Síða 1 af 1
Vandamál með uppsetningu Win XP pro
Sent: Þri 08. Feb 2005 17:29
af END
Er í einhverjum vandræðum með það að setja upp Win XP Pro.
Býst við að það tengist e-ð SATA harða disknum, þó ég hafi bæði prófað að setja upp driverana sem fylgdu og þá sem eru á heimasíðunni (virtust vera sömu driverar, abit móðurborð). Hann hefur ekki fundist þegar ég hef átt að velja partion og þá kemur einnig upp villumelding sem hefur stöðvað uppsetninguna "vegna hættu á að tölvan verði fyrir skaða" s.s. blue screen, það sem fylgdi honum var: 0x0000008E (0xC0000005, 0x807C6F65, 0xF73BA798, 0x00000000).
Mér tókst reyndar að koma stýrikerfinu upp eftir nokkarar tilraunir og það virtist virka í fyrstu og gerði það líka í nokkra daga. Svo fór skjárinn að taka upp á því að frjósa, virtist bara vera skjárinn því ég gat typað á meðan þó ég sæi ekki, svo kom skjámyndin aftur stuttu seinna. En þá voru líka farin að heyrast undarleg hljóð úr tölvunni, get ekki alveg lýst þeim, einhverskonar vinnsluhljóð, samt ekki þessi vinnsluhljóð sem maður er vanur að heyra í hörðum diskum. Ég prófa að restarta en kemst þá ekki aftur inn í Windows og hef ekki komist inn síðan.
Hef prófað að setja stýrikerfið aftur upp nokkrum sinnum en alltaf fengið þessa villumeldingu sem ég fékk upp fyrst.
Þetta er Win XP Pro með SP2.
Sent: Þri 08. Feb 2005 21:09
af Mysingur
þetta undarlega hljóð sem þú heyrir, er það svona "tikk tikk" hljóð og kemur frá harða disknum?
Sent: Mið 09. Feb 2005 01:23
af END
þetta undarlega hljóð sem þú heyrir, er það svona "tikk tikk" hljóð og kemur frá harða disknum?
Minnir að það hafi verið e-ð svoleiðis, já. Hef samt ekki heyrt það síðan ég var inni í Windows síðasta skiptið sem ég komst þangað inn.
Sent: Lau 12. Feb 2005 12:22
af END
Fátt um svör
Er e-ð til í því sem kunningji minn sagðist hafa lesið í leiðbeiningarbæklingi með einhverjum SATA diski að maður ætti helst ekki að láta stýrikerfi á slíka diska?
Sent: Lau 12. Feb 2005 12:23
af Andri Fannar
Humm, þetta með ekki setja stýrikerfi á svona diska er held ég bara rugl, Raptorar eru hannaðir undir það right?
Sent: Lau 12. Feb 2005 16:15
af gumol
Þú ættir alls ekki að setja neitt á svona diska. Svona tikk eru oftast fyrsta merkiö um að diskurinn sé að bila.
Sent: Lau 12. Feb 2005 18:34
af END
Að diskurinn sé að bila !! Öss hann er glænýr, þá verð ég nú bara að kíkja með tölvuna í Tölvuvirkni og láta þá athuga málið.
Haldiði að þetta vesen tengist þá frekar harða disknum heldur en einhverjum stillingum í bios eða vitlausum driverum (Biosinn átti að vera alveg stilltur af Tölvuvirkni og mér finnst nú skrýtið að hafa tekist að setja Windows upp, þó það hafi ekki virkað lengi)?
Sent: Sun 13. Feb 2005 10:33
af END
Villan sem kemur með þessum blue screen er:
0x0000008E (0xC0000005, 0x807C6F65, 0xF73BA798, 0x00000000)
Sent: Sun 13. Feb 2005 17:54
af gumol
Kemur ekki annað örlítið skiljanlegra villuboð efst?
Sent: Sun 13. Feb 2005 19:52
af Mysingur
END skrifaði:Villan sem kemur með þessum blue screen er:
0x0000008E (0xC0000005, 0x807C6F65, 0xF73BA798, 0x00000000)
fremsti hlutinn af þessu villuboði er nákvæmlega sá sami og það sem ég fékk þegar glænýji seagate diskurinn minn var að deyja og þá heyrðust líka svona klikk klikk læti í honum
Sent: Þri 15. Feb 2005 12:12
af END
Tókst að koma uppsetningunni í gang með driverum af heimasíðunni, virðist sem þeir hafi verið vandamálið allan tímann. En eins og áður hefur komið fram þá hafði mér tekist að setja stýrikerfið upp áður en svo fór tölvan að frjósa og þetta tikk hljóð að heyrast. Núna er tölvan farin að frjósa í uppsetningunni og tikk hljóðið einnig komið þannig að ég get ekki einu sinni komist í gegnum language stillingarnar. Geri fastlega ráð fyrir að harði diskurinn sé bilaður.
Uppsetningin gekk eftir að ég endurræsti tölvuna, en ég býst við að tikk-tikk hljóðið fari að heyrast innan skamms.
Sent: Þri 15. Feb 2005 16:10
af arnarj
geturðu ekki fengið lánaðan harðan disk og séð hvort allt gangi smooth þá? Mikið einfaldara verður þetta ekki sko!
Sent: Þri 15. Feb 2005 17:02
af END
Jæja þetta entist í rúma klukkustund svo fór þetta allt í sama gamla farið.
En nei ég hef nú engann "auka" harðan disk til að prófa
því miður..
Fór með hana í Tölvuvirkni.
Sent: Mið 16. Feb 2005 13:49
af MPG
Þetta er pott þétt diskurin þetta Skeði hjá mér var með sata disk sem var í nýrri Dell 8400 fekk bara nýjan ekkert mál eina fúla í því að ég tapaði tölvupóstinum
Sent: Mið 16. Feb 2005 17:03
af Johnson 32
MPG skrifaði:Þetta er pott þétt diskurin þetta Skeði hjá mér var með sata disk sem var í nýrri Dell 8400 fekk bara nýjan ekkert mál eina fúla í því að ég tapaði tölvupóstinum
Alltaf að hafa miðlægan tölvupóst eins og hotmail eða gmail, tapar ekki gögnum...
Sent: Mið 16. Feb 2005 18:36
af END
Þeir í tölvuvirkni vildu meina að vesenið hafi tengst því að diskurinn sé of stór fyrir Windows
hef ekki heyrt það áður en þeir skiptu allavega í tvö partion, annað ca 35 gb fyrir Win. Virkar allavega núna. Kostai mig 7300 kr, en fékk hana þá með Win uppsett og drivera og einhver forrit líka.
Sent: Mið 16. Feb 2005 18:46
af gnarr
windows xp styður eins stóra diska og þú vilt setja það á, svo lengi sem það er með sp1 eða nýrra. ef þetta er/var það, þá hefðiru ekki getað búið til partition stærra en 127GB, en þú hefðir samt getað installað win og keyrt fínt. Þetta hljómaði 0.00000000001% eins og hugbúnaðarvilla, en 99.99999999999% eins og vélbúnaðar villa.
Sent: Mið 16. Feb 2005 22:11
af gumol
Hvað er þetta stór diskur?
Baðstu þá um að setja Windows upp?
Sent: Mið 16. Feb 2005 22:32
af END
Þetta er 200 gb Seagate SATA.
Nei ég bað hann ekki um að setja upp Windows, það sem ég bað um var: "Ath með harða disk, ath með bios stillingar skoða vel." Eins og þeir skrifuðu þetta niður hjá Tölvuvirkni. Þetta bað ég um vegna þess að þegar ég talaði við þá símleiðis töldu þeir vandamálið liggja í öðru hvoru þessara atriða.
Það sem var gert samkvæmt kvittun: "Setti upp stýrirkerfi, skipti diskinum í tvö partion, setti alla rekla inn, allan helsta hugbúnað, stress prófaði tölvuna, allt ok"
1,5 klst.
Gnarr, þetta Win sem ég var að reyna að setja upp var víst ekki með SP2, þannig að þar hlýtur vandinn að liggja. Býst ekki við að þeir hefðu getað gert neitt öðruvísi í Tölvuvirkni, nema kannski bara sagt mér símleiðis að ég þyrfti að vera með amk SP1.
Sent: Mið 16. Feb 2005 22:38
af gnarr
ég gat vélritað það.. svo þeir hefðu átat ð geta sagt þér það gegnum síma.
en málið er það að þú getur alveg sett Wxp án sp upp á 200GB disk. þú getur bara ekki búið til partion sem er meira en 127GB, svo að ég veit ekki alveg hvað þeir eru að rugla í þér í tölvuvirkni.
Sent: Fim 17. Feb 2005 14:44
af END
Já það hefur verið vandamálið, ég gat sett upp partion (þó það eigi ekki að vera hægt) en það virkaði ekki lengi. En hún er allavega í góðu lagi núna.