Síða 1 af 1
Besti búnaður / Milli hæða
Sent: Lau 22. Jan 2005 15:24
af END
Nú styttist í það að önnur tölva bætist við á heimilinu, sjá:
http://spjall.vaktin.is/viewtopic.php?t=7081 Þessar tölvur verða á sitt hvorri hæðinni svo nauðsynlegt verður að koma upp þráðlausu neti á milli þeirra.
Núna spyr ég hvað sé best að kaupa og hvaða búnað þurfi? Er málið að versla við Síminn eða á ég að kaupa búnaðinn annars staðar? (Ég er með ADSL tengingu frá Símanum)
Viðbætt: Auk þess að tengja þessar tölvur saman, vil ég líka tengja nokkurra ára fartölvu, sem hefur aldrei verið í stöðugri nettengingu og það vantar í hana netkort. Fartölvan er með Windows 2000 Professional en hinar eru/verða með Windows XP Pro.
Meiri viðbætur: "Samkvæmt okkar reynslu drífur hefðbundinn búnaður lítið sem ekkert á milli hæða og allt að 50 metrum innanhúss."
Þetta las ég á síðunni hjá margmiðlun:
http://www2.mi.is/einstaklingar/adsl_wifi.asp
Er eitthvað til í þessu? Hvað er þá til ráða fyrir mig?
Sent: Lau 22. Jan 2005 22:24
af Pandemic
Afhverju ekki bara að leggja cat5se kapal á milli mjög lítið mál ferð bara í húsasmiðjuna og kaupir þér kapal og endastykki og færð lánaða töng í þetta og notar smá sápu eða feiti og dregur í húsið
Sent: Sun 23. Jan 2005 01:56
af END
Hehe, það væri nú meira vesenið, ekki vill maður hafa snúrur liggjandi um öll gólf
Hæðirnar eru vel lokaðar af (eins og tvær íbúðir) og staðurinn sem hægt væri að draga snúru á milli er amk 15 metrum frá hvorri tölvu, bæði á efri og neðri hæðinni.
Sent: Sun 23. Jan 2005 01:57
af Pandemic
Við bræðurnir vorum nú að draga á milli íbúða í dag ekkert mál fórum bara í gegnum aðaltöfluna annars ef þú vilt endilega þráðlaust þá mæli ég með linksys vörum.
Sent: Sun 23. Jan 2005 11:22
af END
Það er ekki málið að ég vilji ekki tengja á milli með kapli ég held bara að það sé ekki hægt. Það er einn staður þar sem hægt er að leiða snúru í geng og hann er núna upptekinn fyrir tengingu við sjónvarpsloftnetið.
Hvaða Linksys búnað þarf ég að kaupa og hvar er best að kaupa?
Sent: Sun 23. Jan 2005 13:06
af Fletch
END skrifaði:Það er ekki málið að ég vilji ekki tengja á milli með kapli ég held bara að það sé ekki hægt. Það er einn staður þar sem hægt er að leiða snúru í geng og hann er núna upptekinn fyrir tengingu við sjónvarpsloftnetið.
Hvaða Linksys búnað þarf ég að kaupa og hvar er best að kaupa?
nærðu ekki að draga cat5 kapall með loftnetinu? rörin eru sverari en loftnetskapall, getur dregið loftnetið til baka, fest cat5 með og togað til baka
Fletch
Sent: Sun 23. Jan 2005 13:09
af END
Það er kannski hægt Fletch, ég þekki þetta bara ekki nógu vel.
Hversu langur getur cat5 kapall verið?
Sent: Sun 23. Jan 2005 13:19
af Pandemic
hringum 100metrana
það nægir alveg til að fara margar hæðir þannig
Sent: Sun 23. Jan 2005 14:38
af END
Ég held ég hafi tölvurnar báðar á sömu hæð amk til bráðabirgða og tengi kapalinn svo kannski upp í sumar. En eins og ég segi þá veit ég ekki mikið um þetta, innbyggða ADSL módemið hefur dugað mér ágætlega hingað til.
Þannig að nú spyr ég, hvaða búnað þarf ég auk kapalsins (það væri líka fínt að vita hvar sé best að kaupa
) og ef ég þyrfti kapal lengri en 20 metra (hef ekki séð neinn lengri) eru þá til millistykki?
Sent: Sun 23. Jan 2005 15:13
af gumol
Það er mjög erfitt að draga kaplana með hausnum í gegn. Farðu frekar í Byko/húsasmiðjuna og fáðu CAT5e kapal í réttri lengd, 2xRJ-45 tengi og fáðu lánaða töng til að klípa tengin á endana.
Ef þú ert með netið gegnum módem á annari tölvunni þá þarftu bara netkort á báðar vélarnar, svo sharearu tengingunni í Windows. Eini gallinn við það er að það þarf alltaf að vera kveikt á tölvunni með módeminu þegar þú ætlar að nota netið á hinni. Síðan þarftu Crossover kapal milli vélanna.
Ef þú ert með netið gegnum router þá þarftu (líklega) líka switch nema hann sé innbyggður inn í routerinn. Svo þarftu tvo til þrjá venjulega netkapla frá switchinum í báðar tölvurnar og í routerinn.
Hérna sérðu hvernig á að raða vírunum inn í RJ-45 endann:
Sent: Sun 23. Jan 2005 20:25
af END
Jahá
En eins og ég er búinn að segja þá ætla ég að hafa tölvurnar á sömu hæð fyrst um sinn, fer í EJS á morgun og spyr þá betur út í þetta.