware á eina gamla 500 mega riða vél sem ég á...

Í sambandi við það. Er amd k-6 örgjöfi i686 örgjöfi eða? (sorry að ég skuli hi-jacka korkinum)

Sent: Lau 12. Feb 2005 19:24
af emmi
Nei, i586.

Sent: Lau 12. Feb 2005 20:42
af W.Dafoe
maeli hiklaust med UBUNTU

Sent: Lau 12. Feb 2005 20:50
af gumol
Ég hef líka heyrt gott um archlinux, hef samt ekki náð að prófa það ennþá.

Sent: Mán 14. Feb 2005 21:03
af ibs
Ubuntu er það besta sem ég hef rekist á.

Sent: Mán 14. Feb 2005 21:45
af heidaro
Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Gentoo Mushroom! Mushrooom!

Sent: Þri 15. Feb 2005 11:11
af Andri Fannar
U GOT PM heidaro

Sent: Mið 16. Feb 2005 05:43
af hubcaps

Sent: Mið 16. Feb 2005 09:15
af MezzUp
hubcaps skrifaði:http://eedok.voidofmind.com/linux/chooser.html
Ætli ég hljóti ekki að hafa verið að reyna að fá Debian útur þessu, fékk allavega 100% hjá Debian :P

Sent: Mið 16. Feb 2005 18:02
af gumol
Þetta próf er nú ekki uppá marga fiska. Ekki taka mark á því ;)

Sent: Mið 16. Feb 2005 19:50
af hubcaps
gumol skrifaði:Þetta próf er nú ekki uppá marga fiska. Ekki taka mark á því ;)

hehe, jámm. Það eina svona sem það gerði fyrir mig var að ég gat séð nokkurnvegin hvað var í boði. :oops:
Hef nákvæmlega aldrei notað linux. :wink:

Sent: Sun 08. Jan 2006 16:00
af mainman
Að vera að segja nýgræðing að setja upp Gentoo er ekki mjög gáfulegt,
það er einsog að taka af honum skurðgröfu og láta hann fá teskeið í staðin og láta hann grafa fyrir sundlaug, það tekst öruglega á endanum en það er helvítis basl og án efa fer þessi maður að snúa sér að einhverju öðru en linux áður en langt um líður.
Það er létt og gott fyrir vanann mann að nota og setja upp Gentoo en menn ættu aðeins að skoða betur hvað ÞEIM finst auðvelt vegna kunnáttu sinnar eða hvað einhverjum öðrum finst erfitt vegja þess að það er enginn "File Edit View og HELP!" hnappur fyrir framan mann þegar það blikkar bara bendill á svörtum skjá.

Það sem ég vil segja með þessu bréfi er að til þess að fá fólk útí þetta samfélag, (linux), þá ætti að ráðleggja því og hjálpa því einsog hægt er og ekki með svona vitleysu einsog að segja því að stökkva í djúpu laugina ósynt (setja upp Gentoo)

Sent: Mán 09. Jan 2006 15:49
af Voffinn
Ef þú hefur nægan áhuga og ert sæmilega klár á tölvur, þá er það ekkert óvinnandi task að setja upp gentoo. Það er hinsvegar mjög erfitt og mjög tímafrekt, þú uppsker hinsvegar einsog þú sáir.

Eftir að hafa notað gentoo í þónokkurn tíma, þá hef ég nýlega hætt að nota gentoo á fartölvuna mína og snúið mér að ubuntu. Frábært distró.

Sent: Mán 09. Jan 2006 18:08
af Vilezhout
sjaldséðir eru nú hvítir hundar :p

Ubuntu er samt sem áður stálið

er með það bæði á ferðavélini minni og borðvélini

Sent: Þri 10. Jan 2006 14:16
af Andri Fannar
Jájá, ég setti nú gentoo upp, en mainman, þetta er tæplega árs gamall þráður :?

Sent: Þri 10. Jan 2006 14:24
af Voffinn
Vilezhout skrifaði:sjaldséðir eru nú hvítir hundar :p

Ubuntu er samt sem áður stálið

er með það bæði á ferðavélini minni og borðvélini


Þú ert nú sjálfur ekkert það vel séður! :wink:

Við ætlum að fara að halda aftur spilakvöld, má ekki bjóða þér með, minn kæri?