Síða 1 af 1
Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mið 28. Des 2016 10:59
af emmi
Þessi router er svakalegur, innbyggður Plex server og fleira góðgæti.
Verðmiðinn er þó ekki eins skemmtilegur, en hann mun kosta um $450-500.
http://netgear.com/landings/ad7200/?cid ... ic#compare
Re: Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mið 28. Des 2016 15:10
af Tiger
Hvernig ætli hann höndli að transcoda t.d. 5 strauma af +10mbps myndböndum samtímis?
Re: Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mið 28. Des 2016 15:19
af depill
Tiger skrifaði:Hvernig ætli hann höndli að transcoda t.d. 5 strauma af +10mbps myndböndum samtímis?
Illa örugglega. Ég er bara ekki einu sinni hrifinn af því að hafa WiFi í routerunum mínum.
Hefur reynst mér einhvern megin best að hafa þetta allt í sitt hvoru lagi.
Re: Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mið 28. Des 2016 15:42
af hagur
depill skrifaði:Tiger skrifaði:Hvernig ætli hann höndli að transcoda t.d. 5 strauma af +10mbps myndböndum samtímis?
Illa örugglega. Ég er bara ekki einu sinni hrifinn af því að hafa WiFi í routerunum mínum.
Hefur reynst mér einhvern megin best að hafa þetta allt í sitt hvoru lagi.
Sammála. Fyrir þennan prís er hægt að fá geggjað Ubiquiti setup. Edgerouter Lite eða X og 2 Unifi AC WIFI access points og samt eiga slatta í afgang. Svona all in one græjur eru ekki málið að mínu mati, nema kannski fyrir almenna notendur sem nenna ekki að pæla í neinu.
Re: Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mið 28. Des 2016 19:30
af russi
Jæja, hann er þó ekki fox-ljótur að sjá, held að það séu einu meðmælin sem hann fær frá mér.
Annars er ég á sama vagni og aðrir, þ.e. vera með sér tæki fyrir WiFi og sér router
Re: Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mið 28. Des 2016 19:44
af GuðjónR
Þessi er flottur, flott ljósin í loftnetunum.
Annars þá langar mig svakalega til þess að taka netkerfið hjá mér í gegn og setja upp Ubiquiti kerfi eins og hagur talar um, Unifi dótið er bara svo svakalega minimal og flott.
Re: Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mið 28. Des 2016 23:19
af asgeirbjarnason
Eitt sem mér fannst mjög áhugavert við þennan router; hann er með 10gig SFP+ port, sem er eitthvað sem ég hef ekki séð á heimarouter áður.
Re: Nýr router frá Netgear - BEAST!
Sent: Mán 02. Jan 2017 20:06
af depill
GuðjónR skrifaði:Þessi er flottur, flott ljósin í loftnetunum.
Annars þá langar mig svakalega til þess að taka netkerfið hjá mér í gegn og setja upp Ubiquiti kerfi eins og hagur talar um, Unifi dótið er bara svo svakalega minimal og flott.
Mæli með því. Er með 2x UniFi AC LR access punkta + EdgeRouter Lite, þetta eru algjörar eðalgræjur sem bara virka og eru ekkert fyrir manni.