Síða 1 af 2

Windows XP x64 RC1

Sent: Mið 26. Jan 2005 19:59
af emmi
Þeir sem vilja prófa RC1 af Windows XP x64. :)

Sent: Fim 27. Jan 2005 05:19
af Ice master
er þetta xp 64 dæmi sem allir eru að tala um :roll:

Sent: Fim 27. Jan 2005 07:42
af kristjanm
Ice master skrifaði:er þetta xp 64 dæmi sem allir eru að tala um :roll:


Já, þetta er Release Candidate 1 fyrir Windows XP 64-bit Edition. Ekki fullkláruð útgáfa.

Sent: Fös 28. Jan 2005 12:24
af biggi1
hver er munurinn á 32 og 60???

Sent: Fös 28. Jan 2005 12:36
af Stutturdreki
biggi1 skrifaði:hver er munurinn á 32 og 60???


Bitarnir segja til um hversu stór 'gögn' stýrikerfið getur unnið með í einu.

Sent: Fös 28. Jan 2005 12:51
af gumol
biggi1 skrifaði:hver er munurinn á 32 og 60???

28

Sent: Fös 28. Jan 2005 13:50
af jericho
gumol skrifaði:
biggi1 skrifaði:hver er munurinn á 32 og 60???

28


#-o ég fatt'ekki


:^o

Sent: Fös 28. Jan 2005 13:59
af Dust
Og hvernig er með drivers og allt það sem maður þarf, eru aðrir framleiðendur farnir að gera einhvað í því ?? :oops:

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:18
af CendenZ
það er mjög erfitt að vera með leikjavél á 64 bita windows.

driversupport er algjört nei. :x

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:34
af Dust
Vá hvað ég er forvitinn :? en ég læt af því....úr hverju er þessi klippa CendenZ ?? haha

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:41
af Johnson 32
Office Space hehe er hann ekki að hamra á prentar eða faxtæki?? Þekki þessa tilfinningu ;)

Sent: Fös 28. Jan 2005 14:53
af CendenZ
helvítis faxtækið sem þeir notuðu til að ljósrita.

Sent: Fös 28. Jan 2005 15:09
af biggi1
svo á ég að fá mér 64 bit á serverinn og svoleiðis og 32 á leikjavélina?

Sent: Fös 28. Jan 2005 16:36
af MezzUp
CendenZ skrifaði:helvítis faxtækið sem þeir notuðu til að ljósrita.
og svo ég vitni í Samir Nagheenanajar: „Piece of shit“

Sent: Fös 28. Jan 2005 23:53
af Dust
Hahahaha uðvita sé það núna.....flashing before my eyes

Sent: Lau 29. Jan 2005 00:32
af CendenZ
MezzUp skrifaði:
CendenZ skrifaði:helvítis faxtækið sem þeir notuðu til að ljósrita.
og svo ég vitni í Samir Nagheenanajar: „Piece of shit“


já lol, það var svo reiður gaur!

Sent: Lau 29. Jan 2005 01:48
af kristjanm
biggi1 skrifaði:svo á ég að fá mér 64 bit á serverinn og svoleiðis og 32 á leikjavélina?


Frekar 64 bita á bæði.

Windows Longhorn, sem er næsta útgáfa á eftir Windows XP, mun ekki styðja 32 bita örgjörva samkvæmt minni bestu vitund. Það á að koma í lok 2006.

Kannski verðurðu löngu búinn að uppfæra þá en það er betra að vera öruggur.

Fyrir utan það eru AMD Athlon 64 langbestu örgjörvarnir fyrir leiki í dag og þeir eru 64 bit.

Sent: Lau 29. Jan 2005 02:15
af gnarr
longhorn mun pottþétt styðja 32bit. ég veit ekki hvar þú heyrðir að það verði bara fyrir 64bit. en miðað við að intel er enþá að selja 32bita örgjörfa.. og EKKERT nema 32 bita örgjörfa fyrir heimilistölvur, þá er 64bita markaðurinn ALLTOF lítill til að MS gefi longhorn bara út sem 32bita.

Sent: Lau 29. Jan 2005 02:38
af kristjanm
Ég hef lesið á nokkrum stöðum að Longhorn verði 64 bit.

Intel eru að fara að rúlla út 64 bita Prescott 2MB L2 Cache örgjörvum núna á næstu vikum, sem verða kallaðir 6xx. Svo koma dual-core örgjörvar í Q2 sem verða 64 bit líka, og þeir eru meira að segja að fara að gera alla Celeron örgjörvana 64 bita innan skamms.

Það eru tvö ár þangað til Longhorn kemur út.

En annars getur vel verið að ég hafi rangt fyrir mér með Longhorn, ég hef samt lesið þetta á einhverjum tölvusíðum.

Sent: Lau 29. Jan 2005 09:07
af so
Ég trúi ekki öðru en að Longhorn styðji 32 bit líka. Svolítið mikil útilokun hjá MS ef það gerir það ekki.

Annars væri fróðlegt að heyra hvað MS proffar eins og ICM segja um það :D

Sent: Lau 29. Jan 2005 11:28
af KnottyMaggi
Gæti vel trúað að þeir mundu gera það.

Sent: Lau 29. Jan 2005 13:32
af ICM
LOL að sjálfsögðu mun bæði vera 32 og 64bit útgáfa af NT6
Enda eru þeir að flytja nær allt nema kjarnan yfir í .NET en þar sem NT kjarnin var upprunalega gerður til að virka á mörgum ögjörvum ætti ekki að vera mikið mál að flytja hann á önnur kerfi, þeir þurfa nú að fá einhvern 64bit kjarna á XBox2 og það er RISC örgjörvi í henni. geysp!

Sent: Lau 29. Jan 2005 14:34
af kristjanm
Þeir virðast nú eiga í alveg nógu miklum vandræðum með að gera Windows XP 64 bit ef þið hafið ekki tekið eftir því.

Ég get ekki séð af hverju það ætti að vera neitt minna vandamál að gera bæði 64 bita útgáfu og 32 bita af Longhorn. Reyndar myndi ég halda að það væri miklu stærra vandamál þar sem að Longhorn á eftir að vera miklu stærra en WinXP.

Sent: Lau 29. Jan 2005 14:41
af kristjanm
Ég vil bæta því við að ég er enginn forritari eins og ég býst við að þið IceCaveman og gnarr séuð.

Ég hef bara lesið þetta á tölvufréttasíðum þar sem menn ekki síðri en þið skrifið greinarnar.

Sent: Lau 29. Jan 2005 17:56
af ICM
kristjanm það eru margar ástæður fyrir því að Windows XP x64 var frestað svona mikið,

T.d. Intel, þar sem Microsoft vita auðvitað að það tekur því ekki að gefa út stýrikerfið fyrir AMD örgjörvana ef það þarf svo að gefa það út aftur sér fyrir Intel ef það virkar ekki rétt.