Síða 1 af 1
Open Office
Sent: Þri 25. Jan 2005 19:52
af Skrekkur
Hinn frábæri skrifstofu/námsmanna pakki, sem gefur Microsoft office ekkert eftir í Þessum pakka er, Ritvinnsla, töflureiknir, Glærugerir og margt fleira.
Þessi pakki getur nokkuð óaðfinnanlega opnað hin ýmsu Microsoft office skjöl, eins og .doc .ppt .xls og fleiri, getur vistað einföld skjöl í þeim líka, en best er að nota hans eigið format, og reyndar er frír pdf exporter innifalinn.
Heimasíða pakkans er
http://www.openoffice.org/<br>
Hægt er að nálgast nýjustu beta útgáfuna hér [url]http://ftp.rhnet.is/pub/OpenOffice/developer/680_m69/OOo_1.9.m69_native_Win32Intel_install.zip[url]
Og nýjasta stable hér
http://ftp.rhnet.is/pub/OpenOffice/stable/1.1.4/
binaries eru þarna fyrir Linux, Solaris og Windows
Með fylgja svo skjáskot úr nokkrum forritunum í pakkanum
oops
Sent: Þri 25. Jan 2005 19:53
af Skrekkur
átti að fara í freeware dálkinn, væri einhver til í að færa þetta, farinn að borða bæ
Sent: Þri 25. Jan 2005 20:08
af tms
OpenOffice 2 fer að koma bráðlega
Sent: Þri 25. Jan 2005 20:15
af ICM
Gefur Microsoft Office ekkert eftir? LoL þú ert algjör nýliði en samt wannabe nörd.
óþarfa skítmannkast
Sent: Þri 25. Jan 2005 20:52
af Skrekkur
Ættir að passa þín stóru orð, er nokkuð viss um að þú hefur ekki prófað open-office nýlega, sure það hefur ekki alla features sem m$ office hefur en ansi marga og flestir munu ekki sakna neins, auk þess sem eru margir nýjir hlutir í þessu sem eru ekki í office pakkanum, varðandi 2.0 þá gaf ég vísum á 2.0 betunna og ég er að nota hana núna, einusinni crashað og komið mjög fínt doc recovery í það.
Icecaveman farðu bara aftur í hellinn þinn, og horfðu svo á kynninguna á windows media center 2005(jafnvel verra en win98 showcaseið, en fyndnara).
Neinei að öllu gríni slepptu er ég engin linux zealot eða neitt þannig, nota windows og finnst win2k og winxp mjög góð kerfi að nokkrum smáatriðum slepptum.
Hugsaðu áður en þú tjáir þig
, (o boy does this invite a flamewar)
Sent: Þri 25. Jan 2005 20:53
af MezzUp
IceCaveman skrifaði:Gefur Microsoft Office ekkert eftir? LoL þú ert algjör nýliði en samt wannabe nörd.
LOL já, það er common sense að MS-
hvaðsemer er best og þeir sem hafa ekki sömu skoðanir og þú eru algjörir núbbar
Zealots
Sent: Þri 25. Jan 2005 20:55
af Skrekkur
Vá langt síðan ég varð hérna síðast, Microsoft (og hugsanlega annarskonar) zealotar fleiri en ég hélt. Æ vá hef ekki tíma fyrir þetta, back to java
Re: Zealots
Sent: Þri 25. Jan 2005 21:45
af ErectuZ
Skrekkur skrifaði:Vá langt síðan ég varð hérna síðast, Microsoft (og hugsanlega annarskonar) zealotar fleiri en ég hélt. Æ vá hef ekki tíma fyrir þetta, back to java
Reyndar bara einn "Microsoft Zealot" hérna sem þú ættir að spá í að forðast
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 02:45
af Skrekkur
Bara smá gamni 9 árum síðar. Microsoft excel, ef maður þarf alvöru dót er eina sem virkar almennilega. Opni hugbúnaðurinn og google docs er fínt fyrir svona létta meðal notkun. Ritvinnslan er nokkuð góð, en microsoft er langt yfir samkeppnina með Excel.
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 11:59
af Gislinn
Skrekkur skrifaði:Bara smá gamni 9 árum síðar. Microsoft excel, ef maður þarf alvöru dót er eina sem virkar almennilega. Opni hugbúnaðurinn og google docs er fínt fyrir svona létta meðal notkun. Ritvinnslan er nokkuð góð, en microsoft er langt yfir samkeppnina með Excel.
Ef ég mætti forvitnast, hvað er það sem Excel hefur svona stórkostlega fram yfir OpenOffice/LibreOffice calc?
Ég get ekki séð að Excel sé eitthvað að valta yfir opna hugbúnaðinn.
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 12:31
af Hjaltiatla
Ég nota Excel hæfilega mikið (enginn snillingur) en t.d hlutir eins og Power pivot og framsetning á tölulegum gögnum er mun betri hjá Microsoft vs Open office að mínu mati.
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 12:39
af Bjosep
Gislinn skrifaði:Skrekkur skrifaði:Bara smá gamni 9 árum síðar. Microsoft excel, ef maður þarf alvöru dót er eina sem virkar almennilega. Opni hugbúnaðurinn og google docs er fínt fyrir svona létta meðal notkun. Ritvinnslan er nokkuð góð, en microsoft er langt yfir samkeppnina með Excel.
Ef ég mætti forvitnast, hvað er það sem Excel hefur svona stórkostlega fram yfir OpenOffice/LibreOffice calc?
Ég get ekki séð að Excel sé eitthvað að valta yfir opna hugbúnaðinn.
Án þess að það sé einhver sérfræðingur í notkun excel eða Oo calc þá myndi ég ætla að það væri meiri stuðningur við einhverskonar fjármálaútreikninga í Excel, flestir eru jú að nota forritið til þess.
Eins minnir mig að það séu fleiri valmöguleikar þegar kemur að plot-dæminu þ.e. hvað það varðar að búa til leitnilínur og eitthvað. Reyndar ekkert held ég sem ekki má búa til með forritum eins og Matlab eða R en það var allavega það sem ég rak mig á síðast þegar ég var eitthvað að nota töflureikni síðast.
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 15:25
af worghal
var ekki uppfært excel klóninn hjá google um daginn ?
og átti það ekki að vera orðið betra en excel sjálft?
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 16:23
af rapport
Excel hefur margt fram yfir töflureiknana í Open Office, Libre Office, Gnome Office og Caligra.
En við erum að bera saman ókeypis hugbúnað saman við fokdýran hugbúnað.
Stór fyrirtæki geta spara gríðarlegar upphæðir með því að skipta yfir í Open Source.
Þar sem ég vinn erum við með um 5000 starfsmenn, 3500 tölvur og líkleg aum 8000 notendur í AD.
Að lækka leyfiskostnað pr. vél um 15þ. = 15.000 x 3.500 = 52.500.000 kr.
Og ef einhver einn eða tvöhundruð þurfa nauðsynlega excel, þá er það ekkert mál, sparnaðurinn er samt gríðarlegur.
Hér er fínt safn yfir opinn hugbúnað sem gott er að leita í:
http://www.opensourcesoftwaredirectory.com/ og
http://www.fosshub.com/Til fullt af svona möguleikum sbr. Google Docs og öll þessi öpp sem eru nún aí boði.
En eins og einn í vinnunni segir alltaf, ef þú ert ekki að borga fyrir product, þá geturverið að þú sért productið og einhver annar sé að borga.
Dæmi um það er t.d. Spiceworks, þar er hægt að fá helling af nice hugbúnði ókeypis, en auglýsingar og spam fylgir...
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 17:49
af tdog
rapport skrifaði:Þar sem ég vinn erum við með um 5000 starfsmenn, 3500 tölvur og líkleg aum 8000 notendur í AD.
Hver á þessa 3000 notendur sem ekki eru starfsmenn?
Re: Open Office
Sent: Sun 23. Mar 2014 21:24
af Gislinn
Hjaltiatla skrifaði:Ég nota Excel hæfilega mikið (enginn snillingur) en t.d hlutir eins og Power pivot og framsetning á tölulegum gögnum er mun betri hjá Microsoft vs Open office að mínu mati.
PowerPivot er svo dæmi um function sem þú færð
ekki með ódýrari útgáfunum af excel 2013, sem er enn ein fáranleg leyfismálsstefna sem microsoft tekur.
rapport skrifaði:Excel hefur margt fram yfir töflureiknana í Open Office, Libre Office, Gnome Office og Caligra.
En við erum að bera saman ókeypis hugbúnað saman við fokdýran hugbúnað.
*snip*
Eins hefur Calc í þessum pökkum fídusa sem þú finnur ekki í Excel (eitt gott dæmi er fjölda tungumála sem eru supportuð fyrir macros í stað VBA eingöngu hjá MS).
Kostnaðurinn er klárlega galli við MS office.
Ef ég ætti að velja eitthvað eitt sem MS office hefur langt fram yfir allt open source alternatives þá væri það MS Outlook. Ég myndi telja að sá hópur sem er að nota excel á því stigi að open source alternatives dugi ekki til séu engan vegin sá markhópur sem open source alternatives eru að reyna að ná til.
rapport skrifaði:*snip*En eins og einn í vinnunni segir alltaf, ef þú ert ekki að borga fyrir product, þá geturverið að þú sért productið og einhver annar sé að borga.*snip*
En með open source forritum getur þú bara skoðað source-inn til að sjá hvort það sé eitthvað í kóðanum sem þér líkar ekki við, þú getur þá tekið það út og compile-að aftur án allra þeirra fídúsa sem þú ert ósáttur við.
Re: Open Office
Sent: Mán 24. Mar 2014 01:50
af rapport
tdog skrifaði:rapport skrifaði:Þar sem ég vinn erum við með um 5000 starfsmenn, 3500 tölvur og líkleg aum 8000 notendur í AD.
Hver á þessa 3000 notendur sem ekki eru starfsmenn?
Aðrar heilbrigðisstofnanir, HSS, SFA, HSU og hvað sem þetta allt heitir.
Re: Open Office
Sent: Fös 18. Apr 2014 02:43
af Skrekkur
Excel (fyrir windows amk) vinnur mjög auðveldlega með 250+ þúsund línur. Þó það sé nokkuð gamalt, þá eru pivot töflur afar nytsamlegar. Gröfin eru mjög þægileg. En eins og ég segji Excel er best fyrir ákveðna hluti 80% af tímanum dugar openoffice fínt eða google docs sem verður alltaf betra og betra. MS Excel er overkill fyrir standard notandann, sem þarf bara summur og margföldun
Re: Open Office
Sent: Fös 18. Apr 2014 11:50
af upg8
2014 og enn er viðmótið á Open Office eins og það hafi verið hannað fyrir 15 árum.
Það er fjöldi staðgengla sem eru miklu þægilegri en Open Office t.d. þetta hérna
http://www.kingsoftstore.com/software/kingsoft-office-freeware Miklu betri stuðningur við skrár sem koma úr Microsoft Office forritum.
Veit ekki afhverju umræðan þarf alltaf að snúast um Open Source lausnir vs. Microsoft þegar það er fullt af góðum proprietary lausnum í boði.