Síða 1 af 1
Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 14:32
af dedd10
Sælir
Félagi minn er að stofna litla vefsíðu og bað mig að hjálpa sér aðeins. Hvar er best og hagstæðast að kaupa lén?
Síðuna bjó hann til í gegnum simplesite.com
Hann vantar .com helst eða .net
Hverju getið þið mælt með?
Re: Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 14:33
af worghal
Búinn að athuga squarespace?
Re: Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 15:35
af dedd10
Er það ekki til að búa til síðu? Hann er búinn að gera síðuna. Langar bara meira að vera með
www.----.com í staðinn fyrir
www.----.simplesite.com
Re: Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 15:40
af linenoise
Namecheap er fínt
Re: Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 17:50
af dedd10
Prufaði að kaupa þar, en þeir vilja ekki leyfa mér að linka við simplesite síðuna, veit einhver hvað ég get gert?
Re: Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 17:55
af Klemmi
Kaupi í gegnum GoDaddy.com því ég veit að þeir eru traustir og einfalt að framkvæma allt hjá þeim.
Hef tvisvar notað aðra og í bæði skiptin fóru mér að berast tölvupóstar frá einhverjum öðrum fyrirtækjum, s.s. augljóst að þeir voru að dreifa netfanginu mínu :/
Almennt þarftu að stilla DNS stillingarnar rétt, gefið að SimpleSite bjóði þér að nota domain sem þú kaupir frá öðrum... þeir eru líka að selja domain (innifalið í PRO pakkanum sýnist mér), svo það er ekkert sjálfgefið að þeir bjóði upp á það.
Re: Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 23:01
af Viktor
Klemmi skrifaði:Kaupi í gegnum GoDaddy.com því ég veit að þeir eru traustir og einfalt að framkvæma allt hjá þeim.
Hef tvisvar notað aðra og í bæði skiptin fóru mér að berast tölvupóstar frá einhverjum öðrum fyrirtækjum, s.s. augljóst að þeir voru að dreifa netfanginu mínu :/
Almennt þarftu að stilla DNS stillingarnar rétt, gefið að SimpleSite bjóði þér að nota domain sem þú kaupir frá öðrum... þeir eru líka að selja domain (innifalið í PRO pakkanum sýnist mér), svo það er ekkert sjálfgefið að þeir bjóði upp á það.
Eru netföngin ekki opinber hverjum sem er í gegnum whois þjónustur?
Re: Kaupa lén
Sent: Mán 13. Mar 2017 23:07
af Klemmi
Sallarólegur skrifaði:Eru netföngin ekki opinber hverjum sem er í gegnum whois þjónustur?
Jú, nema þú borgir aukalega fyrir að hafa þetta leynt. Hins vegar þá þurfa þeir að hafa fyrir því að fletta urlinu upp.
Ég tel það ekki bara tilviljun að þetta hafi aldrei gerst eftir að ég kaupi url hjá GoDaddy, en hafi gerst tvisvar hjá mismunandi öðrum léns-herrum í beinu framhaldi af keyptum lénum
Re: Kaupa lén
Sent: Þri 14. Mar 2017 22:06
af nidur
Ég nota bluehost fyrir mín lén, hafa staðið sig vel, var með hosting hjá þeim í mörg ár.
Eurodns virka líka vel.
Re: Kaupa lén
Sent: Þri 14. Mar 2017 22:29
af Hjaltiatla
Ég nota Godaddy , mæli samt að vera með fyrirframgreitt kredikort ef þú ert að díla við þá . Hef lent í því að þetta skrítna Automatic kerfi þeirra reyni að rukka mig þó ég hafi ekki valið Auto renew á áskrift sem ég var með hjá þeim.
Þjónustan er mjög góð (24/7) , hef tvisvar hringt í þá þegar ég var ekki öruggur með ákveðna DNS breytingu og þau gátu leiðbeint mér mjög vel.