Síða 1 af 1

Munur á Switchum

Sent: Þri 28. Mar 2017 12:29
af dedd10
Sælir

Getur einhver sagt mér hvort það sé einhver munur á þessum switchum?

https://tl.is/product/zyxel-es-105a-10- ... -switch-v3

https://tl.is/product/planet-5-port-10-100-switch

Ætla að nota þá til að fá betra samband fyrir 4 tæki sem ég er með tengd við sjónvarp inní herbergi, er með einn Cat5 inní herbergið og ætlaði að nýta hann til að nota á öll tækin. Eina sem ég sé hentugra er að Zyxel switchinn er talsvert minni um sig, en einhver gæða munur á þeim?

Re: Munur á Switchum

Sent: Þri 28. Mar 2017 12:44
af Urri
Bæði merkin hafa reynst mér vel en ég myndi nú fara í 10/100/1000 týpuna af öðrum hvorum switchinum enfaldlega bara til að búa ekki til flöskuháls þar...

Re: Munur á Switchum

Sent: Þri 28. Mar 2017 20:11
af dedd10
Já það er kannski spurning, en þar sem ég er bara á ljosneti, allt að 50mb held ég. Myndi það breyta einhverju?

Re: Munur á Switchum

Sent: Þri 28. Mar 2017 20:18
af GuðjónR
dedd10 skrifaði:Já það er kannski spurning, en þar sem ég er bara á ljosneti, allt að 50mb held ég. Myndi það breyta einhverju?

Já auðvitað, þú ætlar kannski að kópera gögn á milli tölva þá færðu 12.5MBs hraða í stað þess að fá 125MBs hraða.

Re: Munur á Switchum

Sent: Mið 29. Mar 2017 09:17
af dedd10
Já ég skil, ég er nú ekki að fara nota þetta í að færa gögn á milli. Þetta er bara hugsað til að fá betri hraða á netið í Apple tv, tölvu og svoleiðis.

Re: Munur á Switchum

Sent: Mið 29. Mar 2017 11:28
af dori
Ég myndi segja að það væri algjör vitleysa að kaupa sér svona basic 10/100 switch í dag nema það sé alveg sérstaklega góð ástæða fyrir því (eins og í að þú veist að það er meira en nóg og verðmunurinn virkilega skiptir þig máli, sem ég sé ekki gerast nema í miklu magni).

Re: Munur á Switchum

Sent: Lau 01. Apr 2017 19:06
af eeh
Er þetta góður switch ToughSwitch PoE ?

https://www.eurodk.com/en/products/5-ports/toughswitch-poe

Re: Munur á Switchum

Sent: Lau 01. Apr 2017 20:09
af Hargo
eeh skrifaði:Er þetta góður switch ToughSwitch PoE ?

https://www.eurodk.com/en/products/5-ports/toughswitch-poe


Jebb þessir eru mjög fínir og manageable.

Re: Munur á Switchum

Sent: Lau 01. Apr 2017 20:24
af russi
dedd10 skrifaði:Já ég skil, ég er nú ekki að fara nota þetta í að færa gögn á milli. Þetta er bara hugsað til að fá betri hraða á netið í Apple tv, tölvu og svoleiðis.


Samt aldrei að segja aldrei, þó notkunin í dag er ekki þessi þá gæti það breyst síðar, eða þú notar þá síðar meir í að brúa samband hjá þér eða slíkt.
Svona græja endist í slatta tíma og er oft betra að kaupa 1gb í stað þess að fjarfesta í annari þegar þú þarft á því að halda. Ert allavega covered.

Góður puntur ef uplink er 100mbit og öll tækin kannski að streyma(af innanhússerver og jafnel interneti líka), þá ertu kominn með flöskuháls innanhús