Síða 1 af 1

Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 19:10
af playman
Var að ljúka við að leggja CAT5 strengi um húsið og er að fara að setja routerin niður í kjallara, og nú vantar mér bara að setja skó og veggdósir.
Þá vandast málið aðeins fyrir mér, hef séð að það eru tvær tengingar aðalega notaðar T568A og T568B, ætti ég
að notast við þær, og hver er munurinn á þeim?
Þurfa tengingarnar ekki að samræmast líka þeim köpplum sem ég mun nota? (Búðar kapplar með steyptum endum)
Svo er það líka IPTV snúran, þarf hún að vera eitthvað spes tengd/víruð?

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 19:13
af hagur
Bara T568B á alla enda. "IPTV" snúran er alveg eins.

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 19:30
af Dúlli
playman skrifaði:Var að ljúka við að leggja CAT5 strengi um húsið og er að fara að setja routerin niður í kjallara, og nú vantar mér bara að setja skó og veggdósir.
Þá vandast málið aðeins fyrir mér, hef séð að það eru tvær tengingar aðalega notaðar T568A og T568B, ætti ég
að notast við þær, og hver er munurinn á þeim?
Þurfa tengingarnar ekki að samræmast líka þeim köpplum sem ég mun nota? (Búðar kapplar með steyptum endum)
Svo er það líka IPTV snúran, þarf hún að vera eitthvað spes tengd/víruð?

A er USA
B er evrópa

Þegar þú tengir þá er passaðu að pininn snúi frá þér, niður sem sagt.

En tenglarnir verða flóknari, þar sem flest allir tenglar breyta um uppröðun víra og þar sem það er alltaf prentplata fyrir neðan sem breytir þá í rétta tenginu. Það er lang oftast tengimynd í tenglum ferð bara eftir henni. "B" útfærsluna :happy

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 20:12
af playman
Kærar þakkir fyrir þetta strákar :happy

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 23:36
af jonsig
Nota T568B á íslandi. Síðan redda sér cat5 to 230V mains adapter til að fá power í tenginguna.

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 23:42
af playman
jonsig skrifaði:Nota T568B á íslandi. Síðan redda sér cat5 to 230V mains adapter til að fá power í tenginguna.

Afhverju power á tenginguna?

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 23:52
af jonsig
Okey ég tek þetta til baka, þetta átti að vera mjög fyndið.

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 23:55
af jonsig
Not funny now..

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mið 23. Nóv 2016 23:57
af playman
Hahaha þetta hljómaði allt öðruvísi þegar að ég las þetta fyrst, kanski maður ætti að lesa oftar og svo commenta :P

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Fim 24. Nóv 2016 00:02
af jonsig
Dúlli skrifaði:
playman skrifaði:Var að ljúka við að leggja CAT5 strengi um húsið og er að fara að setja routerin niður í kjallara, og nú vantar mér bara að setja skó og veggdósir.
Þá vandast málið aðeins fyrir mér, hef séð að það eru tvær tengingar aðalega notaðar T568A og T568B, ætti ég
að notast við þær, og hver er munurinn á þeim?
Þurfa tengingarnar ekki að samræmast líka þeim köpplum sem ég mun nota? (Búðar kapplar með steyptum endum)
Svo er það líka IPTV snúran, þarf hún að vera eitthvað spes tengd/víruð?

A er USA
B er evrópa

Þegar þú tengir þá er passaðu að pininn snúi frá þér, niður sem sagt.

En tenglarnir verða flóknari, þar sem flest allir tenglar breyta um uppröðun víra og þar sem það er alltaf prentplata fyrir neðan sem breytir þá í rétta tenginu. Það er lang oftast tengimynd í tenglum ferð bara eftir henni. "B" útfærsluna :happy

Þetta A er USA
Og B er evrópa er lífseigt bull.

T568B og T568A er bara önnur litauppröðun virknin er sú sama T568A er gamli AT&T litakóðinn sem er hægt og bítandi að deyja út.

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Fim 24. Nóv 2016 00:14
af jonsig
Mynd

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Fim 24. Nóv 2016 01:56
af tdog
Þetta A og B er bara víxlun á tveim pörum, Crossover kapall er með A öðrum megin og B hinum megin, þá tengist Rx parið í Tx pinnana á netkortinu og Tx parið á Rx pinnana í netkortinu. Með tilkomu auto-sensins netkorta er þetta úr sögunni og allir tengja bara í B.

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Fim 01. Des 2016 10:56
af playman
Veit einhver um gott forrit til þess að mæla gæði tengingarinar, þá ping, pakkatap og allt þannig?
Kanski eitthvað sem að maður keyrir í einhvern tíma (einhverja klukkutíma?) og getur borið saman tvær
mælingar (fyrir breytingu og eftir breytingu) og kanski skipt niður í local area connection svo internet connection.

Til þess að mæla noise á local networkinu, er til forrit til þess eða þarf maður einhvern rándýran hardware búnað til þess?

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Fim 01. Des 2016 12:42
af Urri
tdog skrifaði:Þetta A og B er bara víxlun á tveim pörum, Crossover kapall er með A öðrum megin og B hinum megin, þá tengist Rx parið í Tx pinnana á netkortinu og Tx parið á Rx pinnana í netkortinu. Með tilkomu auto-sensins netkorta er þetta úr sögunni og allir tengja bara í B.

Það er nú reyndar ekki rétt hjá þér... A tengingin er sú bandaríska og B flest öllum öðrum stöðum eins og í evrópu.

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Sun 04. Des 2016 19:35
af tdog
Urri skrifaði:

Þú getur lesið þér til um sögu þessara tenginga hérna, m.a. er kafi þar um afhverju bláa parið fer í miðjuna og hvers vegna brúna parið er ekki á ystu tveim pinnunum (undir Theory). Svo er líka þessi fína mynd sem sýnir að munurinn á A og B er bara sá að pari 2 og 3 er víxlað.

Ástæðan fyrir kröfunni um að það sé að tengt í patchpanel eftir A útgáfunni er sú að þá lenda 1 og 2 par (meira um pörin hér https://en.wikipedia.org/wiki/Twisted_pair) á réttum stað m.v. RJ11, þá er hægt að keyra tvær símalínur yfir sama portið. (Getur séð það gerast á skýringarmynd hér https://en.wikipedia.org/wiki/Registered_jack#RJ11).

Ekkert Bandarískt né Evrópskt, bara praktíkst.

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mán 05. Des 2016 06:08
af kizi86
tdog skrifaði:

https://en.m.wikipedia.org/wiki/TIA/EIA-568

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mán 05. Des 2016 12:46
af playman
playman skrifaði:Veit einhver um gott forrit til þess að mæla gæði tengingarinar, þá ping, pakkatap og allt þannig?
Kanski eitthvað sem að maður keyrir í einhvern tíma (einhverja klukkutíma?) og getur borið saman tvær
mælingar (fyrir breytingu og eftir breytingu) og kanski skipt niður í local area connection svo internet connection.

Til þess að mæla noise á local networkinu, er til forrit til þess eða þarf maður einhvern rándýran hardware búnað til þess?

Enginn með svar við þessu?

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mán 05. Des 2016 12:55
af Urri
pingplotter eina sem ég man eftir sem mælir eithvað svona

Re: Var að leggja CAT5, hvað svo?

Sent: Mán 05. Des 2016 13:15
af playman
Urri skrifaði:pingplotter eina sem ég man eftir sem mælir eithvað svona

Takk fyrir það, þetta er allavega góð byrjun :happy