Síða 1 af 1
Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Sun 22. Jan 2017 04:02
af RassiPrump
Ég ákvað loksins að sjá ljósið og er að vinna í að færa mig frá Símanum til Hringdu og þannig að spara mér 4 til 6 þúsund á mánuði í net og síma. En það sem ég var að velta fyrir mér er það hvort einhver hefur reynslu af þessum Kasda router sem þeir bjóða uppá (er ekki á ljósleiðarasvæði því miður) og hvort það sé eitthvad vit í þeim. Eða hvort eru einhverjir betri valkostir á ljósnetsrouterum, sem hægt er að nota Sjónvarp Símans við?
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Sun 22. Jan 2017 12:47
af GuðjónR
Ég fékk svona router hjá þeim á sínum tíma þegar ég var með ljósnetið, hann virkaði mjög vel.
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Sun 22. Jan 2017 13:24
af RassiPrump
Ok flott. Takk!
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Sun 22. Jan 2017 15:15
af russi
Systir mín fékk einn, WiFi á honum var hálfgert drasl, ég loggaði mig inná hann og skoðaði og þar var semsagt allt rétt stillt og ýmsir ágæit möguleikar í honum.
Hún fékk svo annan Kasda frá þeim og hann er bara mjög fín. Hefur bara verið bilað WiFi á þeim sem hún fékk fyrst,
Held að þetta sé ágæt grey, en þeir looka sem algert dót
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Sun 22. Jan 2017 15:26
af GuðjónR
russi skrifaði:Systir mín fékk einn, WiFi á honum var hálfgert drasl, ég loggaði mig inná hann og skoðaði og þar var semsagt allt rétt stillt og ýmsir ágæit möguleikar í honum.
Hún fékk svo annan Kasda frá þeim og hann er bara mjög fín. Hefur bara verið bilað WiFi á þeim sem hún fékk fyrst,
Held að þetta sé ágæt grey, en þeir looka sem algert dót
Já þeir looka mjög "cheap" ... eiginlega ljótasti router sem ég hef haft til afnota, en virkaði ágætlega samt.
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Sun 22. Jan 2017 16:17
af RassiPrump
Það var einmity ástæðan fyrir þessu innleggi hjá mér, finnst þeir looka svo ódýrt drasl eitthvað. En þar sem maður er ekki á ljósleiðarasvæði þá prófar maður þetta bara. En er vit í að kaupa routerinn eða leigja bara?
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Sun 22. Jan 2017 19:31
af Minuz1
RassiPrump skrifaði:Það var einmity ástæðan fyrir þessu innleggi hjá mér, finnst þeir looka svo ódýrt drasl eitthvað. En þar sem maður er ekki á ljósleiðarasvæði þá prófar maður þetta bara. En er vit í að kaupa routerinn eða leigja bara?
Kaupa, borgar sig upp mjög fljótlega (á meðan hann er ennþá í ábyrgð)
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Mán 23. Jan 2017 09:27
af Geronto
Minuz1 skrifaði:RassiPrump skrifaði:Það var einmity ástæðan fyrir þessu innleggi hjá mér, finnst þeir looka svo ódýrt drasl eitthvað. En þar sem maður er ekki á ljósleiðarasvæði þá prófar maður þetta bara. En er vit í að kaupa routerinn eða leigja bara?
Kaupa, borgar sig upp mjög fljótlega (á meðan hann er ennþá í ábyrgð)
Ég get ekki verið sammála þessu, tökum sem dæmi að þú kaupir Kasda KW5212 sem er hringdu eru með til sölu á 11.990kr, router leiga hjá þeim er 790kr á mánuði, þessi router er 15 mánuði að borga sig upp og það er ef þú kaupir þennan mjög ódýra router hjá Hringdu, mjög líklegt að innan þessa 15 mánaða verði RassiPrump kominn inn á ljósleiðara svæði og þá nýtist Kasda ekki neitt afþví að hann er xDSL router, ég myndi allavega persónulega ekki kaupa mér router fyrir xDSL núna. það er ólíklegt að hann nái að borga sig upp áður en að ljósleiðarinn komi til þín hvar sem þú ert á landinu.
Að mínu mati er best að leigja routerinn hjá isp-anum þínum vegna þess að ef hann bilar eða eitthvað kemur upp á, þá þarft þú ekki að standa í því heldur ferðu bara með hann og færð nýjan.
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Þri 24. Jan 2017 14:03
af RassiPrump
Já ég held ég leigji hann, veit reyndar ekki hvort verði kominn ljósleiðari hérna á næstu árum, en sé ekki fyrir mér að búa það lengi hérna að væri kannski rétt svo búinn að borga sig upp haha. Takk fyrir öll svörin!
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Mið 25. Jan 2017 16:00
af Climbatiz
Kasda? eru Hringdu ekki með einhvern Netgear router á leigu?
Re: Varðandi routera hjá Hringdu
Sent: Mið 25. Jan 2017 16:50
af Geronto
Climbatiz skrifaði:Kasda? eru Hringdu ekki með einhvern Netgear router á leigu?
Samkvæmt verðskránni hjá þeim þá eru þeir bæði með netgear og kasda og virðast nota netgear á ljósleiðaratengingar
edit: og kasda á ljósneti sem að rassiprump er að spurja útí
- 215240e7c538991be9bb704adb25fd1a.png (43.48 KiB) Skoðað 1967 sinnum