Síða 1 af 2

leit af freeweire

Sent: Sun 30. Jan 2005 23:14
af biggi1
ég er að leita af fríu forriti sem getur hostað nokkrar heimasíður

því að þetta forrit sem eg er með núna (Simple server:WWW) það er eitthvað vesen með hann, ég er með firewall á speedtouch router, skiftir það einhverju máli?

Re: leit af freeweire

Sent: Sun 30. Jan 2005 23:20
af MezzUp
biggi1 skrifaði:ég er með firewall á speedtouch router, skiftir það einhverju máli?
Já, það gæti skipt máli. Þú verður (vitaskuld) að forwarda porti 80 á tölvuna sem að er með netþjóninn.

Sent: Sun 30. Jan 2005 23:23
af biggi1
já ég vissi ekki bara hvaða port ég átti að opna :roll: en prufaðu aa fara inná http://192.168.1.15 þar er heimasíðan mín, já og btw hvað fær maður frítt domain?

Sent: Sun 30. Jan 2005 23:58
af Phanto
þetta er lan ip tala, og þú færð hvergi frítt domain nema svona .tk drasl.

Sent: Mán 31. Jan 2005 00:38
af gumol
Þú getur fundið IP-töluna þína á http://www.myip.is og fengið ókeypis hostname á http://www.no-ip.com

Sent: Mán 31. Jan 2005 00:57
af biggi1
gunnmol: og ætti þá að síðan kæmist í lag?

edit:

þetta er svaka brenglað, ég kemmst inná síðuna með 192.168 ip tölu en ekki þessari sem er á myip.is, og í lame forritinu sem ég er emð til að hosta síðuna þá stendur ip: 192.168 ip talan :?

Sent: Mán 31. Jan 2005 01:14
af MezzUp
biggi1 skrifaði:þetta er svaka brenglað, ég kemmst inná síðuna með 192.168 ip tölu en ekki þessari sem er á myip.is, og í lame forritinu sem ég er emð til að hosta síðuna þá stendur ip: 192.168 ip talan :?
192.168 talan er private IP tala sem að virkar bara á LANinu heima hjá þér. Aðrir þurfa public IP töluna þína (myip.is) til þess að ná sambandi við tölvuna með netþjóninum.

Einnig þarftu að forwarda porti nr. 80 til þess að routerinn viti hvaða tölva er með netþjóninn.

S.s. til þess að þetta virki: forwardaðu port 80 í routernum á tölvuna með WWW servernum, og láttu okkar vita myip.is töluna svo að við getum athugað hvort að þetta virkar.

Sent: Mán 31. Jan 2005 01:26
af biggi1
ég er buinn að forwarda ip tölunni (myip) og allt í fína, en þegar ég set hana í browserinn minn, þá kemur eins og ég vilji fara í config á routernum :?

Sent: Mán 31. Jan 2005 01:27
af biggi1
allavega hér er ip 157.157.164.117

Sent: Mán 31. Jan 2005 01:44
af gumol
[fært]

Það er eðlilegt að þegar þú slærð inn IP-töluna þína þá færðu upp uppsetningartólið á routernum. Routerinn er bæði með þessa IP-tölu 157.157.164.117 sem hann fær frá simnet og ip töluna á laninu (td. 192.168.1.1). Þessvegna þegar routerinn sér að þú ert að tengjast sér af laninu þá heldur hann að þú viljir komast inn á hann og breyta honum.

Þegar einhver reynir að tengjast annarsstaðar frá en af laninu hjá þér þá veit routerinn að sá aðili á ekki að komast inná routerinn og svarar honum ekki nema það sé rétt uppsett forward frá routernum á tölvu á laninu. Þá veit hann að aðilinn vill komast á þá tölvu sem þú forwardaðir portinu á.

Það er ekki opið fyrir nein port hjá þér svo þú hefur gert eitthvað vitlaust.

Sent: Mán 31. Jan 2005 08:41
af gnarr
þú átta ð forwarda porti 80 á 192.168.1.15, en ekki á 157.157.164.117/.

þetta virkar svona:

Sent: Mán 31. Jan 2005 12:12
af biggi1
þegar þið segið forwarda ip tölu, eruði að tala um að opna port? eins og maður gerði fyrir dc?

Sent: Mán 31. Jan 2005 12:53
af ParaNoiD
jamm þú þarft að opna port 80 og forwarda því á þá tölvu sem geymir vefsíðuna.

Sent: Mán 31. Jan 2005 12:56
af biggi1
þarf ég eitthvað að gera í tölvunni nema bara að opna port á routernum?

Sent: Mán 31. Jan 2005 13:00
af ParaNoiD
ekki nema vera með html server í gangi td. apache eða eitthvað

Sent: Mán 31. Jan 2005 15:46
af MezzUp
ParaNoiD skrifaði:ekki nema vera með html server í gangi td. apache eða eitthvað
Þú meintir væntanlega http server? ;)

Og svo að biggi1 ruglist ekki(hey, gæti gerst :P) þá er hann með http server sem heitir „Simple server:WWW“

Sent: Mán 31. Jan 2005 15:50
af gnarr
hvernig er það.. getur einhver borið þetta orð úr titlinum fram?

freeweire

annars leitar maður hlutum, ekki af þeim.

Sent: Mán 31. Jan 2005 15:55
af biggi1
gnarr skrifaði:hvernig er það.. getur einhver borið þetta orð úr titlinum fram?

freeweire

annars leitar maður hlutum, ekki af þeim.


og þú bara gast ekki slept þessu?

Sent: Mán 31. Jan 2005 15:56
af gnarr
afhverju hefði ég átt að sleppa þessu?

Sent: Mán 31. Jan 2005 16:20
af Cascade
gnarr skrifaði:afhverju hefði ég átt að sleppa þessu?


Lærðiru ekki að byrja hverja setningu MEÐ STÓRUM STAF?

Þetta er komið út í öfgar hjá þér, læturu íslensku kennarann þinn prófarka lesa vaktina?

Sent: Mán 31. Jan 2005 17:15
af gnarr
Já, og ég læt hann sérstaklega leita að íslenskum orðum eins og freeweire.

Sent: Mán 31. Jan 2005 17:45
af ParaNoiD
MezzUp skrifaði:
ParaNoiD skrifaði:ekki nema vera með html server í gangi td. apache eða eitthvað
Þú meintir væntanlega http server? ;)

Og svo að biggi1 ruglist ekki(hey, gæti gerst :P) þá er hann með http server sem heitir „Simple server:WWW“


æ já sry :oops:

Sent: Mán 31. Jan 2005 17:47
af biggi1
en allavega vitiði um eitthvert forrit sem getur hostað fleirri en eina síðu?

Sent: Mán 31. Jan 2005 17:50
af gumol
apache

Sent: Mán 31. Jan 2005 18:44
af biggi1
ok takk, ég gogle það bara :)