Síða 1 af 1
Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 06. Jún 2017 16:02
af einarhr
Góðan dag.
Ég er að vandræðast með að tengja wix.com heimasíðu við .is lén. Ég er búin reyna að prófa mig áfram en ég er ekki alveg að fatta þetta allt.
Ég er komin með FreeDNS hjá 1984 þar sem wix styður ekki .is lén en mér gengur ekkert að tengja þetta saman.
Er einhver hér sem er tilbúin að aðstoða mig í þessu ?
með fyrirfram þökk
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 06. Jún 2017 16:12
af Viktor
Ertu búinn að setja IP töluna frá WIX inn á 1984.is umsýsluna?
Ertu búinn að setja 1984 sem hýsingaraðila hjá Isnic.is?
Þetta getur tekið 24 klst.
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 06. Jún 2017 16:30
af einarhr
Ég er búin að gera þetta en er ekki viss hvort það sé rétt. Svo er ég ekki viss hvaða nafnaþjón ég set in á ISNIC
- DNS.JPG (88.12 KiB) Skoðað 2131 sinnum
- wix.JPG (58.84 KiB) Skoðað 2131 sinnum
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 06. Jún 2017 16:31
af Viktor
Velur 1984 sem hýsingaraðila á ISNIC.is.
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 06. Jún 2017 18:26
af Televisionary
Einar ef þú ert í einhverjum vandræðum geturðu bara kíkt yfir til mín.
einarhr skrifaði:Góðan dag.
Ég er að vandræðast með að tengja wix.com heimasíðu við .is lén. Ég er búin reyna að prófa mig áfram en ég er ekki alveg að fatta þetta allt.
Ég er komin með FreeDNS hjá 1984 þar sem wix styður ekki .is lén en mér gengur ekkert að tengja þetta saman.
Er einhver hér sem er tilbúin að aðstoða mig í þessu ?
með fyrirfram þökk
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Mið 07. Jún 2017 01:56
af einarhr
Takk fyrir hjálpina
þetta hafðist
Neyðarkall: Tengja wix heimasíðu við .is lén - er að kaupa hýsingu hjá Sensa
Sent: Þri 31. Okt 2017 10:35
af mogulloskast
Góðan dag - sé að þetta hefur áður komið upp en gat ekki alveg notað. Ég er með .is lén löngu keypt - og er að borga hýsingu hjá símanum/sensa með sína nafnaþjóna - en síðan búin til hjá wix - ég er búin að steingleyma hvernig ég tengi þetta allt :/
nennir einhver að splæsa fróðleiknum? : ) með fyrirframþökk
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 31. Okt 2017 11:59
af einarhr
Þar sem Wix styður ekki .is lén þá þurfti ég að setja upp FreeDNS aðgang hjá 1984.is og þá reddaðist þetta allt
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 31. Okt 2017 15:21
af mogulloskast
Sæll og takk fyrir þetta - málið er sumsé að ég er ekkert inní 1984 DNS málum en er með DNS hjá símanum - einhver sem kann að trixa þetta? (hef gert áður en er svo langt síðan að er búin að gleyma - en man að 1984.is kom ekki við sögu . . . )
kærar -
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Þri 31. Okt 2017 20:53
af einarhr
Ef ég man rétt þá notaði ég þessar leiðbeiningar
https://kb.1984.is/doku.php?id=freednsNæst neðst, þetta er frekar basic en getur tekið 24 klst til að virka.
Re: Tengja Wix.com við Isnic
Sent: Mán 18. Des 2017 18:55
af mogulloskast
Takk æðislega - búin að skrá mig í free dns - og velja wix færslur og áfram - og þá tekur við bara hyldýpi af reitum til að skrá í : / - veit ekkert hvað geri næst - OG hver er hagur 1984.is að leyfa manni að fá ,,frítt" dns . . .