Síða 1 af 1
Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Fös 05. Maí 2017 23:35
af jardel
Ég er að nota net i gengum rafmagn beint i gegnum fartölvu i einu herbergi í húsinu,
en í hinum helmingi húsins neyðist ég til að nota 4g. Er einhver möguleiki til að laga þetta?
Ég er með ljósleiðara. Er möguleiki að kaupa annan router og vera með hann í sambandi við rafmagn án þess að þurfa að leggja snúru þvert yfir húsið í ljósleiðararboxið?
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Fös 05. Maí 2017 23:48
af Cascade
Alltaf best að hafa auka punkta tengda með snuru
Annars eru nokkur fyrirtæki komin með 'wifi mesh' sem er það sem þú þyrfti ef þú getur ekki tengt með snuru
T.d Eero og svo ubiquity air mesh
Ég hef keypt eero, en í mínu tilfelli eru þeir allir snuru tengdir svo ég er þannig séð ekki að nota "mesh tæknina þeirra
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Lau 06. Maí 2017 00:10
af jardel
Ég skoða þetta þakka þér kærlega fyrir. Ég er búinn að vera að vandræðast við þetta lengi.
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Lau 06. Maí 2017 11:42
af depill
Hjá foreldrum mínum gerði ég þetta bara með unifi AC punktum.
Dró cat út um allt húsið reyndar, þannig AppleTVin plús litla skrifstofan sem þau eru með á neðri hæðinni er kapaltengd ( inní bílskúr þar sem ljósleiðaraboxið er ). Þetta þokkalega stórt einbýlishús ( 320 fermetrar ) og með því að vera með access punktana mjög vel staðsetta ( þeir voru það ekki fyrst ) ná þeir alveg að covera húsið, plús pallinn og garðinn þeirra.
Þannig allir dúndrandi happy þar. Ég er sem með overkill í mínu raðhúsi ( mínus kjallari sem annar leigir ) þar sem ég er með 2x UniFi AC punkta staðsetta í miðjunni á hvorri hæð þar sem ég notaði lögn sem var fyrir og er notuð fyrir dyrabjölluna ( var gert ráð fyrir einni á hvorri hæð og ég nota bara eina og gat alveg komið 2x Cat + bjöllluvír þarna í ).
Ef það séu einhverjar lagnir sem eru ekki með háspennuvír í á hverri hæð myndi ég draga.
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Lau 06. Maí 2017 11:46
af Dúlli
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Lau 06. Maí 2017 12:19
af depill
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Lau 06. Maí 2017 12:22
af Dúlli
Háspenna er í dreifikerfi, 1500v AC og upp
Lágspenna er í húsum og það sem notandinn notar.
Svo er smáspenna.
Nema þú byrð inn í dreifistöð þá ertu ekki með háspennu.
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Lau 06. Maí 2017 19:49
af depill
Dúlli skrifaði:Háspenna er í dreifikerfi, 1500v AC og upp
Lágspenna er í húsum og það sem notandinn notar.
Svo er smáspenna.
Nema þú byrð inn í dreifistöð þá ertu ekki með háspennu.
Haha fjandinn :/
Jamm ég meinti víst lag spenna
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Mán 08. Maí 2017 01:30
af HringduEgill
Við höfum verið að gera prufur á Orbi frá Netgear. Komið vel út bæði í húsum með svæsna burðarveggi og stórum einbýlishúsum. Reviews á netinu eru líka sammála að Orbi sé að virka betur en Eero, Google Wifi og Amplifi. Komið til landsins með öllu á 55.000 kr. frá Amazon.
Finnst sennilegt að við munum setja þetta bráðlega í sölu.
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Mán 08. Maí 2017 09:24
af Hauxon
Í húsinu hjá mér var gert ráð fyrir víruðu brunavarnakerfi (smáspenna) í loftinu. Ég dró smáspennuvírana úr og setti cat5e í staðinn og setti upp Unifi AP LR (
https://www.ubnt.com/unifi/unifi-ap-ac-lr/) nálægt miðjunni á húsinu. Munurinn á þessu og litla Cisco gaurnum sem ég var með er gríðarlegur. Nú er solid wifi allsstaðar í húsinu, líka í gengnum steypta veggi þar sem það var nánast ekkert samband áður. Unifi AP er wifi nóða sem þú tengir við routerinn þinn. Hann notar PoE (power over ethertnet) þ.a. þú þarft ekki að tengja hann við rafmagn heldur fær hann rafmagn úr netsnúrunni. Þú getur svo raðtengt marga svona gaura til að kóvera erfið svæði eða ef húsið er mjög stórt eða á mörgum hæðum og netið er alveg seamless (þarft ekki að tengjast öðru neti eins og er með marga ódýrari access punkta). Ég tengdi Unifi gaurinn í Cisco routerinn og slökkti á wifi-inu í honunum en er að bíða eftir að Unifi router komi með póstinum og reikna með að kaupa líka unifi sviss.
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Mán 08. Maí 2017 09:30
af Hauxon
Ubiquiti Unifi viðmótið er alveg geggjað flott og hluti af aðdráttaraflinu fyrir mig. Ég set hér inn þessa mynd sem dæmi. Þú getur sett inn tekningu af húsinu/íbúðinni/skrifstofunni þinni sem er auðvelt að setja í réttan skala. Svo velur þú hvernig AP þú ert með og dregur inn á teikninguna. Ef þú ert með fleiri þá getur þú nokkuð auðveldlega séð hvernig er best að staðsetja þá. Marg annað í viðmótinu sem er töff og áhugasamir ætti að skoða betur.
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Mán 08. Maí 2017 12:57
af Viktor
Um að gera að nota gömlu loftnetsdósirnar og draga Cat5 á milli hæða í stað coax, og skella einum Unifi Ap Ac Lite miðsvæðis.
Ég er með router í kjallara fyrir Wifi, svo Ap Ac Lite á miðhlð sem coverar þriðju hæðina líka í ca. 10-20mbps.
Re: Laga netsambandið í stóru einbýlishúsi úr steini
Sent: Mán 08. Maí 2017 19:38
af Urri
best bara að draga cat 6 yfir...