Síða 1 af 1
Net... Nettenging !
Sent: Sun 23. Jan 2005 01:10
af barabinni
Ég er búinn að vera með 2mb tengingu lengi hjá símanum og reyndist það mjög vel. En núna þegar ég fór og prufaði eða prufaði ekki tenginguna hjá hive. Þá hef ég verið að velta fyrir mér. Hvað er best að gera ? Mig langar að fá stærri tengingu en 2-3 mb en það er erfitt þar sem það eru bara 2 fyrirtæki á markaðnum sem bjóða uppá þá þjónustu og það er hive og btnet. Ég veit ekki hvort þetta sé rétt að vodafone bjóði uppá 6mb tengi en það kemur bara í ljós á morgun.
Allavega eftir mína reynslu af hive sem var sú að ég beið í 2 vikur eftir að fá tenginguna í gang og þegar hún komst loks í gang þá virkaði hún yfirleitt ekki lengur en 3 mín og drap þá á sér. Og svona ýmislegt skemmtilegt sem kom uppá sem ég nenni ekki að telja upp. Allavega var þetta hrein hörmung og er ég búinn að segja þeim upp fyrir að hafa pirrað mann of oft. Yfirleitt er það ekki gott að pirra viðskiptavini sína.
Ætti að benda þeim á það. En allavega. Hver er ykkar reynsla af þessu ? Hvað eru áreiðanlegustu tengingarnar. Og er eitthvað vit í því að fá sér þessa 8mb tengingu hjá btnet ? Eða á maður bara að sætta sig við þær 3mb sem síminn og ogvodafone bjóða uppá ?
Sent: Sun 23. Jan 2005 02:04
af natti
Spurning um verð á vöru/gæði vs. þjónustu.
Held það væri lang skynsamlegast fyrir þig að vera hjá Símanum áfram í svona 2-3 mánuði, og sjá þá hvernig Hive er að standa sig eftir ætlaðar stækkanir.
Spurning líka hvort að á þeim tíma munu stóru fyrirtækin koma með mótsvar í hraða (adsl2+).
Sent: Sun 23. Jan 2005 06:53
af fallen
ég elska þig brynjar :\
en annars er simnet best hef sagt þér það margoft
LISTEN TO ME MATHAFAKKAHHHHHHHHH
Sent: Sun 23. Jan 2005 13:38
af gumol
Farðu til OgVodafone. Þeir eru yfirleitt aðeins ódýrari og tengingin dettur aldrei út (hjá mér amk.)
Sent: Sun 23. Jan 2005 14:33
af biggi1
gumol skrifaði:Farðu til OgVodafone. Þeir eru yfirleitt aðeins ódýrari og tengingin dettur aldrei út (hjá mér amk.)
hún hefur aldrei dottið út hjá mér, ég er hjá símanum
Sent: Sun 23. Jan 2005 15:42
af gumol
En eins og allir vita er mandarínan betri en appelsínan
Sent: Sun 23. Jan 2005 16:00
af CraZy
mér fynnst persónulega appelsína betri en mandarína..
annars mæli ég bara með símanum
Sent: Sun 23. Jan 2005 17:08
af andrig
var hjá símanum fyrir svona 1 ári... get ekki sagt neitt annað en að ég hafi verið eins óánægður og ég mögulega hefði geta verið...
skipti yfir í
Vodafone og allt flott í dag.. og er ekki á leiðini að skipta...
nema einhver fari að bjóða uppá 100mps á fínu verði sem verður ekki í bráð
dfdf
Sent: Sun 23. Jan 2005 21:59
af sprelligosi
er síminn ekki kominn með frítt dl þessa dagana
Sent: Sun 23. Jan 2005 22:06
af Zkari
Síminn og Vodafone eru kominn með hálfgert frítt dl ef þú dlar meira en 2gb á mánuði, þá borgaru bara 5990 (minnir mig, man ekki verðið nákvæmlega)
Sent: Mán 24. Jan 2005 20:20
af natti
andrig skrifaði:var hjá símanum fyrir svona 1 ári... get ekki sagt neitt annað en að ég hafi verið eins óánægður og ég mögulega hefði geta verið...
skipti yfir í
Vodafone og allt flott í dag.. og er ekki á leiðini að skipta...
nema einhver fari að bjóða uppá 100mps á fínu verði sem verður ekki í bráð
Það er hægt að segja "slæmar" sögur um öll fyrirtæki. Það er heill hellingur af fólki sem hefur sorgarsögu að segja af fyrirtæki X. Hvort sem það er Síminn, OgWtf, Margmiðlun, Vortex, etc.
Sent: Fim 27. Jan 2005 23:35
af w.rooney
gumol skrifaði:Farðu til OgVodafone. Þeir eru yfirleitt aðeins ódýrari og tengingin dettur aldrei út (hjá mér amk.)
Hún hlýtur að hafa dottið út hjá þer í dag þegar að línan datt út hjá þeim
.. en annas myndi ég aldrei mæla með ogvodafone, tengingin er alltaf að detta út hjá mer !!
Sent: Fim 27. Jan 2005 23:38
af ParaNoiD
ég var með íslandssíma/ogvodafone í einhver ár ... datt einu sinni út.
komst að því svo seinna að einhver snillingur hefði skemmt sístöðina og enginn á svæðinu hafði net .. hvorki síminn nér voddafokk
Sent: Fös 28. Jan 2005 00:34
af gumol
w.rooney skrifaði:Hún hlýtur að hafa dottið út hjá þer í dag þegar að línan datt út hjá þeim
.. en annas myndi ég aldrei mæla með ogvodafone, tengingin er alltaf að detta út hjá mer !!
Jú, þetta er mjög óþægileg tilfinning, kemur vonandi ekki fyrir aftur. Þetta er samt ekki eitthvað sem gerist á hverjum degi hjá þeim, eina skiptið sem þetta hefur dottið svona út hjá mér.
Sent: Lau 29. Jan 2005 14:20
af KinD^
ég var með 6mbit tengingu hjá ogwtf held þeir bjóði meirasegja allt upp í 8 mbit þannig að það ætti ekki að vera neitt vandamál
myndi allavega skella mér á ogwtf en hvernig er það þarftu samt ekki að borga þessa 12 mánuði hjá hive eða fórstu dýru leiðina og borgaðir bara 1 mánuð or sum ?