Síða 1 af 1
Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Fim 04. Maí 2017 13:26
af Hauxon
Ég sé að menn hérna virðast almennt hrifnir af Ubiquiti netbúnaði. Ég keypti um daginn access point frá þeim og hann er núna tengdur við lítinn cisco beini sem ég er að leigja. Ég er að spá í að fá mér Ubiquiti beini og skila Cisco gaurnum til Hringiðunnar. Ég er búinn að sjá nokkra þræði þar sem talað er um EdgeRouterinn en eitthvað lítið um USG (Unifi Security Gateway). Þeir eru á svipuðu verði og skv. alnetinu virðist vera sama hardware í þeim. Ég var bara að spá hvort einhver hérna væri með USG og hvort væri betra/verra.
Kv. Hrannar
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Fim 04. Maí 2017 15:17
af nidur
Þetta snýst aðalega um hvort að þú viljir vera með controller eða standalone tæki, EdgeRouter er standalone.
Þú færð ekki svona flott dashboard nema með controllernum.
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Sun 14. Maí 2017 10:37
af Calexico
Sæll,
Ubiquiti USG og EdgeRouter eru nánast sömu tækin vélbúnaðarlega séð. Munurinn er að USG er partur af Unifi línunni og þarf controller hugbúnað uppsettann á tölvu til þess að hægt sé að setja hann upp og stilla. Einnig er hægt að kaupa lítinn "dongle" (litla línux tölvu) sem er kölluð cloud key til að stýra Unifi búnaðinum. GUI stillingar eru ekki komnar jafn langt á veg fyrir USG eins og EdgeRouter en það koma uppfærslur a.m.k. mánaðarlega. Ef allur netbúnaðurinn er í Unifi línunni fær maður frábæra yfirsýn yfir netið og getur gert allar stillingar í sama viðmótinu.
Ég er búinn að skipta öllum netbeinum og búnaði heima hjá mér yfir í Ubiquiti Unifi og ég hef aldei verið með jafn stöðug og áhyggjulaust net. Ég byrjaði með Unifi AP-AC LR access point en er núna með: 3x Unifi AC LR access points, USG-3 Security Gateway, CloudKey, Unifi Switch 16 - 150w, Unifi switch 24, 2x Unifi Switch 8 og Unifi SWitch 8 - 60w. Öllu er stýrt í gegnum Cloud Key og þetta virkar frábærlega. Ég er með óvenju mörg nettengd tæki miðað við "venjulegt" heimili og húsið er steypt og á 3 hæðum og það var nær ómögulegt að fá gott wifi með venjulegum lausnum. Núna er ég með gott WiFi um allt húsið.
PS. Ég hef engin tengsl við Ubiquiti eða söluaðila tækjanna og vinn ekki í tölvugeiranum
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Sun 14. Maí 2017 23:42
af Hargo
Smá forvitni, hvernig gengur mönnum að keyra og stilla IPTV frá Símanum eða Vodafone í gegnum þessa routera? Er það í boði? Er bara með VDSL tengingu í boði (ljósnet)
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Mán 15. Maí 2017 08:13
af depill
Mér hefur gengið bara fínt með það. Hef gert bæði samt, bæði brúað IPTVið inní EdgeRouterinn í gegnum eitt port á Technicolor og tekið það svo út brúað í gegnum EdgeRouterinn.
En síðast þegar ég gerði þetta þá brúaði ég Internet portið beint úr Technicolor yfir í EdgeRouterinn ( single vlan ) og setti upp PPPoE á EdgeRouter en hélt svo bara IPTV Vlaninu á Technicolor routernum ( þannig TV var tengt í EdgeRouterinn ).
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Þri 20. Jún 2017 16:03
af FriðrikH
Ég er örlítið ringlaður með þetta unifi dæmi.
Þarf maður annað hvort að hafa cloud key til að stýra þessu eða er hægt að nota eitthvað web based dæmi sem maður loggar sig inn á?
Annað, er hægt að nota ódýrari switch en ubiquity switchinn? Eftir stutta leit þá tókst mér allavega ekki að finna ódýrari switcha með 2+ poe plöggum með 24V.
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Þri 20. Jún 2017 18:09
af arons4
FriðrikH skrifaði:Ég er örlítið ringlaður með þetta unifi dæmi.
Þarf maður annað hvort að hafa cloud key til að stýra þessu eða er hægt að nota eitthvað web based dæmi sem maður loggar sig inn á?
Annað, er hægt að nota ódýrari switch en ubiquity switchinn? Eftir stutta leit þá tókst mér allavega ekki að finna ódýrari switcha með 2+ poe plöggum með 24V.
Þarft að nota unifi controller forritið til að stilla þennan búnað, en hann er ókeypis og hægt að setja upp á hvaða tölvu sem er. Hann þarf ekki að vera í gangi eftir að búið er að búnaðinn upp. Cloud key er bara lítil linux tölva sem gerir ekkert meira en að keyra controller forritið.
Þetta eru sennilega ódýrustu 24V POE svissarnir, en passa þó að toughswitch switcharnir eru að ég held ekki stýranlegir í unifi controllernum.
https://www.netverslun.is/Mi%C3%B0l%C3% ... 718.actionhttps://www.netverslun.is/Mi%C3%B0l%C3% ... 719.actionhttps://www.netverslun.is/Mi%C3%B0l%C3% ... 643.action
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Þri 20. Jún 2017 21:06
af hkr
Nýherji er að smyrja hellvíti vel ofan á þessa switcha (eins og allt annað...), myndi miklu frekar kaupa af
https://www.eurodk.com/Hef keypt þaðan sjálfur og margir aðrir hér á spjallinu, hef hingað til ekki heyrt neitt slæmt um þessa síðu. Miklu ódýrari og tekur 1-2 virka daga að fá þetta heim í hús.
https://www.eurodk.com/en/products/5-po ... switch-poehttps://www.eurodk.com/en/products/8-po ... ch-poe-prohttps://www.eurodk.com/en/products/8-po ... tch-8-150w (gróflega reiknað út er þessi kominn hingað heim á undir 30k meðan hann kostar 56k hjá nýherja)
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Mið 21. Jún 2017 08:26
af FriðrikH
Ég fann þetta reyndar hjá netbunadur.is,
https://www.netbunadur.is/collections/s ... s-with-poe á 22.000 kall.
Re: Ubiquiti USG vs EdgeRouter
Sent: Mið 21. Jún 2017 08:51
af Nariur
Þú færð Switch 8 60W á rúman 16.000 heim að dyrum frá EuroDK
https://www.eurodk.com/en/products/8-po ... itch-8-60w