Síða 1 af 1

Þráðlaus nettenging úr öðru húsi að trufla

Sent: Sun 30. Jan 2005 14:03
af Le Drum
Sælir.

Smá vandræði hérna, lýsir sér þannig að bróðir minn er með fartölvu heima hjá sér og þráðlausa tengingu.

Núna þegar hann er að reyna tengjast routernum hjá sér þá finnur hann annan router sem virðist vera í næsta húsi í götunni. Virðist eins og þeir sé alveg eins, allavega á nafninu sem kemur upp.

Spurningin er því, hvernig er hægt að komast hjá því að fartölvan finni router úr öðru húsi?

Einhverja hluta vegna þá virðist fartölvan velja þann router framyfir og þá dettur nettengingin út eðlilega.

Einhver með góð svör?

Sent: Sun 30. Jan 2005 14:44
af CendenZ
HMM...


frítt niðurhal ef mac address er ekki req ??? :D

Sent: Sun 30. Jan 2005 14:55
af Le Drum
Tengingin leyfir honum ekki neitt, bara truflar hans eigin og slítur síðan netinu þannig að hann getur í raun ekki dl einu eða neinu.

Sent: Sun 30. Jan 2005 14:57
af MezzUp
CendenZ skrifaði:frítt niðurhal ef mac address er ekki req ??? :D
Heh, ég stórefa að menn sem að eru með default SSID séu ekki með MAC filter

En Le Drum, þú kannt þá væntanlega ekki að breyta stillingum á router t.d SSID(„nafnið“ sem kemur upp)? Þrátt fyrir mína takmörkuðu þekkingu á WinXP og þráðlausu net þá er ég nokkuð viss um að það sé hægt að stilla hvaða AP(router) tölvan tengist fyrst(með Zeroconf í XP), en það gæti verið vandamál ef að báðir eru með sama nafn.

Sent: Sun 30. Jan 2005 16:07
af CendenZ
ég held að það séu ekkert mjög margir með mikla reynslu af wi-fi :-k


ég lenti í bölvuðu basli með wi-fi á win2k3 servernum og það er ekkert að lagast :evil:

Sent: Sun 30. Jan 2005 17:37
af gumol
Þú breytir bara SSID'inu á ap-inum þínum. Ef þetta virkar ekki ennþá þá skaltu prófa að breyta "channel"inu sem ap-inn notar.

Sent: Mán 31. Jan 2005 09:19
af W.Dafoe
MezzUp skrifaði:
CendenZ skrifaði:frítt niðurhal ef mac address er ekki req ??? :D
Heh, ég stórefa að menn sem að eru með default SSID séu ekki með MAC filter


Það er einn í nágrenni við mig sem er ekki með mac filter hjá sér og er með 8mbit tengingu. Ég fór inná netið hjá honum og ath. hvaða iptölu hann var með og reyndi svo að fá heimilisfangið hans út úr Ogvodafone en það var ekki leyfilegt.

Ætlaði að láta hann vita af þessu, ætli hann þurfi bara ekki að læra "the hard way" hvernig er að kunna ekkert á tölvur :) (djók)

Sent: Mán 31. Jan 2005 10:18
af MezzUp
W.Dafoe skrifaði:Það er einn í nágrenni við mig sem er ekki með mac filter hjá sér og er með 8mbit tengingu. Ég fór inná netið hjá honum og ath. hvaða iptölu hann var með og reyndi svo að fá heimilisfangið hans út úr Ogvodafone en það var ekki leyfilegt.
Spurning um að rúnta um með NetStumbler(minnir að það heiti það) og finna hvar merkið er sterkast? Banka svo uppá hjá honum :)

Síðan gætirðu prófað að finna tölvurnar í „My Network Places“ eða með því að pinga og senda síðan 'net send' pakka sem að poppar upp skilaboðum á tölvunni hans. :P

Sent: Mán 31. Jan 2005 10:41
af CendenZ
eða jafnvel /c$ og creata nokkra text filea


he he..

Sent: Mán 31. Jan 2005 11:45
af Le Drum
Takk fyrir allar upplýsingarnar, á eftir að prufa allt sem þið hafið stungið upp á.

Vegna anna í vinnu, þá kemst ég ekki strax í þetta hjá honum, greyinu :lol:

Will keep you posted :D

Sent: Þri 01. Feb 2005 01:09
af natti
Dafoe: Það er mjög árangursríkt að ef að viðkomandi er ekki með personal firewall á tölvunni hans, að senda bara skilaboð á tölvuna hans og segja að netið hans sé opið. Og ef að þú kemst inn á routerinn (default pass) að breyta bara um fullt af stillingum á routernum og gera það obvious. Þannig að þegar hann lætur einhvern "athuga" routerinn þá sér viðkomandi hvað málið var. Og þá verður sá sem á þessa tengingu paranoid og heimtar öryggi... :D
Hin leiðin er að sniffa traffíkina bara... ef þú ert heppinn þá notar viðkomandi msn.
Þá bara býrðu til einhvern msn account og ferð að tala við hann. :)

Sent: Þri 01. Feb 2005 06:19
af ParaNoiD
er þetta nú ekki þannig að það er ekki hægt að tengjast router nema með fastri línu ?

minnir það endilega

Sent: Þri 01. Feb 2005 07:51
af gnarr
líklegast er einhverksonar mac filtering í gangi á þessum router sem er að trufla hann. ég hef prófað router sem var með svona mac filter. maður hélt að maður væri tengdur, en það kom aldrei neitt.

Sent: Þri 01. Feb 2005 15:10
af DoRi-
fiktar þangað til að þú getur dl-að frítt á kostnað nágrannans, eða það mydni ég allavega gera

Sent: Mið 02. Feb 2005 06:53
af NortherWooD
hehe nágranni minn var með opið net. Hann var með sheraðan prentara á þráðlausa netinu...ég tengdist inná hann og prentaði út texta um að netið hans væri opið fyrir öllum og síðan mynd af jesú fyrir neðan :D
Hef ekki getað tengst inná netið hans síðan :lol:

Sent: Mið 02. Feb 2005 14:52
af Andri Fannar
Góður! :lol:

Sent: Mið 02. Feb 2005 17:10
af natti
ParaNoiD skrifaði:er þetta nú ekki þannig að það er ekki hægt að tengjast router nema með fastri línu ?

minnir það endilega

Það "var" þannig á fyrstu wifi routerum sem ég komst í samband við. En síðan hef ég ekki hitt á neinn svoleiðis síðustu 2 ár. Þarf oft að hjálpa fólki með wifi net, og accessa punktinn í gegnum þráðlaust.
Nágrannar mínir t.d. eru með... voru með þráðlausan opinn router, og hægt að komast inn á hann í gegnum wifi.

NortherWooD skrifaði:hehe nágranni minn var með opið net. Hann var með sheraðan prentara á þráðlausa netinu...ég tengdist inná hann og prentaði út texta um að netið hans væri opið fyrir öllum og síðan mynd af jesú fyrir neðan Very Happy
Hef ekki getað tengst inná netið hans síðan

Hehe, þetta er ein leiðin :D